Morgunblaðið - 03.09.2019, Side 34

Morgunblaðið - 03.09.2019, Side 34
Í LAUGARDAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Öllum sigrum ber að fagna. Líka naumum 1:0 heimasigrum gegn lið- um sem eiga að vera talsvert slakari. Sú tíð er liðin að hægt sé að ganga út frá því sem vísu að kvennalandslið Íslands í fótbolta valti yfir lið sem eru tveimur styrkleikaflokkum neð- ar á Evróputöflunni með fimm til átta marka mun. Elín Metta Jensen tryggði þennan nauma sigur á Slóvakíu, 1:0, á Laugardalsvellinum í gærkvöld með laglegu marki um miðjan síðari hálf- leik. Þrettánda landsliðsmark henn- ar og það fimmta á þessu ári. Elín gerði þar með þrjú af mörkunum fimm gegn Ungverjalandi og Slóv- akíu í þessari fyrstu leikjatörn und- ankeppni Evrópumótsins, lagði upp eitt að auki, og er búin að festa sig vel í sessi sem landsliðsframherji númer eitt. Þó að íslenska liðið væri mun sterkari aðilinn átti það í talsverðum vandræðum með að brjóta niður vel skipulagt lið Slóvaka, sem lágu aftarlega og gáfu fá færi á sér. Þá var Maria Korenciová, markvörður AC Milan, afar örugg í markinu, af- stýrði hvað eftir annað hættu með ákveðnum úthlaupum og varði m.a. glæsilega frá Hlín Eiríksdóttur rétt áður en Elín Metta skoraði. Slóvakía er með lakara lið en Ungverjaland en leikur öflugri varnarleik og því er erfiðara að skapa sér færi gegn því. Þess vegna er svo dýrmætt að í fremstu víglínu sé sóknarmaður með gott markanef sem sé líklegur til að gera út um jöfnu leikina. Elín virðist vera að verða slíkur framherji en um leið saknar maður þess að Dagný Brynjarsdóttir og Sara Björk Gunn- arsdóttir, með líkamsstyrk sinn og skallatækni, láti meira að sér kveða í hornspyrnum og aukaspyrnum Ís- lands, eða einhverri af þeim mörgu góðu fyrirgjöfum sem kantmenn- irnir áttu í leiknum. Á of löngum köflum í leiknum var of lítið að ger- ast hjá íslenska liðinu á fremsta þriðjungi vallarins. Vissulega að hluta til vegna öflugs varnarleiks mótherjanna en líka vegna þess að það skorti meira hugmyndaflug og áræðni á köflum. Sluppu fyrir horn Það munaði líka sáralitlu að ís- lenska liðið kastaði tveimur stigum út um gluggann því á 85. mínútu átti Ásta Eir Árnadóttir afar slæma sendingu til baka. Upp úr því komst Patrícia Hmírová í dauðafæri en skaut hárfínt framhjá markinu. Þar hefði íslenska liðið getað fengið sannkallað kjaftshögg sem erfitt hefði verið að svara. Ísland er komið með sex stig eftir fyrstu tvo leikina. Orðið „skyldusigr- ar“ hefur verið ofnotað í aðdraganda þessara leikja en er samt í fullu gildi. Þessi undankeppni er einfaldlega þannig að Ísland verður að vinna leikina sex gegn Ungverjalandi, Slóvakíu og Lettlandi til að vera með sem besta stöðu þegar kemur að leikjunum tveimur við Svía í lokin. Verði aðrir riðlar hagstæðir gæti ís- lenska liðið sloppið inn á EM með 18 stigum úr þessum sex leikjum, hvernig sem síðan fer gegn HM- bronsliði Svía. En leikurinn í gærkvöld minnir okkur rækilega á að það getur verið stutt í slysið. Íslenska liðinu gekk illa að brjóta niður bæði Ungverja og Slóvaka og getur búist við enn meiri mótspyrnu í útileikjunum á næsta ári. Fyrst þarf þó að sigrast á Lettum á útivelli í október. Það er næsta verkefni Jóns Þórs Hauks- sonar og hans kvenna. Léku með sorgarbönd Aðdragandi leiksins var erfiður því Sif Atladóttir þurfti að draga sig út úr hópnum. Faðir hennar, Atli Eðvaldsson, lést fyrr um daginn og íslenska landsliðið lék með sorgar- bönd til að minnast fyrrverandi fyrirliða og þjálfara karlalandsliðs Íslands. Aftur gerði Elín gæfu- muninn  Sex stig komin og Elín Metta Jensen tryggði nauman sigur á Slóvökum Færi Hlín Eiríksdóttir í einu af bestu marktækifærum Íslands í leiknum en slóvakíski markvörð- urinn varði glæsilega frá henni. 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla HANDBOLTI Danmörk Skanderborg – Bjerringbro/Silk ...... 25:36  Þráinn Orri Jónsson skoraði 3 mörk fyr- ir Bjerringbro/Silkeborg. Fredericia – GOG ................................ 33:30  Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk fyrir GOG og Óðinn Þór Ríkharðsson 1. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 5 skot af 27 í marki liðsins. Undankeppni EM kvenna F-RIÐILL: Ísland – Slóvakía ...................................... 1:0 Staðan: Ísland 2 2 0 0 5:1 6 Lettland 0 0 0 0 0:0 0 Svíþjóð 0 0 0 0 0:0 0 Slóvakía 1 0 0 1 0:1 0 Ungverjaland 1 0 0 1 1:4 0  Lettland og Svíþjóð mætast í dag.  Ísland mætir Lettlandi á útivelli 7. októ- ber en hinir fimm leikir íslenska liðsins fara fram á árinu 2020. E-RIÐILL: Albanía – Finnland................................... 0:3  Skotland vann Kýpur 8:0 í fyrsta leik rið- ilsins og Portúgal er fimmta liðið. Frakkland B-deild: Grenoble – Lens....................................... 2:2  Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannahópi Grenoble. KNATTSPYRNA Sandra Sigurðardóttir: Ekkert út á Söndru að setja. Hún var örugg þegar boltinn var í nálægð við hana. En að mestu rólegt kvöld hjá henni í markinu. Ásta Eir Árnadóttir: Fékk tæki- færi í bakvarðarstöðunni. Ágæt viðleitni hjá henni til að fara fram og styðja við sóknina. Tapaði hins vegar boltanum tvisvar á hættu- legum stöðum og í síðara skiptið fékk Slóvakía dauðafæri. Glódís Perla Viggósdóttir: Allar aðgerðir hennar virka áreynslulitlar en fékk svo sem ekki mikið að gera í vörninni. Lagði upp mark Íslands með sendingu inn á teiginn. Ingibjörg Sigurðardóttir: Eins og með Söndru og Glódísi var leik- urinn frekar rólegur fyrir hana. Vanari miðvarðarstöðunni en bakvarðarstöðunni. Hallbera Guðný Gísladóttir: Þurfti ekki að verjast mik- ið. Dældi boltanum inn á teiginn svo gott sem allan leikinn. Há- gæða fyrirgjafir þótt ekki hafi þær skilað marki þar sem and- stæðingarnir vörðust vel. Sara Björk Gunnarsdóttir: Var mjög virk í því að byggja upp sóknir og bjóða sig á miðsvæðinu. Gerði hins vegar fátt afgerandi í sókninni í þetta skiptið. Gunnhildur Yrsa Sigurðar- dóttir: Var grimm í barátt- unni og vann þá vinnu sem þarf að gera á miðjunni. Átti þátt í mark- inu með því að skalla til Elínar. Dagný Brynjarsdóttir: Nýttist ekki ýkja vel í þetta skiptið. Var hættuleg í tvígang og í annað skiptið skallaði hún rétt framhjá. Fór af velli á 79. mínútu. Svava Rós Guðmundsdóttir: Gekk ekki vel að finna leiðir í gegnum þétta vörn Slóvakíu frekar en samherjum hennar. Fór af velli á 55. mínútu. Elín Metta Jensen: 2019 virðist vera sumarið hennar Elínar. Skoraði eina mark leiksins og gerði það mjög snyrilega. Markheppin bæði með landsliðinu og Val um þessar mundir. Fanndís Friðriksdóttir: Var áræðin í fyrri hálfleik og reyndi að skapa marktækifæri. Fór af leikvelli á 62. mínútu. Hlín Eiríksdóttir: Var fersk eftir að hún kom inn á og átti tvær ágætar skottilraunir en markvörður Sló- vakíu sá við henni. Agla María Albertsdóttir: Fékk ekki mjög mikið að gera í opnu spili eftir að hún kom inn á en hornspyrnur hennar voru hættu- legar. Berglind Björg Þorvaldsdóttir: Fékk úr litlu að moða enda var hún ekki lengi inni á. Íslenska lið- ið gaf líka aðeins eftir á þeim tíma og sótti minna. Frammistaða leikmanna Íslands Daníel Leó Grét- arsson, varnar- maður norska liðsins Aalesund, var í gær kall- aður inn í A- landsliðshóp Ís- lands í knatt- spyrnu í fyrsta skipti. Hann leys- ir af hólmi Sverri Inga Ingason, leikmann grísku meistaranna PAOK, sem þurfti að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla. Daníel er 23 ára gamall og lék með upp- eldisliði sínu Grindavík til 2014 en hefur leikið með Aalesund frá 2015, þrjú tímabil í úrvalsdeild, en þang- að stefnir lið hans hraðbyri þar sem það er langefst í norsku B-deild- inni. Daníel hefur verið í byrjunar- liði í öllum leikjum ársins og skorað 3 mörk. vs@mbl.is Daníel nýliði í landsliðinu Daníel Leó Grétarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.