Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 67
Mjög góð eplakaka sem passar vel með vanilluís eða rjóma. Það er einfalt að gera kökuna, bragðið af hnetum og kanil passar vel með eplunum. Þá má skipta hnetum út og nota haframjöl í staðinn. Kakan er best heit. 2 dl hveiti 1 tsk. kanill 3 msk. sykur 50 g heslihnetur 100 g smjör Fylling 4 epli 0,5 dl sykur Blandið saman hveiti, kanil og sykri. Hakkið hneturnar og bætið saman við. Síðan er mjúkt smjör sett saman við í litum bitum. Deig- ið á að vera þurrt. Skrælið eplin og kjarnhreinsið. Skerið þau í sneiðar. Raðið þeim síðan í vel smurt eldfast mót. Strá- ið sykri yfir og síðan er deigið sett yfir á víð og dreif. Bakið kökuna í miðjum ofni við 225°C í um það bil 25 mínútur eða þar til mulningurinn er orðinn gyllt- ur. Eplakaka með mulningi Gönguleiðsögn um sýningu Sindra Leifssonar fer fram á morgun, sunnudag, í og í kring- um Gerðarsafn klukkan 15. List- nemar munu leiða gönguna en hún er hluti af sýningaröðinni Skúlptúr/skúlptúr. Í lýsingu segir að „einföld tákn og meðhöndlun efniviðarins eru endurtekin stef í verkum Sindra en umhverfi og samfélag koma gjarnan við sögu. Óljósir skúlptúrar hafa tekið sér tímabundna fótfestu í umhverf- inu og er ætlað að draga fram hugmyndir um borgarskipulag og hegðun fólks í rýminu.“ Eva Ísleifsdóttir og Sindri Leifs- son setja fram hugleiðingar um skúlptúrinn á samhliða einka- sýningum. Markmið sýningarað- arinnar Skúlptúr/skúlptúr er að veita innsýn í hugarheim lista- manna. Verk og vinnubrögð geta verið ólík en hugsunin að baki þeim er um margt lík. Þau sem leiða gönguna eru Íris Indriðadóttir, Jóhann Ingi Skúla- son, Ólöf Björk Ingólfsdóttir, Óskar Þór Ámundason og Signý Jónsdóttir. GönGuleiðsöGn um skúlptúrsýninGu Nú er súputíðin gengin í garð. Hér er uppskrift að fljótlegri fiski- súpu sem er tilvalið að gera í stærri skömmtum og bjóða upp á í saumaklúbbnum eða í öðrum tæki- færisveislum. Hana er líka gott að gera fyrir fjölskylduna og hún er ekki síðri upphituð. Uppskriftin birtist á vinotek.is. Blandað sjávarfang, t.d. skötuselur, rækjur og humar 2 skalottlaukar 2 gulrætur 1 sellerístöngull 1 rauð paprika 1 msk. ólívuolía 5 dl kjúklingasoð 5 dl rjómi/matreiðslurjómi 1 dós Hunt’s spagettísósa – Roast ed garlic and onion 2 msk. púðursykur 1 msk. basilolía 1/2 tsk. cayenne-pipar 1 tsk. basilíka Sal Fínsaxið skalottlaukana. Skerið gulrætur, sellerí og papriku í litla teninga. Hitið olíu í potti og mýkið laukinn ásamt grænmetinu. Bætið kjúklingasoðinu og rjóm- anum í pottinn og látið malla á vægum hita í 15 mínútur. Bætið þá spagettísósunni og púðursykrinum saman við og látið suðuna koma upp. Bragðið til með cayenne-pip- ar og salti. Setjið basilíku, basilolíu og fiskmetið út í rétt áður en súpan er borin fram. Fljótleg fiskisúpa Nánari upplýsingar og skráning á hreyfing.is 6 vikna lyftingaprógram Hefst 26. sept. Margir vinna ekki markvisst í styrktarþjálfun, gera alltaf sömu æfingarnar eða bara eitthvað. Í þessu prógrammi lærirðu rétta tækni til að ná betri árangri og koma í veg fyrir álagsmeiðsli. Með markvissum lyftingum styrkirðu alla helstu vöðvahópa líkamans, bætir líkamsstöðu og eykur grunnbrennslu líkamans. Lyftingar eru ein besta leiðin til að komast hratt og örugglega í þitt besta mögulega form og verða stæltari og sterkari. Þjálfað eftir þaulskipulögðu æfingakerfi þar sem rétt álag, endurtekningar og jafnvægi á milli andstæðra vöðva skilar hámarksárangri. Hentar konum og körlum, byrjendum og þeim sem finna fyrir stöðnun í sinni þjálfun. Kraftur Álfheimar 74 - 104 Reykjavík - S: 414-4000 - www.hreyfing.is Gerðu líkama þinn að öflugri “brennsluvél” F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 9l a U g a r D a g U r 2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F ó l k ∙ k y n i n g a r b l a ð ∙ h e l g i n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.