Fréttablaðið - 24.09.2016, Qupperneq 102
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
18.09.15-
24.09.15
Árdís Telma að keppni lokinni. Bíllinn
er af gerðinni Honda Civic og hefur
verið í eigu Árdísar Telmu í um ár.
Skemmtilegt
fjölskylduáhugamál
Hin 16 ára gamla Árdís Telma stundar rally-
akstur. Foreldrar hennar, bróðir, frænka og föður-
bróðir stunda einnig íþróttina. Árdís segir fjöl-
skylduna tala um fátt annað en bíla.
Rally og rallycross hafa verið fjölskylduhobbí hjá okkur í mörg ár. Ég keppi í rallycross en foreldrar mínir, eldri bróðir, frænka
og föðurbróðir keppa í rally,“ segir
Árdís Telma Jóhannesdóttir, sex-
tán ára rallycross-ökumaður úr
Hafnarfirðinum. Hún tók þátt í
rally cross-keppni um síðustu helgi
og hafnaði í fjórða sæti.
Árdís Telma hefur æft íþróttina
í um ár og keppir í unglingaflokki,
en í þeim flokki þarf keppandi hafa
náð 15 ára aldri. Við 17 ára aldur
er keppandi ekki lengur löglegur
í unglingaflokki en má þá keppa í
fullorðinsflokki.
Í rallycross er ekið á lokaðri
braut sem er bæði með bundnu
slitlagi og möl og keyra nokkrir í
einu. Sá sigrar sem fyrstur kemur í
mark. Í rally er aftur á móti keyrt á
vegum, aðstoðarökumaður er með
í bílnum sem les leiðina fyrir öku-
manninn og besti tíminn sker úr
um sigurvegara.
Aðspurð segir hún hraðann og
útrásina vera það skemmtilegasta
við sportið, en tekur fram að það
sé margt nytsamlegt sem lærist
líka. „Við keyrum bæði á malar-
vegi og malbiki og maður lærir að
hafa stjórn á bílnum við alls konar
aðstæður, eins og í mikilli rigningu
og bleytu. Ég var til dæmis ekkert
stressuð þegar ég fór í fyrsta öku-
tímann minn því ég kann á bíla og
hef tilfinningu fyrir þeim og það
veitir mér öryggi. Svo er líka bara
gaman að keyra hratt og fá útrás,“
segir hún og bætir við: „Það er
líka gaman að eiga áhugamál með
fjölskyldunni. Þegar bróðir minn
keppir þá fer öll fjölskyldan saman
til að horfa og aðstoða sem er mjög
skemmtilegt. Eini gallinn er að við
tölum auðvitað eiginlega bara um
bíla.“
Hún segir vinkonur sínar sýna
áhugamálinu mikla athygli og að
þær mæti gjarnan á keppnir til að
hvetja hana áfram. „Þeim finnst
þetta svolítið spennandi og koma
á keppnir þegar þær geta. Þegar ég
segi fólki frá því að ég keppi í rally-
cross þá verður það oftast hissa en
finnst það líka spennandi.“
Árdís Telma fyllir 17 ár á næsta
ári og verður þá gjaldgeng í full-
orðinsflokk. Hún segir sam-
keppnina í þeim flokki harða
enda mikið um eldri og vanari
ökumenn, eins og bróður henn-
ar. Hún hlakkar þó til að fá að
keppa við hann og foreldra sína.
„Það stendur til að við keyrum öll
á okkar bíl í rallinu á næsta ári.
Bróðir minn er samt langbestur af
okkur og í þessu til að vinna,“ segir
hún að lokum. sara@frettabladid.is
Árdís Telma Jóhannesdóttir ásamt vin-
konum sínum eftir síðustu keppni. Þar
hafnaði hún í fjórða sæti.
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Þú finnur nýja
bæklinginn okkar
á www.dorma.is
Smáratorg | Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður www.dorma.is
NATURE’S
LUXURY
heilsurúm
Aðeins 142.490 kr.
Nature’s Luxury heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 189.900 kr.
Fyrir þínar bestu
stundir
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
HELSINKI
rúmgafl
Rúmgafl fæst í svörtu og hvítu PU leðri og í gráu áklæði. Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.Verð að neðan miðað við rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Aðeins 31.920 kr.
Spring Air REGENCY
heilsurúm með classic botni
Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni.
Aukahlutir á mynd:
Náttborð og smávara og
Capello lappir
Stærð Fullt verð Tilboðsverð
160x200 cm 252.900 kr. 202.320 kr.
180x200 cm 279.900 kr. 223.920 kr.
180x210 cm 309.900 kr. 247.920 kr.
192 x 203 cm 309.900 kr. 247.920 kr.
1
17
21
18
2
4
5
7
6
15
9
12
11
8
14
20
19
10
13
3
16
1. Áklæði
2. 250 g/m2 silki
3. 300 g/m2 sílikon-trefjar
4. 17 mm laserskorið HYP foam
5. 17 mm laserskorið HYP foam
6. 30 g/m2 fylling
7. 50 mm þrýstijöfnunarefni
8. 500 g/m2 fílt
9. Steyptar kantstyrkingar
10. 5 svæða pokagormakerfi
11. 1.000 g/m2 fílt
12. Steyptar kantsyrkingar
13. BEVEL gormar. Hæð 10 cm
14. 500 g/m2 fílt
15. 30 g/m2 fylling
16. 12 mm WF foam
17. Áklæði
18. Áklæði (litað flauel)
19. 30 g/m2 fylling
20. 17 mm HYP foam
21. Áklæði (grátt)
20%
AFSLÁTTUR
af Regency á meðan
birgðir endast.
Komdu og leggstu í draumarúmið!
Regency er sérlega vandað heilsu rúm frá Spring Air.
Gerðu kröfur um gæði – Spring Air stenst þær.
Uppbygging Spring Air REGENCY heilsudýnunnar
BriT-pop riSi TiL LandSinS
Hljómsveitin Suede er væntanleg
til landsins í október. Hljómsveitin
er ein af risum britpop-senunnar
svokölluðu sem var ein stærsta
hreyfingin í breskri tónlist á tíunda
áratugnum. Suede hefur oft verið
sett á stall með hljómsveitunum
Oasis, Blur og Pulp sem toppa brit-
pop-hreyfingarinnar, The big four,
og var meðal annars kölluð besta
nýja bandið í Bretlandi af tón-
listarpressunni árið 1992.
FeriLL BjörgvinS rakinn
Yfirlitssýning um feril
söngvarans Björg-
vins Halldórsson-
ar verður opnuð
12. nóvember
í Rokksafninu
í Reykjanesbæ.
Sýningin tekur
við af yfirlitssýn-
ingu um Pál Óskar og
mun standa næsta árið.
Söngvarinn hefur verið iðinn við
að safna munum og minningum frá
ferlinum og segir söfnunaráráttuna
komna á „hættulegt stig“.
TónLiSTarhÁTíð í STað
aFmæLiS
Jón Már
Ásbjörnsson
ákvað að
fagna 25
ára afmæli
sínu á
óhefðbundinn
hátt. Hann er
búinn að bóka fjórtán hljómsveitir
til þess að spila á sinni eigin tón-
listarhátíð. Skipulagning hefur
staðið yfir frá því í júlí og hátíðin
kallast Gleðileg Jón.
ChLoë FyLgir kiTTy Á riFF
Leikkonan Chloë Sevigny er
heiðursgestur kvikmyndahátíðar-
innar RIFF í ár. Hún sýnir jafnframt
stuttmyndina Kitty á hátíðinni, en
myndin er frumraun hennar sem
leikstjóri. Stuttmyndin Kitty er
byggð á samnefndri smásögu Pauls
Bowles frá árinu 1980 og segir frá
ungri stúlku að nafni Kitty sem
breytist í kött. Myndin
skartar Ione Skye,
Lee Meriwether
og Edie Yvonne í
aðalhlutverkum.
Frækin frænka
Frænka Árdísar, Elsa Kristín Sig-
urðardóttir, er einn reynslumesti
aðstoðarökumaður landsins.
Hún var einnig fyrsta konan til að
keppa erlendis í ralli. Í grein sem
birtist í Morgunblaðinu árið 1998
segir: „Elsa Kristín Sigurðardóttir
var eini kvenkyns keppandinn
í rallinu, ók með föður sínum,
Sigurði Óla Gunnarssyni. Hún er
aðeins fimmtán ára gömul í sæti
aðstoðarökumanns.“
2 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r58 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð