Fréttablaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 42
Fólk| helgin
Við leggjum áherslu á fjölbreytta dagskrá um alla sveit. Dagarnir hófust á framsögu í Safnahúsi Borgar
fjarðar um sýninguna Gleym mér ei sem
var sett upp í Safnahúsinu til að minnast
hundrað ára kosningaréttar og kjörgengis
íslenskra kvenna. Við hefjum svo daginn í
dag á Hvalfjarðarhlaupi. Það verður ræst
klukkan tíu og verða farnar þrjár vega
lengdir,“ upplýsir Heiður Hallfreðsdóttir
sem hefur yfirumsjón með dögunum. „Þá
mun Sjóbaðsfélag Akraness standa fyrir
Helgusundi klukkan ellefu. Sundið er á
söguslóðum Harðar sögu og Hólmverja
þar sem Helga Haraldsdóttir synti 1.600
metra leið úr Geirshólma og í land í Helgu
vík.“
Á Þórisstöðum í Svínadal verður
haldinn sveitamarkaður og hefur hann
að sögn Heiðar aldrei verið stærri. „Þar
mun Sigríður Lára Haraldsdóttir bjóða
upp á fjölskyldujóga klukkan hálf eitt, en
hún mun jafnframt bjóða upp á útijóga í
skógræktinni hjá Fannahlíð klukkan ellefu
á sunnudag. Partíljón Írskra daga mun
halda uppi stuðinu með spili og söng og
geta börn fengið að fara á hestbak í boði
hestamannafélagsins Dreyra milli tvö og
fjögur. Á Þórisstöðum verður líka dráttar
vélasýning svo eitthvað sé nefnt.“
Í Stjórnsýsluhúsinu á Innrimel í Mela
hverfi verður bútasaumsfélagið með
sýnikennslu, sölu og sýningu á verkum. Í
hlöðunni á Bjarteyjarsandi verða svo súpu
tónleikar undir yfirskriftinni Síð sumar
tónar og sveitarómanz. Þar munu María
Jónsdóttir söngkona og Óskar Magnússon
gítarleikari flytja ástarljóð ýmissa tón
skálda frá liðnum tímum til okkar daga auk
þess sem framreidd verður dýrindis upp
skerusúpa með heimabökuðu brauði.
Á sunnudag verður ekki síður mikið um
að vera en þá verður meðal annars opnuð
sýning í Stjórnsýsluhúsinu á verkum nem
enda á umhverfisskipulagsbraut Land
búnaðarháskóla Íslands. „Þau tóku fyrir
nokkra staði í Hvalfjarðarsveit, rýndu
í staðhætti og sérstöðu og bregða svo
upp framtíðarsviðsmyndum af völdum
svæðum,“ upplýsir Heiður. Sýningin verð
ur opnuð klukkan eitt en þá hefst jafn
framt gönguferð undir leiðsögn Kristins
Zimsen, landeiganda í StóraBotni. Gengið
verður frá StóraBotnshliði að fossinum
Glym og má gera ráð fyrir um tveggja til
þriggja tíma göngu. Þá býður Vatnaskógur
heim milli 14 og 17 og sýnir stuttmyndina
Áfram að markinu sem var gerð í tilefni
af 90 ára afmæli Vatnaskógar. Þar verður
líka boðið upp á bátalán, hoppukastala og
gönguferð um staðinn.
„Við ljúkum svo hátíðinni með glæsi
legri sýningu í Hallgrímskirkju í Saurbæ
þar sem Steinunn Jóhannesdóttir, rit
höfundur og leikkona, mun segja örlaga
sögu Hallgríms Péturssonar og Guðríðar
Símonardóttur. Hún mun koma inn á
mikilvæg atriði í þroskaferli Hallgríms og
tengsl þeirra hjóna við háa sem lága á 17.
öld. Hún mun fjalla um ástir þeirra, örlög
og skáldafrægð en Hallgrímur samdi sín
bestu ljóð og sálma í Saurbæ.“ Heiður
segir þetta einstakt tækifæri til að hlýða á
sögu þeirra á heimaslóðum en aðgangur
er ókeypis.
Aðspurð segir Heiður Hvalfjarðar
daga komna til að vera. „Hátíðin fer bara
vaxandi. Í upphafi var hún haldin að frum
kvæði ferðaþjónustuaðila í sveitinni en
síðustu ár hefur menningarmálanefnd
Hvalfjarðarsveitar komið að skipulagn
ingu hennar.“
Á sunnudeginum verður opið á her
námssetrinu á Hlöðum en þar verður
jafnframt frítt í sund alla helgina. Meðal
annarra dagskrárliða eru dýraskoðun,
ljóðaupplestur, kökuhlaðborð og fleira.
Allar nánari upplýsingar um dagskrána
og tímasetningar má finna á www.
hvalfjardar dagar.is. n vera@365.is
líflegt í hVal
firði um helgina
Dagskrá um alla sVeit Hvalfjarðardagar hófust í gær og standa fram á
sunnudag. Þeir hafa verið haldnir í nokkur ár en þetta er í annað sinn sem dag-
skráin spannar heila helgi. Dagarnir eru hugsaðir fyrir innansveitarmenn jafnt
sem gesti sem vilja sjá og njóta þess sem fjörðurinn hefur upp á að bjóða.
heiður hall
freðsDóttir
Bátalán
og hoppu
kastalar
Vatnaskógur býður
heim milli 14 og 17
á sunnudag.
lokahnykkurinn Örlagasaga Hallgríms og Guðríðar verður flutt í Hall-
grímskirkju í Saurbæ klukkan 16.30 á sunnudag.
ljósmynDasamkeppni Í tengslum við hátíðina er efnt til ljósmyndakeppni. Þemað er umhverfi og náttúra í sinni víðustu mynd
og fær sigurvegarinn gjafabréf frá Hótel Glym að launum.
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Fr estyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
S námsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
Freestyle
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ýmis starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dansskoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Dansfélag Reykjavíkur
Salsa
Break
Zumba
Hip Hop
eestyle
Brúðarvals
Barnadansar
amkvæmisdansar
Sérnámsskeið fyrir hópa
Börn - Unglingar - Fullorðnir
Ý is starfsmanna-, stéttar- og sveitarfélög
veita styrki vegna dansnámskeiða.
Innritun
og upplýsingar
á dan skoli.is eða
í síma 553 6645
Valsheimilið Hlíðarenda | sími 553 6645 | dans@dansskoli.is
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
Danskennarasamband Íslands | Faglæ ðir danskenn rar
www.dansskoli.is | dan @dansskoli.is | sími 553 6645