Kiwanisfréttir - 01.08.2006, Side 13
MDÆMISTJORA
Ágæti kiwanisfélagi
Ég heiti Hlynur Árnason og
hef ég ákveðið að bjóða mig
fram til embættis kjörum-
dæmisstjóra 2007-2008. Ég er
fæddur í Reykjavík 10. júlí
1951. Olst upp í vesturbænum
gekk í Melaskóla og síðan
Hagaskóla og gerðist gagn-
fræðingur vorið 1968. Eftir það
lagði ég stund á nám í
bifvélavirkjun og útskrifaðist
sem meistari árið 1978. Á
árunum 1980-1994 starfaði ég
sem sölustjóri nýrra og
notaðra bíla hjá Bifreiðum og
landbúnaðarvélum. Eftir það
hef ég stundað sjálfstæðan
atvinnurekstur.
Árið 1972 kvæntist ég
Sigríði Jónu Friðriksdóttur
rekstrar- og viðskiptafræðing
og eigum við tvö börn,
Kristínu Rós sem er austurasíu
markaðsfræðingur og sérhæfir
sig í kínverskum markaði og
Árna Þór endurskoðanda,
framkvæmdastjóra Skatts og
bókhalds ehf. Barnabörnin eru
orðin 6 á aldrinum 2ja til 16
ára.
Ég kynntist Kiwanishreyfing-
unni fyrst árið 1984 en þá var
mér boðið á kynningarfundi
hjá Kiwanisklúbbnum Geysi í
Mosfellsbæ og kom síðan á
nokkra fundi hjá þeim. Þar
kynntist ég því frábæra starfi
sem klúbburinn hefur gert í
gegnum árin. Ekkert varð þó
af inngöngu þá í hreyfinguna
vegna anna. Nokkrum árum
síðar fluttist ég til Reykjavík
og árið 1994 gekk ég í
Kiwanisklúbbinn Höfða. Ég
hafði kynnst Höfðafélögum
nokkrum árum áður er ég hélt
6 kvölda ræðunámskeið og
námskeið í fundarstjórn og
fundarsköpum árið 1992. I
Höfða hef ég gengt flestum
þeim embættum sem klúbbur-
inn hefur upp á að bjóða og
var forseti klúbbsins starfsárið
1999- 2000.
Ég hef starfað í Svæðis-
stjórn Eddusvæðis sem
Svæðisritari starfsárið 1996-
1997.
Umdæmisgjaldkeri hef ég
verið tvö starfsár, starsárin
2000- 2001 og 2002-2003.
Ég hef mikla reynslu að
félagsstörfum, gerðist stofn-
félagi í JC Mosfellssveit árið
1974 og starfaði í JC hreyf-
ingunni nær óslitið í tuttugu ár
og starfaði meðal annars sem
Landsforseti hreyfingarinnar.
Árið 1981 var ég útnefndur
ævifélagi JC.
Á árunum 1983 til 1986
starfaði ég sem formaður
aðalstjórnar Ungmennafélags-
ins Aftureldingar í Mosfells-
bæ.
Ég á mér þann draum að verða
umdæmisstjóri Kiwanis-
hreyfingarinnar ísland Færeyj-
ar til að getað þjónað þessari
frábæru hreyfingu. Hreyfingin
stendur á erfiðum tímamótum
og ég er svo sannarlega tilbúin
að leggja mitt af mörkum og
starfskröftum til að gera hag
hennar sem bestan. Ég starfa í
eigin fjölskyldufyrirtæki, sem
heitir Skattur og bókhald ehf.
og hef fullan stuðning
fjölskyldunnar til þess að
takast á við þetta verkefni. Ég
á mér þann draum að sjá veg
hreyfingarinnar sem bestan á
komandi árum og hef hug á að
gera ýmsar breytingar sem ég
tel hreyfingunni til hagsbóta.
Eitt verðum við að hafa í huga
að undirstaða þessara hreyf-
ingar eru klúbbarnir. Á
erfiðleikatímum verður um-
dæmið og þeir sem vilja
aðstoða veika klúbba að
leggjast á eitt til aðstoðar. Ég
tel að umdæmisstjórnin þurfi
að vera í mun meiri tengslum
við klúbbanna og að um-
dæmisstjóri eigi að mæta í alla
klúbbana á starfsári sínu. Við
verðum að vera í stöðugri
stefnumótun þar sem að sem
flestir taka þátt í.
Ég mun fylgjast grannt
með fræðslu stjórnarmanna í
klúbbunum sem fram fer á
ísafirði en með því að efla
fræðslu auðveldar það undir-
búning og stjórnarstörf í
klúbbunum. Til þess að efla
megi hreyfinguna þurfum við
metnaðarfulla einstaklinga
sem starfa vilja að vexti og
framgangi hreyfingarinnar.
Við þurfum að skapa nýjum
mönnum svigrúm til þess að
takast á við ábyrðarmeiri og
krefjandi verkefni. Eldri og
reyndari kiwanisfélagar verða
að gefa þeim tækifæri sem
vilja spreyta sig á störfum fyrir
hreyfinguna. Ég ætla mér að
vera í góðum tengslum við
kjörforseta klúbbanna og
verðandi svæðisstjóra til þess
að undirbúa starfsárið sem
best.
Mínar bestu baráttukveðjur
færi ég öllum Kiwanisfélögum
með von um góða kosningu á
komandi þingi og ánægjulegt
samstarf á komandi árum.
13