Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 6

Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 6
SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Landsfundur Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík dagana 18. til 20. október. Lofts- lagsmál verða rauður þráður lands- fundar, en stefna flokksins byggist á fjórum grunnstoðum; umhverfis- vernd, kvenfrelsi, alþjóðlegri frið- arhyggju og félagslegu réttlæti. Vinstri græn eru um þessar mund- ir leiðandi afl í ríkisstjórn Íslands, með forsætis-, heilbrigðis-, og um- hverfis- og auðlindaráðuneytið, og 11 þingmenn. Samkvæmt nýlegum Þjóðarpúlsi Gallup segjast 12% þeirra sem taka afstöðu myndu kjósa Vinstri græn, en tæplega 51% segjast styðja ríkisstjórnina til áframhaldandi verka. Fyrir landsfund Vinstri grænna liggja alls 45 tillögur að ályktunum. Snúast þær m.a. um heilbrigðismál, flugsamgöngur, smávirkjanir, mál- efni flóttamanna og hælisleitenda, loftslagsmál, innflytjendur, vígvæð- ingu á norðurslóðum og stjórnar- skrá Íslands. Þá verður stjórn flokksins endurnýjuð að stærstum hluta, en kosið verður til embættis varaformanns, ritara og gjaldkera um helgina. Líklegast þykir að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, verði næsti varaformaður Vinstri grænna, en hann hefur einn lýst opinberlega yfir áhuga sínum á embættinu. Morgunblaðið setti sig í samband við tvo þingmenn Vinstri grænna, formann flokksins og forystu gras- rótar í tilefni landsfundar. Segja þau stöðu flokksins sterka og er það m.a. aukin áhersla fólks á um- hverfis- og loftslagsmál sem vegur þar þungt. Verða metin af verkum sínum Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra og formaður Vinstri grænna, segir margt hafa breyst á skömm- um tíma er snertir áherslu á um- hverfis- og loftslagsmál hér á landi. „Þessi mál verða mjög áberandi á fundi Vinstri grænna um helgina og verður m.a. sérstakt loftslags- pallborð þar. Á örfáum árum hefur þetta breyst frá því að vera af- markað viðfangsefni eins ráðherra yfir í málaflokk sem allir ráðherrar og þingflokkar vinna að og taka af- stöðu til,“ segir Katrín í samtali við Morgunblaðið og heldur áfram: „Um það verður ekki deilt að nú- verandi ríkisstjórn hefur tekið á þessum málum með mun meira af- gerandi hætti en við höfum áður séð. Þá verða þessi mál auðvitað í stöðugri endurskoðun á meðan við erum leiðandi afl í ríkisstjórn.“ Nú þegar líftími núverandi ríkis- stjórnar er hálfnaður segir Katrín flokk sinn vel geta verið ánægðan með stöðuna hvað málefnin varðar. „Við höfum náð miklum árangri í þeim málefnum sem á okkur brenna, en fyrir stjórnmálaflokkinn Vinstrihreyfinguna – grænt fram- boð þá reynir auðvitað á að vera í ríkisstjórn. Og á það vafalaust auð- vitað almennt við um alla flokka sem ákveða að henda sér út í það verkefni,“ segir Katrín og bætir við að umræðan í kringum stjórnmál sé oft á tíðum ansi hörð, einkum þegar kemur að málamiðlunum. „En það fylgir því bara að vera í ríkisstjórn.“ Spurð út í áðurnefnda könnun Gallup og það fylgi sem Vinstri græn eru með þar segir Katrín: „Ef ég væri mikið að hugsa út í skoðanakannanir þá væri ég löngu hætt. Þær geta sveiflast gríðarlega. Ég hef þá trú að þegar við göngum til kosninga eftir tvö ár muni fólk horfa til okkar verka á kjör- tímabilinu. Það eru því miklir möguleikar á að sækja meira fylgi.“ Loftslagsmál í öllum stefnum Kolbeinn Óttarsson Proppé, varaformaður þingflokks Vinstri grænna, segir loftslagsmál munu fléttast inn í pólitíska stefnu flokks- ins í meira mæli en áður. „Við höfum verið með starfshópa hjá okkur sem endurskoða stefn- una í áföngum. Ég hef lagt það til að stefnan verði hér eftir endur- skrifuð út frá loftslagsmálum. Þannig myndu allir þættir stefn- unnar, hvort sem um er að ræða atvinnumál, heilbrigðismál eða eitt- hvað annað, vera skrifaðir út frá loftslagsmálum. Þessari tillögu minni var vel tekið og er vinna nú hafin í tengslum við hana, en hluti tillögunnar verður kynntur á lands- fundinum.“ Spurður hvað það sé sem helst einkenni fundi Vinstri grænna seg- ir Kolbeinn opinskáar umræður um stjórnmál vera þar efst á blaði. „Það er mjög ánægjulegt að geta sagt þetta, en auðvitað eiga opin- skáar umræður að vera mik- ilvægar. Ég á von á því að fólk muni á þessum landsfundi skiptast á skoðunum og ræða af heiðarleika um okkur, fólkið í flokknum, og okkar stefnumál. Það er einnig mjög ánægjulegt að sjá hversu margir eru nú að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa,“ segir hann og vís- ar þar til embætta varaformanns, ritara og gjaldkera. „Heilt á litið finnst mér flokk- urinn nú vera á góðum stað og í þeirri stöðu að geta komið sínum áherslumálum til framkvæmda. Það má vafalaust færa rök fyrir því að Vinstri græn séu nú í sinni sterk- ustu stöðu til þessa,“ segir Kol- beinn. Endurskoði viðhorf til NATO Á sama tíma og Vinstri græn hafa staðið vaktina í forsætisráðu- neytinu hefur mjög verið fjallað um viðveru erlendra hersveita hér við land. Á sl. mánuðum hafa m.a. sveitir landgönguliða æft á Íslandi, fjölmörg herskip og sprengjuflug- vélar sótt landið heim og orr- ustuþotur Atlantshafsbandalagsins (NATO) verið staðsettar í Keflavík til lengri tíma. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir flokkinn vera trúan sinni stefnu, hann sé enn mjög andvígur aðild Íslands að Atlants- hafsbandalaginu. „Það verður ekki öllu breytt þó að maður vildi það. Þetta er hluti þeirra afleiðinga sem fylgja þeirri skuldbindingu að vera í NATO og við gengumst undir þjóðaröryggis- stefnu Íslands og þá var búið að samþykkja þetta. En auðvitað fer það í taugarnar á okkar fólki að ekki sé hægt að koma í veg fyrir eitt og annað sem snýr að NATO,“ segir Bjarkey og veltir um leið upp þeirri spurningu hvort ekki sé til- efni til þess að aðrir flokkar á Al- þingi endurskoði viðhorf sitt til að- ildar Íslands að Atlantshafs- bandalaginu. Þá segir hún stöðu Vinstri grænna hafa styrkst undanfarið með aukinni athygli fólks á nátt- úruvernd og loftslagsmál. Flokk- urinn hafi lengi verið leiðandi á sviði umhverfismála. „Við þóttum jú eins og margir muna ansi skrítinn flokkur með áherslu á umhverfismál og áttum bara helst að fara í fjallagrasat- ínslu. Núna hafa margir bæst í hópinn og það er alltaf styrkur. Við erum brautryðjendur í þessu eins og mörgu öðru, en mikilvægast er að málaflokkurinn fær núna aukna athygli,“ segir Bjarkey. Loftslagsmál rauði þráðurinn  Landsfundur Vinstri grænna haldinn um helgina  Mikil endurnýjun verður á stjórn flokksins  Við höfum náð miklum árangri í þeim málefnum sem á okkur brenna, segir Katrín Jakobsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kosninganótt 2017 Flokksmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sækja landsfund um helgina. Flokkurinn er nú með 12% fylgi samkvæmt könn- un en formaður hans segir mikla möguleika á að sækja meira fylgi. „Við höfum náð miklum árangri í þeim málefnum sem á okkur brenna,“ segir Katrín. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm er formaður Ungra vinstri grænna (UVG), ungliðahreyfingar Vinstri grænna. Hún segir stöðu flokksins heilt á litið vera góða. „Það voru margir sem efuðust um þetta ríkisstjórnarsamstarf í upphafi en ég held að okkar fólk hafi aftur á móti sýnt það og sann- að hversu mikilvægt það er að hafa VG í ríkisstjórn. Á ég þar eink- um við aðkomu Katrínar [Jakobs- dóttur forsætisráðherra] að mörg- um málum, Svandísar [Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra] og Guðmundar Inga [Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra]. Ég tel að við séum öll mjög ánægð með þessa ráðherra og þeirra störf,“ segir hún. Þá segir Hreindís Ylva einnig ánægjulegt að sjá hversu margir liðsmenn UVG gefi nú kost á sér í stjórnarstöður Vinstri grænna, en báðir frambjóð- endur til embættis gjaldkera og annar frambjóðandi til ritara koma úr röðum UVG. „Þessi áhugi sýnir að ungu fólki í VG líður eins og það eigi erindi í þessar stöður. Svo vænti ég þess að fleiri liðsmenn UVG bjóði sig fram sem með- stjórnendur í stjórn VG.“ Þá munu fulltrúar UVG setja svip sinn á landsfund, m.a. með því að leggja til að Útlendinga- stofnun verði lögð niður. Ungliðar eigi erindi í stjórnina FORMAÐUR UNGLIÐAHREYFINGAR VINSTRI GRÆNNA Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is. Haltu þínu striki! Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is o r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.