Fréttablaðið - 24.09.2016, Síða 74
Sýningin Local Food er haldin í
Íþróttahöllinni á Akureyri.
Kl. 13-18
Sýning Iðnaðarsafnsins á Akureyri
þar sem sögð er saga matvæla-
framleiðslu í bænum. Fjöldi áhuga-
verðra muna verður til sýnis.
Kl. 13
Local Food Festival kokkanemi árs-
ins 2016. Keppt um besta saltfisk-
réttinn.
Kl. 14
Besta kakan á Akureyri – opin
keppni fyrir almenning.
Kl. 15
Local Food Festival kokkur ársins
2016. Þar keppa kokkar sem hafa
sveinspróf í matreiðslu og reiða
fram tveggja rétta matseðil og fer
matreiðslan fram fyrir framan gesti
sýningarinnar. Kokkarnir hafa 90
mínútur til umráða og er eldað fyrir
fjóra.
Kl. 15.20
Frá haga í maga – sýning á vinnslu-
ferli lambakjöts.
Kl. 15.30
Kokteilakeppni – Barþjónar bæjar-
ins keppa um besta kokteilinn.
Kl. 16
Þjónahlaup – Þjónar bæjarins sýna
snerpu sína með fullan bakka af
glösum.
Kl. 17.15
Sýningarnefnd velur fallegasta bás-
inn og frumlegasta básinn og veitt
verða frumkvöðlaverðlaun.
Dagskrá Local Food
sýningarinnar
Einn af viðburðunum á
Local Food Festival er
keppni um hver verður
Local Food kokkur ársins
2016 og Local Food kokka-
nemi ársins 2016. „Keppn-
in hefur verið haldin undan-
farin ár, hún hefur heppn-
ast vel, og þátttaka verið
góð,“ segir Einar Geirsson
veitingamaður og einn af
skipuleggjendum keppn-
innar. „Sýningin er bara
einn dagur og keppnin því
stutt. Kokkarnir hafa níutíu
mínútur til að elda forrétt
og aðalrétt fyrir fjóra en
nemarnir fá klukkutíma til
að elda aðalrétt fyrir fjóra.“
Keppendur fá aðalhráefn-
in afhent á staðnum, kokk-
arnir elda lax og hlýra í for-
rétt og lambahryggvöðva
og lambaskanka í aðalrétt
og kokkanemarnir verða
með saltfiskhnakka í aðal-
rétt. „Kokkarnir koma sjálfir
með aðalhráefni, soð, mar-
ineringu, deig og mjólkur-
vörur, eins mikið undirbúið
og þeir vilja en annað hrá-
efni, grænmeti og annað
meðlæti verður í svokallaðri
leynikörfu sem keppendur
fá aðgang að hálftíma fyrir
keppni. Keppnin hefur verið
spennandi undanfarin ár og
verður eflaust ekki breyting
þar á í ár,“ segir Einar.
LocaL food kokkur og kokkanemi ársins
Ýmislegt annað skemmtilegt er í
gangi á Akureyri helgina sem Local
Food Festival fer fram. Þar má
til dæmis nefna tónleikana Forty
Licks, þar sem öll bestu lög The
Rolling Stones verða flutt. Það er
sami hópur sem stendur að Forty
Licks og að heiðurstónleikunum
David Bowie in Memoriam og The
Beatles.
Tónlistarmennirnir sem koma
fram eru Stefán Jakobsson, Pétur
Ben, Þór Breiðfjörð, Agnes Björt
Andradóttir, Unnur Birna Bassa-
dóttir og Egill Ólafsson ásamt tíu
manna hljómsveit Tómasar Tóm-
assonar.
Tónleikarnir fara fram í Menn-
ingarhúsinu Hofi laugardaginn
1. október klukkan 20.
Forty Licks í Hofi
LocaL FooD FestivaL Kynningarblað
24. september 20168