Fréttablaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 31
Við bjóðum afar endingargott og slitsterkt viðarparket frá Parador, bæði planka- og stafaparket, á frá-
bæru verði,“ segir Kristján Erlendsson,
deildarstjóri í gólfefnadeild Bauhaus, en
nýlega var úrvalið af parketi aukið veru-
lega í versluninni.
„Við erum með 16 tegundir af stafa- og
plankaparketi. Þykktin á parketinu er frá
11,5-15mm og með spónþykkt frá 2,5 mm
upp í 3,8 mm. Þá erum við einnig með
eina tegund af fiskibeinaparketi úr eik,
sem er fljótandi. Fiskibeinaparket er yfir-
leitt límt niður og ég þekki ekki til þess að
það fáist fljótandi annars staðar en hér í
Bauhaus. Því er einfaldlega smellt saman
á einfaldan máta,“ segir Kristján.
„Þetta eru allt nýjar tegundir hjá okkur.
Við höfðum einungis verið með eik rustik
stafaparket sem nýtur mikilla vinsælda
en erum nú að bæta vel við úrvalið. Allt
parket hjá okkur er fljótandi smellu parket
sem auðvelt er að leggja. Allt gólfefni er
til á lager hjá okkur og afgreitt strax. Við
bjóðum frábært verð og hjá okkur er hægt
að gera góð kaup. Viðarparketið hjá okkur
er frá 3.995 krónum á fermetra.“
Í Bauhaus er einnig að finna gott úrval
af harðparketi frá Logoclic sem Krist-
ján segir vinsælt gólfefni. Harðparket-
ið fæst bæði sem planka- og stafaparket.
Það fæst í þremur slitflokkum og einnig
í mismunandi þykktum og sumar gerðir
eru með áföstu undirlagi.
„Harðparketið er mjög slitsterkt gólf-
efni sem þægilegt er að leggja. Í hill-
unum hjá okkur eigum við einnig til
úrval af hreinsiefnum sérstaklega fyrir
harðparketið og einnig viðgerðarefni ef
kvarnast upp úr fjölunum,“ segir Krist-
ján. „Einnig eigum við til vínylparket
sem kemur í fjölum líkt og harðparket-
ið. Þetta er 4-5 mm þykkur vínyll sem
þolir nánast allt.“
„Huga þarf að undirlagi þegar leggja á
parket á gólf og hér í versluninni eigum
við til fjölda tegunda af undirlagi, eftir
því hvað við á, hljóðeinangrandi, með
rakavörn og svo framvegis. Þá eigum
við gólflista í miklu úrvali og á frábæru
verði, frá 290 krónur lengdarmetrinn og
einnig nokkrar gerðir samskeytalista til
að tengja saman mismunandi gólfefni.“
Stóraukið úrval og frábært verð
Verslunin Bauhaus býður gott úrval gólfefna og bætti nýverið við fjölda tegunda af viðarparketi í hillurnar. Allt parket er fljótandi
smelluparket sem auðvelt er að leggja. Þá er einnig gott úrval af harðparketi í versluninni og undirlagi af ýmsum gerðum.
Verslunin Bauhaus býður 16 tegundir af viðarparketi frá Pardor, stafa- og plankaparketi. Þá er einnig gott úrval
af harðparketi og vínylparketi í versluninni.
Allt parket í Bauhaus er fljótandi og smellt. Meðal
nýjunga í versluninni er fiskibeinaparket úr eik sem
ekki er límt niður.
Allt gólfefni í versluninni Bauhaus er til á lager og afgreitt strax en verslunin hefur stóraukið úrval sitt af parketi. „Við bjóðum frábært verð, hjá okkur er hægt að gera góð kaup,” segir Kristján Erlendsson, deildarstjóri í gólfefnadeild
Bauhaus. Mynd/GVA
Parket
LaUGarDaGUr 29. áGúst 2015 Kynningarblað Bauhaus, Húsasmiðjan og Birgisson.