Fréttablaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 91
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þökkum fyrir alla umhyggjuna og
auðsýnda samúð vegna fráfalls okkar
yndislegu ömmu og mömmu,
Bryndísar Margrétar
Friðþjófsdóttur
frá Vatneyri við Patreksfjörð.
Fjölskylda og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna fráfalls elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
Ingibjargar Árnadóttur
áður til heimilis að Mánavegi 1,
Selfossi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fossheima
fyrir góða umönnun og stuðning á erfiðum tíma.
Einar Sigurðsson
Vilborg Árný Einarsdóttir Einar Hólm Ólafsson
Sigurður Kristinn Einarsson
Jarþrúður Einarsdóttir Sigurbjörn Árnason
Margrét Einarsdóttir
Sonja Ingibjörg Einarsdóttir Hrafn Stefánsson
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hólm Kr. Dýrfjörð
frá Siglufirði,
lést á dvalarheimilinu Grund þann
19. ágúst sl. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
1. september kl. 13.00.
Birna Dýrfjörð
Anna Dýrfjörð Skúli Sigurðsson
Erla Dýrfjörð
Guðmunda Dýrfjörð Birgir Vilhelmsson
Kristján Dýrfjörð
Ragnheiður Sigurðardóttir Finnur Jóhannsson
Sigmundur Dýrfjörð Berglind Guðbrandsdóttir
og afabörn.
Kæru ættingjar og vinir!
Okkar bestu þakkir fyrir ræktarsemi
og vináttu við fráfall mannsins míns
og pabba okkar,
Hauks Valtýssonar
Víðilundi 24, áður Ásvegi 19, Akureyri.
Starfsfólk á Kristnesi og í Kollugerði/
Lögmannshlíð fær alúðarþakkir fyrir góða umönnun og
ljúfmennsku í veikindum hans.
Það gladdi okkur að sjá ykkur svo mörg þann 24. ágúst.
Valborg Svavarsdóttir
Helga, Stefanía, Svava og fjölskyldur.
Bróðir okkar,
Reynir Friðfinnsson
húsasmiður frá Baugaseli,
Fjólugötu 11, Akureyri,
andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar
21. ágúst sl. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn
3. september kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélag Akureyrar.
Ingimar Friðfinnsson
Ari Friðfinnsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, bróðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ársæll Þorsteinsson
matreiðslumeistari og fv. bryti,
Skúlagötu 20,
sem lést þriðjudaginn 18. ágúst,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 31. ágúst kl. 15.
Guðlaug Ársælsdóttir Eyþór Vilhjálmsson
Þóra Ársælsdóttir Páll Hjálmur Hilmarsson
Ragna Ársælsdóttir Haraldur R. Gunnarsson
Björg Ársælsdóttir Arnar Ólafsson
Guðný Þorsteinsdóttir Þorleifur Hávarðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Ásgeir Helgi Halldórsson
lést á heimili sínu 25. ágúst sl.
Hann verður jarðsunginn frá Seljakirkju
8. september kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið og minningarsjóð Karitas.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas fyrir
frábæra umönnun.
Erla Jónsdóttir
Halldór Marías Ásgeirsson Alexandra Maria Stegeman
Kristján Elías Ásgeirsson Heiða Björk Ólafsdóttir
Garðar Gunnar Ásgeirsson Ásta Ingunn Sævarsdóttir
Ásgeir Jóhann Ásgeirsson Hildur Eva Sigurðardóttir
barnabörn og systkini.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
okkar ástkæru
Hönnu Stefánsdóttur
Austurbyggð 17,
áður Víðilundi 24.
Sérstakar þakkir til félagsstarfsins
og dagvistunarinnar í Víðilundi, heimahjúkrunar
og heimaþjónustu Akureyrar, starfsfólks á Hlíð
í skammtímavistun, Aspar- og Beykihlíð og
tómstundastarfsins fyrir allt sem gert var fyrir hana,
hún mat það mikils.
Stefán J. Guðmundsson
Guðm. Ómar Guðmundsson Anna Ingólfsdóttir
Haraldur H. Guðmundsson Helga Ólafsdóttir
Kristján Antonsson Dóróthea Valdimarsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
„Við erum aðallega í hamingjugöldrum,“
segir Mörður Ottesen hlæjandi þegar hann
er spurður frétta af vistræktarnámskeiðinu
sem hann stendur fyrir í Hlíðardalsskóla
í Ölfusi þessa dagana og alla næstu viku.
Er þetta þá ekki bara gamla hippastemn-
ingin, spyr ég?
„Það mætti kalla okkur hippalíki nema
hvað við erum eiturlyfjalaus og akadem-
ískari en þeir. Hipparnir vildu frið en vissu
ekki hvernig þeir ættu að ná honum. Við
viljum betra líf og vitum nákvæmlega
hvernig við eigum að fara að því. Við erum
með lausnir fyrir umhverfið í kringum
okkur,“ svarar hann og hljómar sann-
færandi.
Hann segir markmið námskeiðsins að
mennta hóp vistræktarhönnuða og gera
þátttakendum fært að tileinka sér vist-
rækt, miðla kunnáttu sinni og starfa að
verkefnum eftir þeirri hugmyndafræði.
„Vistrækt gengur út á að vinna með jörð-
inni og styrkja hana, í stað þess að ganga á
hana og auðlindir hennar með einhæfum
búskaparháttum, notkun tilbúins áburðar
og eiturefna.“ Hann segir umhyggju fyrir
jörðinni einnig umhyggju fyrir mann-
kyninu því heilbrigðari jörð þýði betra
umhverfi fyrir manninn. „Á námskeiðinu
læra þátttakendur hvernig má fá meiri
uppskeru af landinu án notkunar áburðar
og eiturefna og nýta auðlindir heimsins
mun betur en gert er.“
Tuttugu og fimm manns eru á nám-
skeiðinu í Hlíðardalsskóla, þar af tíu
Íslendingar. Hinir eru frá nokkrum Evr-
ópulöndum, Kanada, Bandaríkjunum og
einn nemendanna gerði sér ferð frá Kosta-
ríka, að sögn Marðar. Hann er afar ánægð-
ur með kennarana tvo sem honum tókst
að lokka til landsins, segir þá heimsþekkta
fyrir frumkvöðlastarf sitt. „Það þykir
tíðindum sæta að Albert Bates og Robyn
Francis kenni saman en þau hafa kennt
vistrækt í áravís um allan heim. Albert
er umhverfislögfræðingur frá Bandaríkj-
unum og brautryðjandi á sviði vistræktar
og Robyn er frá Ástralíu, hún hefur þróað
kennsluefni og kennt á meira en hundrað
námskeiðum.“
Sjálfur kveðst Mörður hafa lifað sam-
kvæmt kenningum vistræktunar í tvö ár,
fyrst á Íslandi og síðar Noregi. „Í sumar var
ég með tvo hektara af landi og vinn að því
ásamt fleirum að byggja þar upp vistvænt
þorp frá grunni.“
Þann 7. september segir hann norskan
snilling verða með námskeið í Hlíðardals-
skóla, sá ræktar ekki færri en 200 ætar
fjölærar plöntur í garðinum sínum í Þránd-
heimi. En telur hann að þessi vistræktar-
stefna eigi eftir að ná fótfestu á Íslandi?
„Já, ég er algerlega fullviss um það. Það
er bara verst hversu erfitt er að fá fjármagn
í græn verkefni hér á landi.“
gun@frettabladid.is
Byggir upp vistvænt þorp
Nú stendur yfir námskeið í vistrækt í Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Mörður Ottesen stendur
fyrir námskeiðinu. Sjálfur hefur Mörður lifað samkvæmt vistræktarkenningum í tvö ár.
Dísurnar koma fram á stofu-
tónleikum á Gljúfrasteini á
morgun klukkan 16. Sá hópur
er skipaður þeim Eydísi Franz-
dóttur, óbó og enskt horn,
Bryndísi Pálsdóttur fiðlu, Her-
dísi Önnu Jónsdóttur víólu og
Bryndísi Björgvinsdóttur selló
sem hafa starfað saman frá
árinu 1997.
Á verkaskránni eru flest
þeirra verka sem skrifuð
hafa verið fyrir þessa hljóð-
færaskipan, en auk þess hafa
þær Dísurnar frumflutt ný
íslensk verk, sem sum hver
hafa verið samin sérstak-
lega fyrir þær. Fluttur verður
óbókvartett Mozarts og stef
úr Fellini-myndum eftir Nino
Rota í útsetningu Jóhanns G.
Jóhannssonar.
Leynigestur á tónleikunum
verður söngdívan í Túnfæti,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem
flytur tvö sönglög eftir Jóhann
G. Jóhannsson við ljóð Hall-
dórs Laxness, Atlantshafið og
Bráðum kemur betri tíð.
gun@frettabladid.is
Fjórar dísur og Diddú
Þau eru lykilfólk á námskeiðinu, Albert Bates, Robyn Francis og Mörður Ottesen. Mynd/Sif Yraola
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 39L a U G a R D a G U R 2 9 . á G ú s t 2 0 1 5