Kiwanisfréttir - 01.08.2006, Qupperneq 18
ÓSKAR
GUÐJÓNSSON
UMDÆMISRITARI
2006-2007
Ágætu Kiwanisfélagar
Eftir setu sem erlendur ritari í
síðustu tveimur umdæmis-
stjórnum tekst ég nú á við
embætti umdæmisritara í stjórn
Andrésar Hjaltasonar. Starf
erlends ritara er mikilvægt
innan umdæmisstjórnar, felst
m.a. í því að setja sig inní og upplýsa umdæmisstjórn um það
sem helst er á baugi á alþjóðavettvangi hreyfingarinnar hverju
sinni og halda uppi tengslum umdæmisins á því sviði. Þó að þar
komi margt annað til, tel ég starf erlends ritara vera
afbragðsgóðan undirbúning fyrir umdæmisritarastarfið, og sé
því svo sem ekkert til fyrirstöðu að sameina megi störfin undir
vissum kringumstæðum. Eg tel mig og vera vel inní þeim málum
er borið hefur á borð hreyfingarinnar á þessum tíma, auk þess
sem ég hef beitt mér sem ungliðaráðgjafi og gagnagrunns-
tengiliður og tekið þátt í fræðslu embættismanna og
stefnumótun hreyfingarinnar. Einnig hef ég átt nána samvinnu
við frábæra fyrirrennara mína í starfi þau Dröfn og Arnald.
Vonandi kemst ég með tærnar þar sem þau voru með hælana.
Auk 15 ára Kiwanisstarfs er þetta því sú reynsla er ég legg í starf
umdæmisritara 2006-2007. Með góðri samvinnu við
Kiwanisfélaga og umdæmisstjórnarfólk, vonast ég til að það
gangi stóráfallalaust.
Kiwanishreyfingin stendur á tímamótum. Nútímavæðing á
starfsháttum, markaðssetningu og kynningu hefur hafið innreið
sína. Gildin hafa fengið nýjar og breyttar áherslur og hreyfingin
er alþjóðlegir en nokkru sinni fyrr. Hlutverkið er á hreinu og
stefnan er skýr. Markmiðin hafa verið sett og leiðir að þeim
kortlagðar. Tekist er á við stöðnun og værukærð fyrri tíma á
markvissan hátt sem vonandi leiðir til nýs yfirbragðs á
hreyfingunni og fjölgunar í náinni framtíð. Orðræðu fyrri ára
hefur verið breytt í markvissar athafnir. Kiwanis stefnir í að vera
1 milljón félagar á 100 ára afmæli hreyfingarinnar árið 2015.
Umdæmi um allan heim eru að aðlaga sig þessu átaki, hvert á
sinn hátt. í dag á því að vera spennandi að vera í Kiwanis. Eg
hlakka til að starfa með umdæmisklúbbum og -félögum að takast
á við þessar breytingar með bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi.
Með Kiwaniskveðju
Oskar Guðjónsson
Embætti: Umdæmisféhirðir
Nafn: Arnar Ingólfsson
Maki: Anna Birna Árnadóttir
Börn: 3
Starf: Raflagnahönnuður
Kiwanisklúbbur: Keilir
Félagi síðan: 1994
Áhugamál: Fjölskyldan, veiði,
gönguferðir, njóta lífsins.
Eitthvað um starfið framundan
og væntingar af því:
Það blasir við hjá verðandi Umdæmisféhirði að halda áfram því
góða starfi sem hefur verið í unnið í fjármálum
Kiwanisumdæmisins. Eg vona að eiga sem góð samskipti við
sem flesta og allir Kiwansiklúbbar landsins hafi fjármálin í góðu
standi, þá verður Umdæmisféhirðirinn nokkuð kátur.
KYNNINGÁ
UMDÆMISFÉHIRÐI
2006-2007
Thai Koon
Austurlenskur veitingastaður
í verslunarmiðstöðinni Neista
á ísafirði.
Austurlenskur matur eins
og hann gerist bestur.
Hafnarstræti 9-13, 400 ísafjörður
sími 456-0123
• Brúðkaup
• Afmæli
• Fermingar
• Smáréttir
• Fundir
• Ráðstefnur
• Veisluþjónusta
• Erfidrykkjur
Verið velkomin!
Hótel ísafirði • Silfurtorgi 2
Sími 456-3360 • Fax: 456-3370
www.skg.is • skg@skg.is
18