Fréttablaðið - 24.09.2016, Side 45

Fréttablaðið - 24.09.2016, Side 45
 www.hopbilar.is Bílstjóri óskast AKUREYRI – BORGARNES - AKUREYRI Óskum eftir bifreiðastjóra í fullt starf til þess að sjá um akstur strætó milli Akureyrar og Borgarnes. Hæfniskröfur: - D réttindi (rútupróf) - Rík þjónustulund og góð mannleg samskipti - Hreint sakavottorð Upplýsingar um starfið og móttöku umsókna veita: Ágúst, gusti@hopbilar.is s. 822-0073 Hildur, hildur@hopbilar.is s. 822-0069 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Viðskiptastjóri Hlutverk viðskiptastjóra er að sinna helstu viðskiptavinum fyrirtækisins m.t.t. þarfa og lausna í upplýsingatæknimálum. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á öllum samskiptum við núverandi viðskiptavini ásamt þróun nýrra viðskiptasambanda. Við viljum ráða einstakling með brennandi áhuga á því nýjasta í upplýsingatæknimálum, sterkt tengslanet, háskólamenntun á viðeigandi sviði og mikla þjónustulund. Viðkomandi þarf að vera söludrifinn, hugmyndaríkur og óhræddur við að sækja ný viðskipti. Upplýsingar veitir: Sverrir Briem sverrir@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 3. okt nk. Fullum trúnaði heitið. Öflugt ráðgjafarfyrirtæki leitar að söludrifnum viðskiptastjóra. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Deildarstjóri samskiptadeildar Starfssvið: • Fagleg forysta um ytri og innri samskiptamál spítalans • Stefnumótun, innleiðing stefnu og samhæfing í samskipta- og kynningarmálum • Yfirumsjón með ytri vef, innri vef og samfélagsmiðlum • Fjölmiðlatengsl og stuðningur við talsmenn spítalans • Umsjón með stærri viðburðum og útgáfu á vegum spítalans • Umsjón með framleiðslu á kynningarmyndböndum • Rekstur og stjórnun samskiptadeildar Menntunar- og hæfniskröfur: • Reynsla af almannatengslum og kynningarmálum • Reynsla af stjórnun og teymisvinnu • Góð þekking á íslensku fjölmiðlaumhverfi • Góð þekking á vefumsjón, vefþróun og samskiptamiðlum • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar • Góð íslenskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti • Háskólamenntun sem nýtist í starfi Upplýsingar veitir: Leifur Geir Hafsteinsson leifurgeir@hagvangur.is Sótt er um starfið rafrænt á www.landspitali.is, undir „Laus störf“. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 10. okt. nk. Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af samskipta- og kynningarmálum til að leiða samskiptadeild spítalans. Hlutverk samskiptadeildar er að móta og innleiða stefnu um innri og ytri samskipti og skipuleggja virka upplýsingamiðlun um stefnu og starfsemi spítalans, þ.m.t. innri og ytri vefmál. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi með mikinn metnað fyrir hönd spítalans og þekkingu á og reynslu af starfssviðinu. Starfið er krefjandi, í því felst mikil ábyrgð og verulega reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem fleiri en 5.000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur. Ráðið verður í starfið frá og með 1. desember 2016 til 5 ára. Laun eru samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Um er að ræða fullt starf. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.