Morgunblaðið - 03.09.2019, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Jazzhátíð Reykjavíkur hefst á morg-
un með hinni árlegu „Jazzgöngu“.
Fjöldinn allur af erlendu og íslensku
tónlistarfólki mun þenja sín trompet
og leika á sín píanó á hátíðinni en
óvenjulega mikið er um samstarf er-
lends og íslensks tónlistarfólks á
þessari Jazzhátíð sem er sú þrítug-
asta í röðinni.
Sunna Gunn-
laugsdóttir, einn
af þremur skipu-
leggjendum há-
tíðarinnar, segir
aðspurð erfitt að
velja nokkra há-
punkta hátíðar-
innar enda þyki
skipuleggjendum
vænt um hvert
einasta atriði.
Erlendar tónlistarkonur séu þó
áberandi og er Sunna mjög spennt
fyrir tónlist þeirra.
„Það atvikaðist þannig að erlenda
tónlistarfólkið er aðallega frá Eng-
landi. Þá má fyrst nefna Lauru Jurd,
breskan trompetleikara. Stjarna
hennar hefur farið ört rísandi á
undanförnum árum og hún hefur
unnið til ýmissa verðlauna, sérstak-
lega fyrir framsæknar tónsmíðar.“
Hljómlaust tríó
Frá Bretlandi kemur einnig Tori
Freestone saxófónleikari með sitt
tríó. „Hún hefur verið að fá mjög
góða dóma undanfarið fyrir nýjustu
plötuna sína. Þetta er svona hljóm-
laust tríó, þarna er bassi, trommur
og saxófónn sem gefur ákveðið rými
til að spila inn í. Það er miklu meira
pláss fyrir hana að leika sér þegar
það er enginn hljómaspilari sem
vísar veginn,“ segir Sunna.
Frá Portúgal kemur trompetleik-
arinn Susana Santos Silva. „Hún
kemur ásamt sænskum bassaleik-
ara, Torbjorn Zetterberg. Þau verða
einnig í samvinnuverkefni með okk-
ar kæra Jóel Pálssyni og Einari
Scheving. Ég veit að Torbjorn hefur
verið mjög framarlega í sænsku
djasssenunni undanfarin ár og
Susana vakið athygli fyrir framsæk-
inn trompetleik.“
Af karlkyns tónlistarmönnum
nefnir Sunna helst tríóið Phronesis.
„Þar er einn Breti, einn Svíi og einn
Dani. Þetta er kraftmikill og svolítið
agressífur djass hjá þeim. Það er
engin lognmolla eða væmni í gangi,
þetta verður bara kýlt með krafti.“
Misrétti kynjanna í tónlistarheim-
inum er áberandi mótíf á hátíðinni
þetta árið. Ekki einungis vegna þess
hve mikil áhersla er á að gera kven-
kyns djasstónlistarmenn sýnilega
heldur einnig vegna umræðna sem
Ros Rigby, fyrrverandi forseti
Europe Jazz Network, mun leiða.
Þær fjalla um kynjahalla í alþjóð-
legu djasssenunni.
Sunna segir djasssenuna alltaf
hafa verið sérlega karllæga. „Konur
hafa átt mjög erfitt með að komast
inn í senuna og vera sýnilegar. Einu
konurnar sem eru sýnilegar og
standa upp úr ef maður lítur til baka
eru söngkonur en það voru kven-
kyns hljóðfæraleikarar líka í djass-
senunni sem eru ekki sýnilegir. Þeg-
ar Ross varð forseti Europe Jazz
Network þá setti hún það á oddinn
að auka meðvitund um þetta og tala
um það sem hægt er að gera. Það
eru konur í djasssenunni út um allan
heim en dagskrár djasshátíða eru
gjarnan mjög karllægar.
Það er kannski auðveldara að
bóka karlmennina vegna þess að
þeir eru bara svo miklu sýnilegri en
ef við ætlum að laga þetta fyrir al-
vöru þá þurfum við að fá konur upp á
svið þannig að ungar stúlkur sem
eru að læra finni sér fyrirmyndir í
djasssenunni.“
Nánd í Listasafni Íslands
Sunna segir að opnunarkvöld há-
tíðarinnar verði með öðru sniði en
áður. Það verður haldið í Listasafni
Íslands og verða þar atriði sem
bjóða upp á nánd. „Atriðin verða
mjög fjölbreytt, allt frá lýrískum og
ljúfum tónleikum Tómasar R. og
Eyþórs G. til framsækins einleiks
Hilmars Jenssonar gítarleikara þar
sem einhvers konar sköpun hljóð-
heims verður.“
Sunna segir að djasssenan á Ís-
landi sé í blóma en hún gæti dafnað
betur við réttu skilyrðin. „Það er
töluvert af fólki hérna sem er að
spila og semja og fara sínar eigin
leiðir. Því er senan hérlendis nokkuð
fjölbreytt en það vantar fleiri tón-
leikastaði í Reykjavík. Síðan Harpa
kom hefur verið erfitt að finna far-
veg fyrir tónleikahald.“
Djasssenan er hnattræn sena, að
sögn Sunnu, og því mikilvægt að
tónlistarfólk í djasssenunni fái tæki-
færi til að skapa tengsl. Það gerist til
að mynda á Jazzhátíð Reykjavíkur.
„Það er orðið svo mikilvægt í dag,
djasssenan er bara heimurinn og
það er mikilvægt fyrir djassleikara
að tengjast út í önnur lönd, annars
hættir manni til að festast ofan í ein-
hverri holu.“
Eins og áður segir hefst hátíðin á
morgun og lýkur á sunnudag. Vefur
hennar er á slóðinni reykjavikjazz.is.
Rétta kynjahalla af á Jazzhátíð
Erlendar tónlistarkonur áberandi Samspil íslenskra og erlendra listamanna óvenju mikið
Stór hluti erlendra gesta frá Bretlandi Framsækið tónlistarfólk, lýrík og kraftmikil tónlist
Ljósmynd/Rob Blackham
Bresk Tori Freestone er breskur saxófónleikari sem kemur fram á hátíðinni ásamt tveimur öðrum listamönnum.
Ljósmynd/Dave Stapleton
Portúgölsk Susana Santos Silva trompetleikari.
Ljósmynd/Peter van Breukelen
Alþjóðlegir Tríóið Phronesis kemur fram á hátíðinni.
Sunna
Gunnlaugsdóttir
Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og
Antoníu Hevesi píanóleikari koma
fram á fyrstu hádegistónleikum nýs
starfsárs tónleikaraðarinnar í
Hafnarborg kl. 12. Á tónleikunum,
sem bera yfirskriftina Táraflóð,
verða fluttar aríur eftir Händel,
Mozart og Puccini.
Berta Dröfn lauk mastersnámi í
söng við Conservatorio Monteverdi í
Bolzano á Ítalíu eftir burtfararpróf
frá Söngskólanum í Reykjavík.
„Hún hefur átt litríkan söngferil og
komið víða við, svo sem á Gala-
tónleikum í Carnegie Hall í New
York, í höll í Montepulciano í Tosc-
ana-héraðinu á Ítalíu, í kastala í litlu
fjallaþorpi við ítölsku alpana og í
óperuuppsetningum með sinfóníu-
hljómsveitinni í Bolzano. Hún syng-
ur reglulega á Ítalíu ásamt því að
sinna söng og kórstjórn hér á Ís-
landi,“ segir í tilkynningu frá
Hafnarborg.
Þar er rifjað upp að Antonía hefur
verið listrænn stjórnandi hádegis-
tónleika í Hafnarborg frá upphafi.
Hádegistónleikar eru á dagskrá
Hafnarborgar fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa
yfir í um hálfa klukkustund. Húsið
er opnað kl. 11.30 og er aðgangur
ókeypis.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bros Antonía Hevesí og Berta Dröfn Ómarsdóttir lítríkar í sumarsólinni.
Táraflóð í Hafnarborg