Morgunblaðið - 03.09.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rök og markmið skortir í hugmynd-
um Lilju Alfreðsdóttur menntamála-
ráðherra um að Íslendingar eigi að
sækja fleiri íslensk handrit til Dan-
merkur. Réttast
væri því að hætta
frekari umleitun-
um, segir Már
Jónsson, prófess-
or í sagnfræði við
Háskóla Íslands.
Hann hefur lengi
fengist við rann-
sóknir á íslensk-
um handritum og
skrifað meðal
annars bækur um Árna Magnússon,
prófessor og handritasafnara. Er
hann því vel kunnugur þessum forna
menningararfi Íslendinga.
Aukið hillupláss kallar
ekki á fleiri handrit
Handritamálið svokallaða hefur
nú verið endurvakið að frumkvæði
íslenskra stjórnvalda. Vel á annað
þúsund íslenskra handrita eru í
Kaupmannahöfn, flest í Árnasafni en
mörg í Konunglegu bókhlöðunni.
Safni Árni var á sínum tíma skipt á
milli Íslands og Danmerkur, þannig
að handrit með íslensku efni voru af-
hent en handrit með erlendu efni,
svo sem konungasögur og heilagra-
mannasögur, urðu eftir. Þá ber að
geta þess að íslensk handrit má finna
í söfnum í Svíþjóð, Noregi, Englandi,
Skotlandi, Írlandi, Þýskalandi,
Frakklandi og Bandaríkjunum.
„Einu rökin sem hafa komið fram
fyrir því að fleiri handrit verði
„endurheimt“ frá Danmörku eða
þeim „skilað“ eru að nú séu að hefj-
ast framkvæmdir við Hús íslensk-
unnar í Reykjavík og að þar verði
góð aðstaða til varðveislu, rannsókna
og miðlunar. Það er fagnaðarefni að
aðstaða hinnar íslensku stofnunar
verði bætt en aukið hillupláss kallar
ekki á fleiri handrit,“ segir Már.
„Einhverjum hefur samt dottið í hug
að vert væri að leita á fyrri mið til að-
fanga og rjúfa það samkomulag sem
dönsk og íslensk stjórnvöld gerðu
með sér árið 1961. Það er afleit hug-
mynd og fráleitt að víkja frá þeirri
góðu sátt sem hefur ríkt um samn-
inginn alla tíð. Áherslan á að vera á
aukið samstarf en ekki deilur.“
Már bendir á að afhending hand-
rita árin 1971-1997 hafi verið sam-
kvæmt óskalista íslenskra fræði-
manna, sem þó urðu að gefa eftir um
ýmis atriði. Almenn ánægja hafi ver-
ið með niðurstöðuna og þegar fyrstu
handritin komu til landsins 21. apríl
1971 kepptust menn við að fagna
endanlegum lyktum málsins. Nú
segi menntamálaráðherra að sér
þyki eðlilegt að öll handrit sem eftir
urðu í Danmörku komi heim.
Óljósar ástæður og kröfur
„Þetta orðalag, að koma heim, set-
ur málið á upphafsreit, því hér væri
komin sama krafa og lögð var fram
af hálfu íslenskra stjórnvalda á 5. og
6. áratug síðustu aldar,“ segir Már
Jónsson um málið og bætir við að
síðustu:
„Ekki er komið fram hver kröfu-
gerðin verður, annað en að kominn
er starfshópur fjögurra ráðuneyta
og Árnastofnunar. Mér hefði þótt
duga að læða því að dönskum stjórn-
völdum hvort þau myndu ekki vilja
gefa okkur fáein handrit þegar að
því kemur að Hús íslenskunnar verð-
ur vígt. Þess í stað á að vaða í form-
legt ferli með óljósan málflutning,
bæði um ástæður og kröfur.“
Endurheimt handrita afleit hugmynd
Gamalt mál er sett aftur á upphafsreit Rökin vantar, segir prófessor við HÍ Ekki sé grafið und-
an Árnasafni í Kaupmannahöfn Segir aukið hillupláss í Húsi íslenskunnar ekki kalla á fleiri handrit
Að kennslu- og rannsóknar-
starf í íslenskum fræðum við
Hafnarháskóla hafi verið lagt
niður má ekki blanda saman
við handritamál, segir Már
Jónsson, prófessor í sagnfræði
við HÍ.
„Fjárveitingar til háskóla eru
ekki mælikvarði á faglegan
metnað. Það ætti líka að vera
einfalt fyrir íslensk stjórnvöld
að semja um ráðstafanir, svip-
að því að veita fé til íslensku-
kennslu í Manitoba í Kanada.
Þar væri líklegra til árangurs
en að heimta fleiri handrit og
þannig grafa undan Árnasafni í
Höfn.“
Meira fé til
rannsókna
SAMIÐ SÉ VIÐ DANI
Morgunblaðið/Hanna
Flateyjarbók Fræðimenn stunda rannsóknastarf á íslenskum handritum, bæði hér á landi og í Kaupmannahöfn.
Már Jónsson
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Axelsbúð Akranesi
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“