Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 telja að á Spönginni hafi Lögberg verið fram að kristnitöku þegar það var fært nærri Öxará og oft er talað um hið heiðna lögberg á Spöng. Við vettvangsrannsókn komu í ljós mögulegar minjar aftar á Spönginni sem engar heimildir eru um. Voru þessar minjar mjög sokkn- ar og ógreinilegar. Við borkjarna- rannsókn kom í ljós að þarna eru torflög sem staðfesta að þarna hafa verið byggingar úr torfi. Fleiri minj- ar fundust því á Spöng en áður var vitað um,“ segir í samantektinni. Uppgröftur og uppbygging Einar rifjar upp að þegar Þing- vellir fóru á heimsminjaskrá árið 2004 hafi verið stefnt að því að rann- saka og gera fornleifaskráningu fyr- ir þjóðgarðinn og sérstaklega þing- helgina. Til að raska ekki minjum á yfirborði hafi verið hvatt til þess að nota fjarkönnun og loftmyndir og slíka aðferðafræði og unnið hafi ver- ið í þeim anda. Einar segir að þrátt fyrir þetta hafi hann mikinn áhuga á að búðarúst verði grafin upp í sam- vinnu við Minjastofnun og aðra sem að málinu kunna að koma. „Á þennan hátt myndum við öðl- ast aukinn skilning á því hvernig búðirnar voru byggðar og nýttar,“ segir Einar. „Jafnframt yrði þessi fornleifarannsókn gerð sýnileg og auk þess að nýtast fræðunum og há- skólasamfélaginu yrði verkefnið til fróðleiks fyrir ferðamenn. Síðan mætti meta hvort vilji væri til að byggja búðina upp og gera sýnilega fólki.“ Minjar neðan vatnsborðs Einar segir að verkefnin séu óþrjótandi við rannsóknir á forn- minjum á sögustaðnum Þingvöllum. Meðal annars hafi verið stefnt að því að kanna nánar mannvistarleifar neðan vatnsborðsins. Vitað sé að strandlengjan hafi sigið um 3-5 metra á sögulegum tíma og vitað sé um hluta af mannvirkjum, t.d. tún- garða neðan vatns. Einnig hafi sést á drónamyndum að mögulega séu fleiri rústir í Öxará en vitað var um. „Það væri mjög spennandi að beina augum að fornleifafræði neðan vatns á komandi árum,“ segir Einar. Kevin Martin hefur unnið að þessu verkefni í þjóðgarðinum, en hann er neðansjávarfornleifafræðingur. Í haust fengu Landmælingar formlega afhentar örnefnaskrár þjóðgarðsins. Einar segir að örnefn- in séu að stórum hluta sótt í eldri skrár og hafi hátt í þúsund örnefni verið færð í rafrænar skrár. Jafn- framt muni Minjastofnun fá gögn um skráðar fornleifar og þau verði einnig aðgengileg á vefsjá þjóð- garðsins. Leituðu miðaldabýla með dróna Í rannsókninni hafa verið gerðar skráningar á Vatnskoti, Skógarkoti og Hrauntúni. Að auki hefur Gunnar Grímsson fornleifafræðinemi notað dróna til að finna vísbendingar um nokkur miðaldabýli sem getið er um í heimildum en nákvæm staðsetning var óljós. Gunnar notaði ritheimildir sem og fullkominn dróna með hitamyndavél og flaug yfir svæði þar sem talið var að býlin væru. Fann hann með þess- ari aðferð vísbendingar um minjar sem voru oft á tíðum á öðrum stöð- um en heimildir og örnefni bentu til. Þegar hann hafði með þessum myndum og greiningu á þeim fundið líklega staði var farið með jarðvegs- bor og borkjarnar teknir. Reyndist með þessum aðferðum unnt að stað- festa að um býli var að ræða. Eyðibýlin Grímastaðir, Litla- Hrauntún, Hrafnabjörg og Rótólfs- staðir hafa nú verið staðsett. Þá hef- ur stór sporöskjulaga girðing verið staðsett í Múlakoti. Borkjarnasýni sýndu gólflög á öllum stöðunum, sem er talið benda til að þarna hafi verið föst búseta en ekki aðeins seljabúskapur. Margar þessara rústa eru mjög yfirgrónar og mjög erfitt að sjá þær með berum augum og sýnir það hversu mikilvæg þessi tækni er við fornleifarannsóknir. Heimildir eru um enn fleiri býli og því ekki óhugsandi að með áfram- haldandi rannsóknum finnist fleiri og óþekkt býli, segir í samantekt þjóðgarðsvarðar. Sláttur Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands, mundar orfið á búðarúst. Rótólfsstaðir Hrafnabjörg Litla-Hrauntún Múlakot ■ Hrauntún Grímastaðir ■ Brúsastaðir ■ Kárastaðir ■ Skógarkot ■ Gjábakki ■ Vatnskot Býli í Þingvallasveit Þingvallavatn Þ I NGVE L L I R Arnarfell Ármannsfell Fornleifarannsókn á Miðmundatúni á Þingvöllum Grunnkort/Loftmyndir ehf. MIÐMUNDATÚN Þingvallabær Valhallarvegur Valhallarvegur Öxará Ummerki um skála eða byggingar með veggj- um úr torfi og grjóti Tækni Gunnar Grímsson með einn af drónunum sínum. Einar segir að þrátt fyrir aukinn ferðamannastraum um Þingvelli hafi gengið vel að stýra umferð um göngustíga þannig að ágangur ferða- manna á rústunum hafi minnkað. Böggull fylgi hins vegar skammrifi því margar búðarústir innan þinghelginnar séu á kafi í grasi yfir sumartím- ann. „Sumarið 2017 gerðum við tilaun með að slá eina rústina norðan við Lögberg svo hún sæist betur. Þetta var gert í samstarfi við Minja- stofnun Íslands og vilji er hjá báðum stofnunum til að skoða mögulega beit eða slátt á minjum svo þær komi betur í ljós,“ segir Einar. Hvort sem er hross eða sauðfé komi til greina verði af þessu. Hross eða sauðfé til beitar? BÚÐARÚSTIR Á KAFI Í GRASI LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 ÞURR AUGU? Rakagjöf er ekki fullnægjandi lausn Einstök samsetning af frumuvörn og smurningu fyrir augun Inniheldur trehalósa úr náttúrunni Án rotvarnarefna Tvöföld virkni- sex sinnumlengri ending Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslun Grandagarði og Glæsibæ, 5. hæð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.