Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Í dag eru 290 dagar liðnir af árinu
og rétt rúmir tveir mánuðir þar til
sól fer aftur að hækka á lofti. Haust-
ið hefur verið okkur bæði fleygum og
ófleygum fremur hagfellt í veður-
farslegu tilliti og gert vaxandi
skammdegi bærilegra. Auðnutitt-
lingarnir fljúga á milli birkigreina og
næra sig á fræjum trjánna. Þrest-
irnir háma í sig fullþroskuð reyni-
berin og hrafninn fylgist með öllu
saman ofan af ljósastaurum.
Grágæsirnar setja ætíð mikinn
svip á bæinn frá aprílbyrjun til
ágústloka, við mismikla hrifningu
bæjarbúa. En þrátt fyrir mikinn
gæsaskít á ýmsum gönguleiðum
vekja gæsirnar alltaf mikla athygli
hjá gestum og gangandi. Fyrir ári
var grágæsargassi merkur með
GPS-sendi og fékk nafnið Arnór. Fór
hann til Skotlands sl. haust og hélt
sig að mestu í nágrenni Dundee.
Kom hann aftur í vor á Blönduós en
hélt einhverra hluta vegna fljótlega
með maka sínum að Holti á Ásum.
Þar kom hann upp ungum á Laxá á
Ásum en yfirgaf fjölskyldu sína þar
og fór að halda við aðra gæs í Hrútey
í Blöndu og kom upp með henni ung-
um. Arnór var sem sagt staðinn að
flökti milli gæsa og sögnin um það að
gæsir væru í ævilöngum tryggðum
virðist hafa glatað trúverðugleika
sínum í A-Húnavatnssýslu. Í sumar
fengu þrír gassar GPS-sendi; Jón,
Jónas og nr. 22, og sendu tveir
þeirra frá sér merki daglega. Gass-
inn Jóna féll fyrir höglum veiði-
manns 5. september frammi í
Langadal á slóðum „Möngu með
svartan vanga“. Gassinn, sem ber
númerið 22, hefur ekkert látið af sér
vita en áðurnefndur Arnór og Jón
gassi hafa haft samband reglulega
og dvelja um þessar mundir frammi í
Vatnsdal.
Spennandi verður að fylgjast
með því hvort þessar gæsir komist
fram hjá skyttum landsins og yfir
hafið til Skotlands, hvar bíða þeirra
enn fleiri skyttur.
Bæjaryfirvöld hafa um langa
hríð velt því fyrir sér hvernig hægja
mætti á umferð gegnum bæinn og fá
fleiri ferðamenn til að stoppa. Fyrst
var sett hringtorg á þjóðveg 1 sunn-
an við bæinn og núna tvö síðustu árin
hefur Vegagerðin náð góðum ár-
angri með því að stýra umferð með
ljósum yfir brúna á Blöndu. Reyndar
er þetta ekki liður í því að hægja á
ferðamönnum heldur vinna menn
hörðum höndum að því að endurgera
brúna en engu að síður, við þessar
umferðartafir, gefst börnum í aft-
ursætum tækifæri á að sjá sundlaug-
arrennibrautina og ærslabelginn og
hvað er betra en barn með einbeittan
vilja til að hafa áhrif á þá sem fram í
sitja. En umferðatöfum á Blöndubrú
fer senn að ljúka, eða í lok mánaðar.
Það þarf ekki brúarþrengingu til
að fá erlenda ferðamenn til að stoppa
því framboð af gistingu hefur aukist
þónokkuð að undanförnu. Má þar
nefna heilsárshúsin í Braut-
arhvammi við Blöndu sem og gisti-
og veitingastaði í gamla bænum. Það
er skemmtileg upplifun að sjá á
kyrrlátu kvöldi fjölda fólks á ferðinni
í gamla bænum talandi á framandi
tungum. Til eru þeir sem sjá fyrir
sér betri tengingu gamla bæjarhlut-
ans við meginbyggðina á norðaust-
urbakkanum, bæjarsamfélaginu ef
til vill til góðs.
En samfélagið blómstrar og
íbúum fjölgar og lítið vantar upp á að
íbúafjöldi bæjarfélagsins verði aftur
eitt þúsund
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Lokaáfanga við viðhald Blöndubrúar fer senn að ljúka, eða í lok þessa mánaðar.
Arnór hélt við aðra gæs
Sauðárkrókur | Allt frá ágústlokum
hafa staðið yfir æfingar á hinu ást-
sæla og skemmtilega leikriti um Línu
langsokk hjá Leikfélagi Sauðárkróks,
undir leikstjórn Péturs Guðjóns-
sonar. Alls eru leikendur 16 en eins
og alltaf koma mun fleiri að sýning-
unni.
Frumsýning verður í Félagsheim-
ilinu Bifröst á morgun, föstudag, og
eru áformaðar 13 sýningar og hin síð-
asta sunnudaginn 3. nóvember.
Undanfarin ár hefur leikfélagið
alltaf verið með tvær uppfærslur á ári
og venjulega hefur haustsýningin
verið fjölskyldu- eða barnasýning,
enda mikilvægt að ala vel upp nýja
leikhúsgesti. Að sögn forsvarsmanna
félagsins hafa æfingarnar gengið
mjög vel, undir styrkri stjórn, en á
senunni sameinast reynsluboltar úr
röðum félagsins í bland við nýliða.
Með hlutverk Línu fer Emiliana
Lilly Guðbrandsdóttir, sem oft hefur
komið við sögu í sýningum félagsins,
en hlutverk þeirra Önnu og Tomma
eru í höndum Kristínar Bjargar Em-
anúelsdóttur og Ásbjarnar Edgars
Waage, sem ekki eru heldur alveg
reynslulaus.
Lína langsokkur
á svið í Bifröst
Ljósmynd/Pétur Guðjónsson
Leikrit Lína langsokkur og félagar í uppfærslu Leikfélags Sauðárkróks.
Heill frumskógur af gæludýrum...
Í fiskana mig langar svo
að setja í búrið stóra
mamma segir þú færð tvo
en pabbi segir fjóra.
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18
L i f and i v e r s l un
kíktu í heimsókn
Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr
Lagning 3,9 kílómetra rafstrengs
úr Húsadal yfir í Langadal og Bása
í Þórsmörk þarf ekki að fara í um-
hverfismat samkvæmt ákvörðun
Skipulagsstofnunar. Strengleiðin
fer um göngustíga, gamlan árfar-
veg, í gegnum skógræktarsvæði í
Þórsmörk á kafla og þvera verður
Krossá. Ekki er talið að fram-
kvæmdin hafi áhrif á lífríki Krossár
eða Markarfljóts.
Áætlað er að strengurinn verði
að mestu plægður niður en fleyga
og grafa þarf á um 200 metra kafla.
Einnig verður komið fyrir spenni-
stöðvum í Langadal og Básum. Um
er að ræða umfangslitlar fram-
kvæmdir sem raska munu alls á um
1,2 hektara svæði, segir í niður-
stöðum Skipulagsstofnunar.
Á náttúruminjaskrá
Þórsmörk er svæði á náttúru-
minjaskrá og verndargildi svæð-
isins er meðal annars talið vera
vegna skóglendis í skjóli jökla, að
hluta til í umsjá Skógræktarinnar.
Með samráði sem verið hefur með
Skógræktinni og öðrum hlutaðeig-
endum hefur lagnaleið verið valin
með tilliti til þess að lágmarka um-
hverfisáhrif. Fulltrúi frá Skógrækt-
inni mun vera viðstaddur þegar
farið verður í gegnum skógrækt-
arsvæðið og mun Skógræktin sjá
um að fella þau tré sem þarf að
fella, segir í niðurstöðum.
Við meðferð málsins leitaði
Skipulagsstofnun umsagna frá
Rangárþingi eystra, Ferðamála-
stofu, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirliti
Suðurlands, Minjastofnun Íslands,
Orkustofnun, Skógræktinni og Um-
hverfisstofnun.
Umhverfisvænt og hagkvæmt
Í mars í fyrra kom fram í Morg-
unblaðinu að skipulagsnefnd Rang-
árþings eystra hefði tekið jákvætt í
fyrirspurn Ferðafélags Íslands um
lagningu rafstrengs milli Húsadals
og Langadals í Þórsmörk, en þar er
Ferðafélagið með skála.
Haft var eftir Páli Guðmunds-
syni, framkvæmdastjóra Ferða-
félagsins, að rafvæðing skálanna
væri bæði umhverfisvæn og hag-
kvæm og gjörbreyti aðstöðunni.
Áður hefði verið notast við ljósa-
vélar, kamínur og gas, en með því
að fá rafmagn í skálana þyrfti ekki
lengur að flytja olíu með olíubílum.
Í Básum á Goðalandi er Útivist
með skála og varð félagið sam-
starfsaðili að verkefninu síðsumars.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Langidalur Leggja á rafstreng frá Húsadal yfir í Langadal og Bása.
Undirbúa 3,9 km
raflögn í Þórsmörk
Ekki talin þörf á umhverfismati