Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2019, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.09.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2019 TRATTO model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla MENTORE model 3052 L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 389.000,- L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 365.000,- RELEVE model 2572 L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 339.000,- L 250 cm Leður ct. 15 Verð 495.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,- Hermt er að eiginkona hans, Rúna Esradóttir, hafi beð- ið Mugison um að taka „Mjúkison“-tónleika í þónokkur ár „bara gítar og rödd, ekkert rugl“ – í anda Neil Yo- ung og fleiri, í mesta lagi að fá einhverjar „brjálaðar“ bakraddir með í nokkur lög en annars að fagna einfald- leikanum og röddinni. „Þó þetta verði einfalt og næs þá verður þetta engin jarðarför, þetta verður fjölbreytt og skemmtilegt,“ seg- ir Mugison í kynningu vegna tónleikanna. Þar er hann sagður hið mesta ólíkindatól og spennandi verði að heyra og sjá hvernig hann eigi eftir að skemmta fólki þessa kvöldstund. „Það má búast við sögum, sjónhverf- ingum og sprelligríni en fyrst og fremst göldróttri tón- list.“ Mugison hóf ferilinn sem tölvutrúbador en eftir að Murr Murr sló í gegn 2004 hefur gítarinn legið um háls- inn á honum allar götur síðan. Og fáir tónlistarmenn hafa líklega tekist á við jafn ólíka stíla í tónlistinni. Mugison slær sjaldan af á tónleikum. Morgunblaðið/Einar Falur „Þetta verður engin jarðarför“ Eftir þrjátíu tónleika hringferð um landið í sumar ætlar Mugison að enda í höfuðborginni, nánar tiltekið í Háskólabíói 13. og 14 september nk. „Mér var rétt í þessu tilkynnt að vegna veðurskilyrða gæti flugvél mín ekki lent á Íslandi á leið okk- ar heim til Bandaríkjanna. Ég þarf ekki að lýsa því hversu leitt mér þykir að verða af þessu tækifæri til að sjá enn einu sinni hið fagra land og heimsækja yð- ur, þótt ekki hefði orðið nema stutta stund. Þakka yður inni- lega fyrir hið góða boð yðar til hádegisverðar. Með beztu kveðju og óskum til yðar og allra landsmanna.“ Svohljóðandi skeyti barst ís- lenskum stjórnvöldum að morgni 7. september 1959 en undir það ritaði Dwight D. Ei- senhower, forseti Bandaríkj- anna, sem hafði verið að sinna embættiserindum í Skotlandi. Til stóð að millilenda á Íslandi og hafði forseti landsins, Ásgeir Ásgeirsson, boðið Eisenhower til hádegisverðar á Flugvall- arhótelinu á meðan flugvél hans yrði afgreidd. En af því varð sumsé ekki í það skiptið. Forseti Íslands svaraði að von- um með öðru skeyti. Þar sagði m.a.: „Ég óska yður mikils ár- angurs í alþjóðlegu friðarstarfi, þjóð yðar allrar blessunar og yð- ur sjálfum góðrar heimkomu.“ GAMLA FRÉTTIN Forseti gat ekki lent Betur gekk árið 1941 þegar Dwight D. Eisenhower, þá hershöfðingi, náði að lenda á Íslandi. Með honum á myndinni er Kristín Snæhólm flugfreyja. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Bragi V. Bergmann almannatengill og limruskáld Haraldur Ólafsson veðurfræðingur Eyjólfur Júlíus Pálsson fisksali

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.