Fréttablaðið - 24.09.2016, Page 48
Byggingarstjóri
Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir að ráða
byggingarstjóra í viðhaldi leiguíbúða. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Fasteignir Akureyrarbæjar eru eignarhalds- og rekstrarfélag í
eigu Akureyrarbæjar.
Félagið hefur sérstaka stjórn sem starfar í umboði bæjarstjórnar
og hefur umsjón með öllum fasteignum í eigu bæjarins.
Helstu verkefni félagsins eru nýframkvæmdir, kaup og sala eigna,
viðhald eigna og útleiga þeirra.
Helstu verkefni:
• Umsjón með viðhaldi og endurbótum fasteigna.
• Gerð viðhaldsáætlana.
• Stýring framkvæmda.
• Eftirlit með framkvæmdum.
• Samskipti og þjónusta við leigutaka og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistari á byggingarsviði eða önnur haldgóð menntun
sem nýtist í starfið.
• Þekking a byggingaframkvæmdum.
• Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
• Góð almenn tölvukunnátta kostur.
• Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði.
• Hæfni til ákvarðanatöku og sjálfstæðra vinnubragða.
• Jákvætt hugarfar og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrar-
bæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2016
Búmenn hsf
Húsnæðisfélag
Akralind 4
201 Kópavogi
Sími 552 5644
Fax 552 5944
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
Bókari og skrifstofustarf:
Búmenn eru húsnæðissamvinnufélag sem var stofnað
með það að markmiði að byggja og reka búsetu íbúðir
fyrir félagsmenn sína. Búmenn eru með 540 íbúðir í 13
sveitarfélögum víðsvegar um land.
Umsóknarfrestur er til 30 september 2016
Starfsvið:
Um er að ræða hlutastarf 60%
Umsjón með bókhaldi
Milliuppgjör
Aðstoð við gerð greiðsluáætlana
Aðstoð við gerð rekstraráætlana
Reikningagerð
Ábyrgða á skjalamálum
Önnur verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Hæfniskröfur:
Reynsla af bókhaldi skilyrði.
Reynsla af DK bókhaldskerfi skilyrði
Menntun á sviði bókhalds æskileg
Góð tölvukunnátta
Góð samskipti og samstarfshæfni
Sveigjanleg/ur og viljug/ur að ganga í fjölbreytt verkefni
Upplýsingar veitir Úlfar Þór Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Búmanna í síma 552 5644 og einnig er
hægt að senda tölvupóst á ulfar@bumenn.is
Ljósleiðaradeild GR leitar að starfsmanni sem hefur það hlutverk að hafa umsjón
með grunnkerfi Ljósleiðarans þannig að viðskiptavinir okkar geti treyst öruggri
tengingu. Við leitum að jákvæðum, útsjónarsömum og samskiptaliprum félaga
í samhentan hóp sem sér um uppbyggingu, viðhald og rekstur grunnkerfis
Ljósleiðarans.
ÞÚ TRYGGIR ÖRUGGT HÁGÆÐASAMBAND:
Starfið felur í sér að tryggja gæði við lagningu grunnkerfis Ljósleiðarans með því að:
• Sinna fageftirliti á ljósleiðaraframkvæmdum
• Sinna ráðgjöf og samskiptum við verktaka
• Taka út ljósleiðaraframkvæmdir
• Meta ástand ljósleiðarakerfis
Til að sinna starfinu vel þarftu að hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði
rafiðnaðar og hafa haldbæra þekkingu og reynslu af framkvæmdum við ljósleiðara.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Við tökum á móti umsóknum á ráðningarsíðu okkar: starf.or.is/gagnaveitan/ þar
sem nánari upplýsingar er að finna. Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2016.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttur mannauðsráðgjafi á netfanginu
starf@gagnaveita.is.
Kíktu á www.ljosleidarinn.is eða Ljósleiðarinn á Facebook!
Gagnaveita Reykjavíkur er fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 60 starfsmenn auk
ótal verktaka vinna saman að því að veita íslenskum heimilum og fyrirtækjum aðgengi
að hágæða þjónustu á opnu aðgangsneti Ljósleiðarans. Hjá GR er fagmennska og
góður starfsandi í fyrirrúmi, við leitumst við að vera í fremstu röð hvað varðar jafnrétti,
öryggi, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð.
KOMDU FÓLKI Í SAMBAND VIÐ
FRAMTÍÐINA
—— UMSJÓN LJÓSLEIÐARAKERFIS