Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fær Umferðarmiðstöðin í Vatnsmýri að standa áfram eða verður hún rifin til að rýma fyrir nýjum byggingum? Þetta er ákvörðun sem þarf að taka áður en efnt verður til alþjóðlegrar samkeppni um nýtt skipulag á um- ferðarmiðstöðvarreit. Eins og fram kom í Morgunblaðinu nýverið hefur borgarráð samþykkt tillögu borgarstjóra þess efnis að efnt verði til slíkrar samkeppni. Mark- miðið er að þarna rísi ný alhliða sam- göngumiðstöð fyrir Reykjavík, höf- uðborgarsvæðið og landið allt og þétt blönduð byggð. Umferðarmiðstöðvarreitur (U- reitur) afmarkast af Hringbraut í suðri, Gömlu-Hringbraut í norðri, Njarðargötu í vestri og Nauthólsvegi/ Barónsstíg í austri. Deiliskipulags- svæðið er 68 þúsund fermetrar að stærð. Bensínstöð N1 víki Innan reitsins eru tvö mannvirki sem taka þarf ákvörðun um, annars vegar Umferðarmiðstöðin og hins vegar bensínstöð N1, sem stendur við Hringbraut 12. Lóðaleigusamningur um Hringbraut 12 rann út 31. desem- ber 2016. Í samningi er gert ráð fyrir að hann megi framlengja til 1. janúar 2022. Borgin gerir ekki ráð fyrir að hann verði framlengdur umfram það. Í skýrslu starfshóps um þróun reitsins sem kom út í september síð- astliðnum er fjallað um ástand og framtíð Umferðarmiðstöðvarinnar (BSÍ). Bygging hennar hófst árið 1959 og var hún tekin í notkun í nóv- ember 1965. Gunnar Hansson teikn- aði húsið. Í skýrslunni kemur m.a. fram að í desember 2012 fór fram einfalt mat á núverandi ástandi BSÍ með sjónmati á burðarvirki og gluggum hússins ásamt plönum umhverfis húsið og í framhaldinu var unnið mat á kostnaði við endurbyggingu á núverandi húsi. Við skoðun árið 2012 var ástand byggingarinnar orðið mjög bágborið vegna takmarkaðs viðhalds í áratugi. Í lok árs 2017 var þetta ástandsmat og mat á kostnaði uppfært og gefið út minnisblað. Annars vegar var metinn kostnaður með tilliti til endurbygg- ingar og hins vegar nauðsynlegra lagfæringa ttil að geta notað húsið í 3-5 ár þar til ákvörðun verður tekin um framhaldsskipulag svæðisins. Í minnisblaðinu segir: „Í gegnum tíðina hefur bygging Umferðar- miðstöðvar örugglega ekki alltaf ver- ið vel og að öllu leyti vatnsheld og því má gera ráð fyrir að […] myglu sé að finna í húsinu, jafnvel víða.“ Meginniðurstaða ástandskönnunar núverandi bygginga var eftirfarandi: Kostnaður við að laga og end- urbyggja húsið í sem næst upp- runalegri mynd er metinn um 550 milljónir króna, ef reiknað er með að burðarvirki hússins verði notað áfram. Byggingarkostnaður nýs sam- bærilegs húss er gróflega metinn um 700 mkr. Kostnaður við að rífa núver- andi byggingu er ekki innifalinn, en er metinn um 50 mkr. Leggst gegn niðurrifi Í umsögn Minjastofnunar frá árinu 2014 segir að stofnunin telji bygg- inguna hafa ótvírætt varðveislugildi og muni leggjast gegn því að hún verði rifin, komi slík tillaga fram. Umferðarmiðstöðin sé gott dæmi um framsækna byggingarlist 6. áratug- arins og hafi menningarsögulegt gildi sem opinber bygging sem lengi hefur þjónað sem ein helsta samgöngu- miðstöð Reykjavíkur. Hins vegar mæli ekkert á móti því að byggingin verði endurnýjuð og stækkuð. Í fyrri vinnu við undirbúning sam- keppni um U-reit var ákveðið að halda því opnu í samkeppninni hvort BSÍ stæði eða viki. Niðurstaða starfshópsins nú er að það sé óheppilegt og geri bæði þátt- takendum og dómnefnd erfitt fyrir, þ.a. æskilegt er að afstaða liggi fyrir í keppnislýsingu. Því verður að taka ákvörðun af eða á. Þarf Umferðarmiðstöðin að víkja?  Taka þarf ákvörðun áður en efnt er til samkeppni  Endurbygging gæti kostað hálfan milljarð Morgunblaðið/Eggert Umferðarmiðstöðin Hefur verið helsta miðstöð rútubílastarfsemi í landinu allt frá því hún tók til starfa árið 1965. Morgunblaðið/Árni Torfason Bílalúgan Margir eiga minningar frá viðskiptum við veitingastaðinn á BSÍ, sem opinn var allan sólarhringinn. Bakki með sviðum var afar vinsæll. Sprinter, Vito, Citan. Sendibílar fyrir öll verkefni. Sendibílarnir frá Mercedes-Benz henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. Eigum úrval sendibíla sem eru tilbúnir til afhendingar. Komdu í heimsókn í sýningarsalinn á Krókhálsi 11 og kynntu þér möguleikana. Fáðu tilboð í sendibíl frá Mercedes-Benz. Við tökum vel á móti þér. ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.