Fréttablaðið - 24.09.2016, Síða 45
www.hopbilar.is
Bílstjóri óskast
AKUREYRI – BORGARNES - AKUREYRI
Óskum eftir bifreiðastjóra í fullt starf til
þess að sjá um akstur strætó
milli Akureyrar og Borgarnes.
Hæfniskröfur:
- D réttindi (rútupróf)
- Rík þjónustulund
og góð mannleg samskipti
- Hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið og móttöku umsókna veita:
Ágúst, gusti@hopbilar.is s. 822-0073
Hildur, hildur@hopbilar.is s. 822-0069
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Viðskiptastjóri
Hlutverk viðskiptastjóra er að sinna
helstu viðskiptavinum fyrirtækisins m.t.t.
þarfa og lausna í upplýsingatæknimálum.
Viðskiptastjóri ber ábyrgð á öllum
samskiptum við núverandi viðskiptavini
ásamt þróun nýrra viðskiptasambanda.
Við viljum ráða einstakling með brennandi áhuga
á því nýjasta í upplýsingatæknimálum, sterkt
tengslanet, háskólamenntun á viðeigandi sviði og
mikla þjónustulund.
Viðkomandi þarf að vera söludrifinn, hugmyndaríkur
og óhræddur við að sækja ný viðskipti.
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. okt nk.
Fullum trúnaði heitið.
Öflugt ráðgjafarfyrirtæki leitar að söludrifnum viðskiptastjóra.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Deildarstjóri samskiptadeildar
Starfssvið:
• Fagleg forysta um ytri og innri samskiptamál spítalans
• Stefnumótun, innleiðing stefnu og samhæfing
í samskipta- og kynningarmálum
• Yfirumsjón með ytri vef, innri vef og samfélagsmiðlum
• Fjölmiðlatengsl og stuðningur við talsmenn spítalans
• Umsjón með stærri viðburðum og útgáfu á vegum
spítalans
• Umsjón með framleiðslu á kynningarmyndböndum
• Rekstur og stjórnun samskiptadeildar
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Reynsla af almannatengslum og kynningarmálum
• Reynsla af stjórnun og teymisvinnu
• Góð þekking á íslensku fjölmiðlaumhverfi
• Góð þekking á vefumsjón, vefþróun og
samskiptamiðlum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi
samskiptahæfileikar
• Góð íslenskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Upplýsingar veitir:
Leifur Geir Hafsteinsson
leifurgeir@hagvangur.is
Sótt er um starfið rafrænt á www.landspitali.is,
undir „Laus störf“. Umsókn um starfið þarf að
fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. okt. nk.
Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af samskipta- og kynningarmálum til að leiða samskiptadeild
spítalans. Hlutverk samskiptadeildar er að móta og innleiða stefnu um innri og ytri samskipti og skipuleggja virka
upplýsingamiðlun um stefnu og starfsemi spítalans, þ.m.t. innri og ytri vefmál.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi með mikinn metnað fyrir hönd spítalans og þekkingu á og reynslu af starfssviðinu.
Starfið er krefjandi, í því felst mikil ábyrgð og verulega reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem fleiri en 5.000 manns starfa í þverfaglegum
teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu
röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk
og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Ráðið verður í starfið frá og með 1. desember 2016 til 5 ára.
Laun eru samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Um er að ræða fullt starf.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi