Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
að sjálfsögðu ekkert um það hvað síð-
ar kann að hafa gerst,“ segir Haukur.
En viðtalið við Ólöfu gefur tilefni til
að rifja upp sögu Leirfinns.
Ofanritaður blaðamaður var tiltölu-
lega nýbyrjaður á Morgunblaðinu
þegar honum var falið að sjá um að
skrifa lögreglufréttir í blaðið. Ég
hafði aðeins verið viku í því starfi þeg-
ar lögreglan í Keflavík hringdi
fimmtudaginn 21. nóvember 1974 og
bað um að auglýst væri eftir vitnum
að ferðum Geirfinns Einarssonar,
sem hafði horfið af heimili sínu og
ekkert spurst til. Fréttin var stutt
eins dálks frétt á blaðsíðu tvö daginn
eftir. Hvarf Geirfinns þótti afar dul-
arfullt og var fjallað um málið í frétt-
um næstu daga. Reyndar næstu vikur,
mánuði, ár og áratugi.
Það var svo viku eftir hvarf Geir-
finns að Morgunblaðið var boðað til
fundar í lögreglustöðinni í Reykjavík.
Þetta var þriðjudaginn 26. nóvember.
Þennan fund sótti ég ásamt þeim
mikla snillingi Ólafi K. Magnússyni
ljósmyndara. Á fundinum var leir-
styttan sýnd í fyrsta skipti. Ríkey
Ingimundardóttir myndlistarkona í
Keflavík gerði styttuna að beiðni lög-
reglunnar. Hún átti að líkjast manni
sem hringt hafði úr Hafnarbúðinni
kvöldið sem Geirfinnur hvarf og talinn
hafa verið sá sem hringdi heim til hans
um kvöldið.
Sama dag hafði verið sagt frá gerð
leirstyttunnar í Morgunblaðinu og birt
hnakkamynd, sem jók á spennuna.
Myndir af styttunni birtust í sjónvarp-
inu strax um kvöldið og í dagblöðum
landsins daginn eftir. Um fátt annað
var talað en þetta dularfulla manns-
hvarf og Morgunblaðið birti myndina
þriggja dálka á baksíðunni. Fljótlega
var farið að kalla styttuna Leirfinn.
Rauðglóandi símar
Blaðamenn Morgunblaðsins fylgd-
ust með hverju skrefi lögreglunnar
næstu daga. Strax og sjónvarpið hafði
sýnt leirmyndina byrjuðu símarnir að
hringja á lögreglustöðvum landsins og
þeir hringdu linnulítið næstu daga.
Alls bárust yfir 100 símtöl og áður
en varði var lögreglan í Keflavík kom-
in með nöfn 70 manna, en á suma var
Það er bara einn Leirfinnur
Nýleg tilgáta um að leirstyttur í Geirfinnsmálinu hafi verið tvær gefur tilefni til að rifja upp sögu
þessarar frægu styttu Þeir sem gerst þekkja til taka af öll tvímæli Mistök að birta myndina?
Morgunblaðið/Friðþjófur
Frá hlið Hér má sjá vangasvip Leir-
finns. Örn Höskuldsson er fjær.
Morgunblaðið/Ól.K.Mag.
Fyrsta myndin Þetta er myndin sem birtist á baksíðu Morgunblaðsins 27.
nóvember 1974. Margar ábendingar komu í kjölfar þess að myndin birtist.
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Á fundi Á hinum sögulega blaðamannafundi þýska lögregluforingjans Karls
Schütz og teymis hans hinn 2. febrúar 1977 stóð Leirfinnur á miðju borði.
Morgunblaðið/Eggert
Í vikunni Þetta er nýjasta myndin af Leirfinni. Hún var tekin í varðveislu-
húsi Þjóðminjasafnins á mánudag. Þetta er eina litmyndin sem blaðið á.
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Frægasta leirstytta Íslandssögunnar,
Leirfinnur, hefur oft ratað í fréttir
fjölmiðla undanfarin 45 ár, allt frá því
hún var kynnt til sögunnar haustið
1974. Nú síðast var sett fram tilgáta
um að leirstytturnar væru tvær.
Morgunblaðið kannaði málið og nið-
urstaðan var þessi: Það er bara einn
Leirfinnur. Og hann er núna varð-
veittur í húsnæði Þjóðminjasafnsins í
Hafnarfirði.
Fyrir stuttu birtist í fréttum Ríkis-
sjónvarpsins viðtal við Ólöfu Nordal
myndlistarmann, sem er að undirbúa
yfirlitssýningu um feril sinn.
Í viðtalinu rifjaði hún meðal annars
upp verk sem hún vann fyrir
Kristnitökuhátíðina á Alþingi árið
2000. Ólöf ákvað að leggja Sævari
Ciesielski lið með því að endurgera
Leirfinn og setja á staur á Þingvöllum
þar sem þingheimur þyrfti að ganga
fram hjá honum og sjá hann.
„Dularfullt fyrirbæri“
Hún hugðist síðan endurgera Leir-
finn fyrir yfirlitssýninguna. „Niður-
staðan af þessari vinnu er sú að það
hafi verið gerðir tveir leirhausar,“
sagði Ólöf í viðtalinu við RÚV. „Fyrri,
sem þjóðin þekkir, og svo einhver
seinni sem er miklu dularfyllra fyrir-
bæri. Ég hef engar kenningar, þetta
er mér algjör hulin ráðgáta, ég skil
ekki af hverju það hafi þurft að gera
tvo. Nema þá að þessi sem var gerður
fyrst hafi verið of líkur ákveðinni per-
sónu og það hafi þurft að breyta hon-
um.“
Ólöf hélt því líka fram að lögreglan
hefði gert myndir af Leirfinni upp-
tækar í ljósmyndasöfnum dagblað-
anna. Þetta á alla vega ekki við um
Morgunblaðið. Í möppunni „Geir-
finnsmálið“, sem greinarhöfundur hef-
ur varðveitt um árabil, eru til nokkrar
slíkar myndir. Þær myndir og mynd
sem tekin var af Leirfinni í Þjóðminja-
safninu í vikunni eru birtar hér með
greininni. Lesendur geta því spreytt
sig á því hvort þeir sjá einhvern mun.
Bara gerð ein leirmynd
Morgunblaðið ræddi við Hauk Guð-
mundsson, sem stjórnaði frumrann-
sókninni á hvarfi Geirfinns Einars-
sonar, sem fór frá heimili sínu í
Keflavík að kvöldi 19. nóvember 1974
og ekkert hefur til hans spurst síðan.
Hvarf Geirfinns og Guðmundar
Einarssonar er án efa umtalaðasta
sakamál Íslandssögunnar.
„Það var bara gerð ein leirmynd í
tengslum við okkar rannsókn. Ég veit SJÁ SÍÐU 20
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is