Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 14

Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Síðari heimsstyrjöldin ersögusvið tölvuleiksinsKards sem íslenska tölvu-leikjafyrirtækið 1939 Ga- mes er með í smíðum um þessar mundir. Verkið er langt komið og síðan í apríl síðastliðnum hafa spil- arar með PC-tölvur getað nálgast reynsluaðgang að leiknum á leikja- veitunni Steam. „Að vissu leyti för- um við nokkuð troðnar slóðir. Kards er í grunninn klassískur rafrænn safnkortaleikur en bætum við tölu- vert mikilli herkænsku sem gerir þetta að spennandi bræðingi,“ segir Ívar Kristjánsson, framkvæmda- stjóri 1939 Games. Þekking á sögunni til bóta „Það er gott að þekkja nokkuð til sögu seinni heimsstyrjaldarinnar þar sem stríðstækin og herdeildir eru að mestu sögulega réttar í leikn- um. Reyndar virðist það vera svo að flestir sem spila leikinn í dag eru fullorðið fólk, þar sem meðalaldur er 32 ára, og hefur áhuga á sögunni,“ segir Ívar ennfremur. Í dag vinna alls 11 manns – auk undirverktaka – við framleiðslu á Kards og eru menn langt komnir með þróunina. Í raun er aðeins fín- pússning eftir en leikurinn verður gefinn út fyrir PC-tölvur í byrjun febrúar næstkomandi og svo fyrir snjallsíma næsta vor. Bræðurnir Ívar og Guðmundur Kristjánssynir stofnuðu 1939 Games fyrir fjórum árum með það fyrir augum að koma hugmyndum að tölvuleiknum í veruleika. Þeir bræð- ur eru öllum hnútum kunnugir í tölvuleikjaframleiðslu, en Ívar var einn stofnenda CCP og þeir bræður störfuðu báðir þar áralangt. Fjögurra ára þróunarvinna Um fjögur ár eru síðan byrjað var að leggja grunninn að þeim leik- kerfum og hanna það útlit sem leik- urinn Kards styðst við. Svo tók við forritun og tæknivinna, þar sem val- inn maður er í hverju rúmi. Í upphafi fengu þeir bræður frumherjastyrk frá Tækniþróunarsjóði og nokkra englafjárfesta, sem svo eru kallaðir, að verkefninu. Síðar fékk fyrirtækið 50 milljóna króna vaxtarstyrk frá Tækniþróunarsjóði. Á síðasta ári komu svo sterkir erlendair og inn- lendir fjárfestingarsjóðir að verk- efninu en heildarfjármögnun nemur í dag um 3,4 milljónum Bandaríkja- dala. „Ég hef mikið spilað ýmiss kon- ar herkænskuborðspil og tölvuleiki frá unga aldri og hef líka lengi haft sérstakan áhuga á leikjum þar sem sögusviðið er seinni heimsstyrjöldin. Einnig hafði ég verið að töluvert í safnkortaspilum en þema slíkra leikja er oftar en ekki ævintýra- heimar fullir af göldrum, drekum, álfum og slíku. Við bræðurnir sáum okkur því leik á borði og einhentum okkur í verkefnið,“ segir Guð- mundur sem er yfirhönnuður við gerð þessa tölvuleiks og öllum hnút- um kunnugur í faginu. Kards gengur út á að búa til 40 spila stokk úr spilum sem spilarar safna og eiga. Má segja að spilin séu vopnabúr spilaranna í leiknum og spilarar geta valið að spila sem helstu stórþjóðirnar sem börðust í heimsstyrjöldinni, Bandaríkin, Bret- land, Þýskaland, Sovétríkin og Jap- an. Mynda bandalag þjóða Almennt er sagt að upphaf síð- ari heimsstyrjaldarinnar hafi verið innrás Þjóðverja í Pólland 1. sept- ember 1939 – en Bretar og Frakkar lýstu yfir stríði á hendur Þjóðverjum tveimur dögum síðar. Framvinduna þarf ekki að rekja hér, henni er ekki heldur fylgt nákvæmlega í tölvu- leiknum en hin sögulega skírskotun er öllum ljós. „Leikmenn geta spilað með eina þjóð eða búið til bandalag tveggja þjóða og spila síðan við aðra leik- menn eða tölvuna. Hver þjóð hefur ákveðinn sögulegan bakgrunn og eiginleika og svo sína hermenn, skriðdreka, fallbyssur, orrustu- og sprengiflugvélar. Hertækin eru að mestu sögulega rétt innbyrðis og eru raunupplýsingar á hverju spili fyrir þá sem vilja fræðast meira um viðkomandi herdeild eða hertæki,“ segir Ívar. Sterkur stokkur mikilvægur „Hvert spil í leiknum stendur fyrir herdeildir, flugvélar, skrið- dreka, fallbyssur og ýmiss konar skipanir og viðburði. Það er í raun jafnmikilvægt að búa til sterkan stokk og hvernig hann er spilaður en hver leikmaður getur átt marga mis- munandi stokka hverju sinni,“ segir Guðmundur. „Vilji fólk svo bæta við sig spilum getur það keypt sér- stakan pakka fyrir gull sem það vinnur sér inn við að spila leikinn eða greiða þeir sérstaklega fyrir með peningum. Leikurinn er svo- kallaður Free To Play og flestir spil- arar eða 85-90% eyða engu í leiknum en þeir sem eyða peningum eru kannski að eyða að meðaltali 25-35 dollara á mánuði og í gegnum það fáum við tekjurnar.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Frumkvöðlar Bræðurnir Guðmundur, t.v, og Ívar Kristjánsson eru stofnendur 1939 Games sem framleiðir Kards Stríðsmyndir Í tölvuleiknum birtast á skjá myndir úr seinna stríði, svo sem af skriðdrekum og orustuflugvélum. Herdeildir, flugvélar og fallbyssur Sögusvið tölvuleiksins Kards sem íslenskir hönnuðir hafa framleitt er heimsstyrjöldin síðari. Spilarar hafa vopnabúr tiltækt þegar þeir stíga inn á vígvöll og berj- ast til síðasta manns í stafrænum heimi. Í dag er Kards-leikurinn fáanlegur fyrir PC-tölvur á Steam og á næsta vori verður hann svo tækur á snjalltækjum. Þá getur fólk farið að spila leikinn sín á milli í snjalltækjum – eða þá milli síma og tölvu. KARDS not- ast við kerfi sem svipar til ELO-stiga kerfis sem menn þekkja úr skák- heiminum. Með því eru spilarar paraðir saman við þá sem eru á svipuðu styrkleikastigi. Núna stendur yfir heimsmeistaramótið í KARDS þar sem 900 stigahæstu leikmennirnir um heim allan keppa um heimsmeistara- titilinn. Úrslitaviðureignir fjögurra efstu manna fara fram á Íslandi í des- ember næstkomandi. „Við þróun tölvuleikja er alltaf mjög gaman þegar viðbrögð spilaranna fara að koma Við erum núna því stödd í skemmtilegasta hluta ferlisins að mínu mati og erum mjög sátt við þátttökuna og þá endurgjöf og dóma sem við höfum fengið,“ segir Ívar Kristjánsson. „Um helmingur spilara er frá Evrópu og fjórðungur spilaranna frá Bandaríkjunum og Kanada, þá virðist vera mikill áhugi á leiknum í Kína og Japan og að undanförnu hef- ur Brasilía komið mjög sterk inn. Síðasta föstudag þegar fjöldi þátttak- enda náði 100 þúsund skáluðum við á vinnustofunni okkar hér á Granda- garði og gerum það næst þegar spilarar verða orðnir jafn margir íbúum á Íslandi, eða um 350 þúsund.“ Viðbrögð og endurgjöf góð ÞÁTTTAKENDUR Í LEIKNUM ERU ORÐNIR 100 ÞÚSUND Luxurius 2 bedroom Luxurius 2 bedroom apartment abt. 140 m2 with all accessories, wifi, fridge, light, curtains, washing and drying machines and even some nice furniture if desired, spacious storage room in cellar. Ideal for 2 childless respectable working couples. 360.000 ikr per month all included. Optional 1 car parking in car cellar plus some storage cabinet there extra for 50.000 ikr/month. No pets allowed and only quiet respectable employed parties will be accepted. The flat is on first floor, bright with windows in 3 directions and beautiful vista, with a patio for sunning and grilling. Wonderful quite neighbors and surroundings. Swimming pool and and facilities next door. Located in Boðaþing 8, flat no. 106. Also we have a good flat on second floor abt 100 m2 under an inclined roof with 2 bedrooms, sauna and plenty of storage room. Rent is 240.000 ikr/month all included. Location Hliðarhjalli 46, 200 Kópavogur. This is a quiet 3 story villa with good garden in a nice neighborhood and present residents are mostly very nice working polish people. halldorjonss@gmail.com VR óskar eftir orlof VR óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2019. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is • Lýsing á eign og því sem henni fylgir • Ástand íbúðar og staðsetning • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Öllum tilboðum verður svarað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.