Fréttablaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 65
Námsleyfi grunnskólakennara og
skólastjórnenda skólaárið 2016–2017
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum um
námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla
skólaárið 2016–2017. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við
úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist:
• hagnýtu læsi og lesskilningi í öllum námsgreinum
• jafnrétti og lýðræði
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga
www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar
gildar. Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar
upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2015.
Umsækjandi sem æskir námsleyfis skal að lágmarki
fullnægja eftirfarandi skilyrðum, sbr. reglur um
Námsleyfasjóð:
a) Hafa, þegar sótt er um námsleyfi, gegnt starfi í 10
ár samtals við kennslu, ráðgjöf eða stjórnun í
grunnskóla, í eigi minna en hálfu starfi, og verið
samfellt í starfi sl. fjögur ár.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða
aðila sem stofnað er til með samstarfi
sveitarfélaga og taka laun samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Kennarasambands Íslands vegna
grunnskólans.
c) Ljúka á námstímanum 60 ECTS eininga
háskólanámi, eða jafngildu háskólanámi, miðað
við 1/1 námsleyfi, og skal námið miða að því að
nýtast viðkomandi í því starfi sem hann er ráðinn
til að sinna.
Reglur um Námsleyfasjóð og viðmiðunarreglur um laun í
námsleyfi er að finna á vefsvæði Námsleyfasjóðs,
www.samband.is/namsleyfasjodur og eru umsækjendur
hvattir til að kynna sér þær.
Nánari upplýsingar veitir Klara E. Finnbogadóttir
í síma 515 4900 eða í tölvupósti á
klara.e.finnbogadottir@samband.is
Námsleyfi grunnskólakennara
og skólastjórnenda 2014–2015
Stjórn Námsleyfasjóð lýsir eftir umsóknum
námsleyfi gru nskóla ara og stjórne da grunnskóla
skólaárið 2014–2015. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að við
úthlutun verði sett í forgang nám sem tengist
• kennaranum/stjórnandanum sem leiðtoga
í lærdómssamfélagi
• mati á námi með hliðsjón af nýrri aðalnámskrá
grunnskóla
Skal allt að 1/3 námsleyfa úthlutað vegna þessa.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga
www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar
gildar. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2013.
Umsækjandi, se æskir námsleyfis, skal fullnægja
eftirfarandi skilyrðum og skuldbindingum, sbr. reglur um
Námsleyfasjóð:
a) Hafa gegnt starfi í 10 ár samtals við kennslu, ráðgjöf
eða stjórnun í grunnskóla, í eigi minna en hálfu starfi,
og verið í starfi sl. fjögur ár.
b) Vera fastráðinn starfsmaður sveitarfélags eða aðila
sem stofnað er til með samstarfi sveitarfélaga og
taka laun samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara
eða kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Skólastjórafélags Íslands.
c) Ljúka 60 ECTS eininga háskólanámi eða sambærilegu
námi, miðað við 1/1 námsleyfi, og skal námið miða
að því ð nýtast viðkom ndi í því starfi sem hann er
ráðinn til að sinna.
d) Að loknu námsleyfi skal námleyfishafi senda stjórn
sjóðsins innan fjögurra mánaða staðfest vottorð
skóla um nám í námsleyfinu.
e) Enginn getur fengið hærri fjárhæð í námsleyfi en
sem nemur tveggja ára föstum launum á starfsævi
viðkomandi.
f) Laun í námsleyfi miðast við starfshlutfall námsleyfis-
þega næsta ár áður en námsleyfi hefst eða meðaltal
síðustu þriggja ára ef það er hærra.
Nánari upplýsingar veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515
4900 eða í tölvupósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is
Jöfnunarstyrkur
til náms
Umsóknarfrestur á haustönn 2015 er til
15. október n.k.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána
hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði.
Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem stunda
nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili
og fjölskyldu sinni vegna náms).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám
frá lögheimili og fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að
kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd