Fréttablaðið - 24.09.2016, Síða 80
Kosið verður til Alþingis þann 29. október og ráðgert er að ljúka þingstörfum núna í lok mánaðar. Minnst þriðjungur
núverandi þingmanna mun hverfa
frá störfum eftir kosningar. Þing
konurnar Katrín Júlíusdóttir úr
Samfylkingunni, Ragnheiður Rík
harðsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum
og Jóhanna María Sigmundsdóttir
úr Framsóknarflokki hafa setið mis
lengi á þingi. Katrín lengst, eða frá
árinu 2003, Ragnheiður frá árinu
2007 en Jóhanna frá 2013. Allar eru
þær nú að hverfa á braut.
Þær eru allar sammála um það að
þingstörfin beri þess merki þessa
dagana að það er farið að þetta þing
er farið að styttast í annan endann.
Lausnamiðuð hugsun
Katrín: Maður er algjörlega farinn
að finna það. Nú eru allir flokkarnir
að stilla upp á lista og það eru búin
að vera prófkjör og þá eru komin
svolítið önnur tilfinning í húsið og
störfin. En mér finnst allt annar
og jákvæðari andi í húsinu núna
heldur en oft áður við þinglok. Það
er mikill vilji til þess að klára þetta
sómasamlega.“ Hún segir málin
ekki snúast um það núna að semja
um það hvaða mál verði kláruð og
hvaða mál sitji eftir heldur að finna
í sameiningu út úr því hvaða mál sé
raunverulega hægt að klára á þeim
tíma sem eftir er.
Ragnheiður: „Já, ég tek undir það
og það er eiginlega búið að vera
frá því að við lukum þingstörfum
síðastliðið vor. Þá var líka annars
konar andrúmsloft í þinginu. Við
vissum þá að við færum inn í kosn
ingar í október.“
Þarf að hafa gaman af fólki
Þingkonurnar þrjár eru allar sam
mála um að tíminn á Alþingi hafi
verið mjög skemmtilegur.
Katrín: „Starfið er fjölbreytt og
mjög skemmtilegt og þú ert að hafa
áhrif. Ég mæli með þessu við hvern
sem er og hvet fólk til að taka þátt í
stjórnmálum.“
Undir þetta tekur Ragnheiður.
„Mér hefur þótt þetta ótrúlega
skemmtilegur tími. En þú þarft að
hafa gaman af fólki. Þú þarft að vera
félagslyndur og opinn. Þú þarft að
hafa gaman af að vera innan um
fólk, að tala við fólk og tala um mál
efni.
Jóhanna: „Það er rosalega erfitt
að fara á þing ef þú átt erfitt með
samskipti.“
Landsdómsmálið ömurlegt
Blaðamaður spyr þær um eftir
minnilegustu atvikin frá þing
mannsferlinum.
Ragnheiður: „Eitthvað sem
stendur upp úr og eitthvað sem
stendur niður úr. Þá er það lands
dómsmálið í mínum huga. Það
var mjög þarft og gott að fá rann
sóknarskýrslu Alþingis. Hún flutti
okkur margan boðskap og margt
sem þar stóð þurfti að fara í gegn
um og skoða.“ Framhaldið, að taka
ákvörðun um að ákæra ráðherra úr
fyrri ríkisstjórn, hafi hins vegar ekki
verið gott. „Mér fannst lúkning þess
máls ömurleg fyrir þingið í heild
sinni. Ég vildi óska þess að ég hefði
ekki þurft að taka þátt í því ferli.“
Katrín segir að landsdómsmálið
hafi verið erfitt fyrir sinn flokk líka.
„Það hefur haft áhrif fram á daginn
í dag og mun örugglega gera það
áfram.“
Katrín segir þó eftirminnilegasta
tímann fyrir sig í pólitíkinni hafa
verið þegar hún var iðnaðarráð
herra og við Íslendingar upplifðum
eldgos ofan í bankahrunið. „Ég var
ferðamálaráðherra á þessum tíma
og allar hótelbókanir og flugbók
anir stoppuðu. Það var að koma
sumar og ferðaþjónusta var enn þá
árstíðabundin. Við tókum okkur
saman, stjórnvöld og greinin, og
ákváðum að snúa vörn í sókn og
hrinda af stað verkefninu Inspired
by Iceland.“
Katrín segir þetta hafa verið rosa
lega skemmtilegan tíma. „Þarna sá
maður að opinberi geirinn og einka
geirinn geta snúið bökum saman og
gert hlutina vel.“
Jóhanna segir miklar hræringar
hafa orðið í þingflokki sínum á þeim
tíma sem hún hefur setið á þingi.
„Það erfiðasta sem ég hef gert er að
sitja á þingi og þurfa að halda áfram
að vinna öll þessi góðu mál sem
hafa verið að koma inn á meðan
þetta var í gangi hjá okkur.“ Þar
vísar Jóhanna í forsætisráðherra
skiptin og þá atburði sem leiddu til
þeirra. „En það sem stendur upp úr á
mínum þingferli er tíminn í Norður
landaráði. Það innlegg sem ég náði
að koma með fyrir Íslands hönd
þar inn og er enn verið að vinna að
í dag. Meðal annars um heilbrigðis
þjónustu í dreifðari byggðum.“
Hefði orðið þrusuráðherra
Ragnheiður hefur verið þingmaður
í níu ár og blaðamaður spyr hana
hvort hún sakni þess ekkert að hafa
ekki orðið ráðherra.
„Það er kannski ekki hægt að tala
um að maður sakni einhvers sem
maður hefur ekki fengið. En mér er
engin launung á því að ég taldi að
ég hefði alla burði til þess að fara
inn í ráðherrastól þegar Sjálfstæðis
flokkurinn myndaði ríkisstjórn með
Framsóknarmönnum og ég taldi
mig líka hafa alla burði til þess að
taka við þegar Hanna Birna fór frá.
En svona ákvarðanir eru teknar
af formanni flokksins og varafor
manni og þeirra mat var annað,“
svarar hún.
Katrín: „Ég veit að Ragnheiður
hefði orðið þrusuráðherra.“ En
Katrín er ekki á því að það hafi
verið hápunktur ferils síns að verða
ráðherra. „Vissulega er það stór við
burður og ég hafði gaman af því að
vera ráðherra. Það hentaði mér vel
og ég hafði gaman af starfinu í iðn
aðarráðuneytinu og mér gekk vel
í því.“ Hún segir þó alveg ljóst að
það sé jafn mikilvægt að vera góður
þingmaður og að vera góður ráð
herra. „En ég skal alveg viðurkenna
það að maður kemur meiru í verk
og hraðar inni í ráðuneyti heldur
en inni í þinginu. Ég ætla ekki að
segja að þetta hafi verið toppurinn
á mínum ferli en það var sannarlega
stór hluti af honum.“
Jóhanna María er með fastmótað
ar skoðanir á því hvernig hún ætlar
að verja tímanum eftir Alþingi. „Ég
er búin að vera í Háskólanum á Bif
röst og er núna að klára fyrsta árið
í miðlun og almannatengslum. Ég
ætla að vinda mér í það að klára
háskólanámið.“ Að auki rekur hún
kúabú með foreldrum sínum og seg
ist því alls ekki verða verkefnalaus.
Katrín: „Eina ákvörðunin sem ég
hef tekið er að taka enga ákvörðun
fyrr en ég er búin að vera í fríi í
nokkrar vikur. Þannig að ég ætla að
byrja á því að taka mér frí í nokkrar
vikur og svo ætla ég bara að fara að
leita mér að einhverri skemmtilegri
vinnu. Ég kem úr einkageiranum og
langar þangað aftur, hvort sem ég er
hérlendis eða erlendis.“
Ragnheiður hefur ekki tekið
neinar ákvarðanir heldur. „Ég ætla
að njóta þess að eiga daginn fyrir
mig og mína. Hins vegar ef eitthvað
kemur upp í hendurnar á mér að
þessu þingi loknu og einhver vill
ráða mig til starfa í eitthvað, þá er
ég alveg tilbúin til þess að skoða
það. En í augnablikinu ætla ég ekki
að fara að ráða mig í eitt né neitt.“
Jákvæðari andi
í Alþingishúsinu
Katrín Júlíusdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Jóhanna Sigmunds-
dóttir hverfa af þingi eftir mánuð. Þær segja frá eftirminnilegustu at-
burðunum á ferlinum og ræða um lífið eftir að þingstörfum lýkur.
Þingkonurnar þrjár hafa mislanga reynslu af störfum á Alþingi. Katrín Júlíusdóttir hefur setið þar síðan 2003, Ragnheiður Ríkharðsdóttir síðan 2007 en Jóhanna María síðan 2013. FRéttAbLAðið/Anton bRinK
Mér fannst lúkning
þess Máls öMurleg
fyrir þingið í heild
sinni. ég vildi óska þess
að ég hefði ekki þurft
að taka þátt í því ferli.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@365.is
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r36 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð