Fréttablaðið - 24.09.2016, Blaðsíða 78
Fólkið á Finnbogastöðum, Þorsteinn Guðmundsson, Guðmundur Þorsteinsson og
Linda Guðmundsdóttir, ásamt hundunum Rex og Perlu.
með hægð. „Þetta er dálítið átak en maður er búinn
að hafa ár til að melta það. Þorsteinn var fluttur að
heiman en kom aftur eftir hrunið. Ég bauð honum að
prufa að taka við búinu og við skiptum því til helm-
inga fyrsta árið, svo tók hann alveg við. Ég fékk að vera
í horninu hjá honum en hann sá um öll verk, ég greip
bara í að gefa ef hann var í öðru. En nú finnst honum
þetta ekki lífvænlegt lengur, hann er yngsti bóndinn
í sveitinni og er einn. Ég álasa honum ekki þó hann
vilji fara.“
Guðmundur kveðst verða að vera heima í vetur. „Ég
hef ekki efni á að gera neinar ráðstafanir fyrr en ég get
selt. Að hafa þetta fyrir sumarhús og svo heimili annars
staðar er ekki inni í myndinni. Ég var að spá í að hafa
fáeinar kindur sem ég gæti séð um mér til dundurs. En
ég hætti við það og við heyjuðum ekkert í sumar. Ef
kindurnar eiga að ná að hita húsin nægilega upp til að
halda vatninu rennandi þyrfti ég að hafa 30 til 50. Það
er of margt. Ég er orðinn gigtveikur og get ekki klippt,
bólusett og annað slíkt og þyrfti þá að leita til annarra.
Það er ekki hægt að búa upp á það.“
En gætir þú hugsað þér að eiga heima annars staðar?
spyr ég. – Þögn. – Linda kemur honum til hjálpar. „Í
kirkjugarðinum kannski.“ „Já, við látum það svar gilda,“
segir Guðmundur kankvís.
Elskar kindurnar
Linda er búsett í Reykjavík, vinnur í Þjóðminjasafninu og
hjá Bílastæðasjóði auk þess að læra söng í FÍH. Hún er ein
þeirra sem koma heim til að rétta. Þetta haust er það átakan-
legt þar sem hún þarf að sjá á eftir öllum kindunum til slátr-
unar, nema tveimur sem Sara í kaffihúsinu ætlar að bjarga
frá aflífun. „Ég elska kindurnar,“ segir Linda. Hún kveðst
hafa tekið allt sumarfríið sitt á vorin til að koma heim í
sauðburð. „Ég var á næturvöktum í vor. Það er best í heimi.
Sólsetrið hérna og sólarupprásin er líka sjónarspil. Sólin
siglir niður með Krossnesfjallinu, syndir eftir haffletinum
og rennir sér svo upp með Hyrnunni. Ótrúlega magnað.“
Henni finnst atgerfisflóttinn úr sveitinni ömurlegur.
„Íbúum hefur farið fækkandi hér alla mína ævi og lengur.
Síðasta veturinn minn í skóla hér vorum við krakkarnir níu,
það fólk er allt farið. Svona er þetta, maður breytir því ekki.
Ég get alveg skilið Þorstein bróður minn. Hér er svo fátt ungt
fólk og erfitt að vera einn að basla. Sauðfjárbúskapur er svo
mikil vinna og maður þarf að hafa svo gífurlegan áhuga til
að standa í honum. Hann er líka hugsjónastarf því menn
lifa ekki á honum, eins sorglegt og það er.“ Hallar sér fram á
eldhúsbekkinn og horfir út á víkina. „En þetta verður alltaf
heim, það tekur enginn frá mér, þó jörðin seljist kannski og
hingað komi nýtt fólk. Ég get alltaf gengið um fjörurnar og
farið upp í fjall. Þetta verður alltaf sveitin mín.“
Færri að tala við
Hjónin Bjarnheiður Júlía Fossdal, kölluð Bodda, og Björn Torfason hafa búið á Melum 1 í 41 ár. Þó unga
fólkinu fækki í sveitinni og blikur séu á lofti
ætla þau að halda ótrauð áfram. „Við erum
þrárri þessi gömlu,“ segir Bodda glettin en
hefur samt áhyggjur af þróuninni. „Það verður
ýmislegt erfiðara, til dæmis að smala heima-
löndin og ef eitthvað kemur upp á. – Já, og svo
bara færri að tala við,“ nefnir Björn. Börnin
fimm eru flogin úr hreiðrinu en koma á anna-
tímum með fjölskyldur sínar. Barnabörnin
hafa hlutverkum að gegna í réttunum, þá
hjálpast allir að.
Melaféð skilaði sér margt um síðustu helgi.
Björn saknar samt kinda af afréttunum sem
gengnir voru. „Óþekku rollurnar eru eftir. Þær
koma seinna með bestu lömbin!“
Lindu finnst átakanlegt að sjá á eftir kindunum í sláturhús FRéttabLaðið/stEFán kaRLsson
↣
Hætta á hnignun
Gunnsteinn Gíslason á Bergistanga, fyrr-um oddviti og kaupfélagsstjóri, segir hættu á hnignun í byggðarlaginu þegar
unga fólkið fari. Hann býst við að erfitt verði
að manna snjómokstur í vetur bæði á vegum
og flugvellinum sem ungu bændurnir í Bæ og
á Finnbogastöðum hafa sinnt. Þegar hann var
sex ára voru 524 íbúar skráðir í Árneshreppi.
Nú verða þeir milli 40 og 50 og sumir að heim-
an, að minnsta kosti yfir veturinn.
Það segir sig því sjálft að Gunnsteinn hefur
áður upplifað fólksflótta og erfiðleika. Hann
man 7. áratuginn, mikið harðindatímabil
þegar hafís var fyrir landi ár hvert og gras-
brestur vegna kulda. „Það kostaði mikla vinnu
og fjárútlát að ná í fóður handa skepnunum
því það sem fékkst heima dugði engan veginn.
Upp úr 1970 fluttu margir úr hreppnum, til
dæmis fólk frá Eyri í Ingólfsfirði og Dröngum,
Melum og Kjörvogi,“ rifjar hann upp. „Staðan
var samt gerólík því sem hún er nú, því þá voru
hér miklu fleiri íbúar og það var ekki eins til-
finnanleg fækkun á börnum og núna. En ég er
ekkert hissa þó ungt fólk fari því þessi staður
býður ekki upp á nógu mikið eins og er.“
En ég Er EkkErt hissa þó ungt fólk
fari því þEssi staður býður Ekki
upp á nógu mikið Eins og Er.
Gunnsteinn hefur átt heima í árneshreppi alla tíð og man tímana tvenna.
Hjónin á Melum 1, bjarnheiður Júlía og björn G. torfason ásamt harðsnúnu
liði barnabarna. Þau heita Lárus Guðni svavarsson, brynja Dröfn ásgeirs-
dóttir, Ólafur bjarkarson, kristófer Logi bjarkarson og alexander Freyr
bjarkarson.
Tónlistarnámskeið fyrir ung
börn og foreldra þeirra
Nú í haust býður Suzukitónlistarskólinn í Reykjavík upp á námskeið fyrir
börn á aldrinum 3ja mánaða til þriggja ára.
Á námskeiðinu verða kennd barnalög og kvæði, leikið, dansað og notið
samverunnar. Kennari notar m.a. kennsluefni og hugmyndafræði Su-
zukiaðferðarinnar til grundvallar námskeiðinu og foreldrar læra leiðir til að
nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna.
Kennari er Diljá Sigursveinsdóttir, suzukifiðlukennari við skólann, sem
einnig er menntuð söngkona og söngkennari og hefur margra ára reynslu
sem kennari ungra barna.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 6. október nk.
og er kennt vikulega í 8. vikur.
Námskeið ætlað börnum á aldrinum eins árs til þriggja ára
er kennt frá kl. 09:00 til 10:00.
Námskeið ætlað börnum á aldrinum þriggja mánaða til eins árs
er kennt frá kl. 10:00 til 11:00
Verð kr. 25.000
Skráning er á netfanginu
postur@suzukitonlist.is
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r34 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð