Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.10.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 bent oftar en einu sinni. Er skemmst frá því að segja að birting leirstytt- unnar bar ekki þann árangur sem menn vonuðust eftir og leiddi ekki til þess að leysa gátuna um hvarf Geir- finns. Ríkey var ekki nógu ánægð með þær teikningar sem hún gerði og því var ráðist í að gera leirstyttu. Lög- reglumennirnir bundu vonir við að mynd af henni myndi leiða þá á sporið en svo fór ekki. Eftir á að hyggja töldu þeir að það hefðu jafnvel verið mistök að birta þessa mynd, birtingin hrfði aðeins ruglað fólk í ríminu. En svar við þeirri spurningu fæst aldrei, frek- ar en við svo fjölmörgum öðrum spurningum í þessu dularfulla máli. Eftir þetta var Leirfinnur settur í geymslu og ekki sýndur opinberlega fyrr en á blaðamannafundi þýska lög- regluforingjans Karls Schütz og rann- sóknarteymis hans 2. febrúar 1977. Styttan stóð á borðinu fyrir framan lögregluforingjann. Ekki var að sjá að hún væri eitthvað breytt frá frumsýn- ingunni. Allavega gat ég ekki séð neinn mun, en ég sat fundinn fyrir hönd blaðsins. Margt gerðist í Geirfinnsmálinu næstu árin sem landsmenn þekkja vel og ekki er ástæða til að tíunda hér. Handtaka svonefndra Klúbbmanna haustið 1975 vakti að vonum geysilega athygli. Þeir sátu í saklausir gæslu- varðhaldi í 90-105 daga. Einn þeirra, Magnús Leópoldsson, óskaði eftir því mörgum árum síðar að rannsókn yrði gerð á tildrögum þess að hann var hnepptur í gæsluvarðhald. Einnig skyldi kannað hvort rannsóknarmenn hefðu beðið Ríkeyju að móta myndina eftir ljósmynd af Magnúsi eins og flogið hafði fyrir á sínum tíma. Gerð eftir lýsingu sjónarvotta Lára V. Júlíusdóttir hrl. var settur saksóknari í málinu og skilaði hún skýrslu 4. febrúar 2003. Það var nið- urstaða Láru að umrædd leirmynd hefði verið gerð eftir fyrirsögn sjón- arvotta í Hafnarbúðinni. Leirmyndin hefði m.a. verið gerð á grundvelli teikninga sem höfundur hennar hefði þegar gert eftir lýsingu sjónarvotta. „Ekkert hefur komið fram við rannsóknina sem bendir til þess að rannsóknaraðilar í Keflavík hafi ætlað að láta leirmyndina líkjast Magnúsi Leópoldssyni enda enginn sjáanlegur tilgangur með slíku. Ef lögreglan hefur á þeim tímapunkti grunað Magnús um að vera manninn í Hafnarbúðinni hefði verið mun auð- veldara fyrir lögreglu að fá úr því skorið með löglegum og venjubundn- um hætti,“ var niðurstaða Láru V. Júlíusdóttur. Mjög margt athyglisvert kemur fram í skýrslu Láru V. Júlíusdóttur, enda var hún 98 blaðsíður. Ekki er dálkapláss til að rekja það allt í þessari grein. Þó er rétt að geta þess að Lára segir að í vinnumöppu lögreglunnar í Keflavík hafi fundist listi með nöfnum 73 einstaklinga sem almenningur hafi bent á. Á suma bentu fleiri en einn en aðeins virðist hafa komið ein ábending um Magnús Leópoldsson. Lára nefndi sem dæmi að sex ábendingar hefðu borist um Baldvin Baldvinsson, þekktan knattspyrnu- mann. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en hann hafi verið alsaklaus dreginn inn í þetta mál. Leirstyttan („Leirfinnur“) var af- hent Þjóðminjasafninu til varðveislu í september 2017, að tillögu lögreglu- stjórans í Reykjavík, enda var grip- urinn ekki talinn til málsskjala í Geir- finnsmálinu. Hann er nú í varðveislu- húsnæði safnsins á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði. Þetta segir Freyja Hlíð- kvist Ómarsdóttir Sesseljudóttir, sér- fræðingur í munasafni. Aðeins þessi eina stytta er varðveitt í safninu. Sem stendur er hún eingöngu skráð í aðfangabók safnsins og þá undir heitinu „leirstytta“. Nánari og ítarlegri skráning á henni fer fram þegar rafræna skráningin verður framkvæmd. „Ástæða þess að sú ítarskráning hefur ekki enn átt sér stað er sú að við stöndum þessi misserin í flutningi á safnkosti munasafns Þjóðminja- safnsins í hið nýja varðveisluhúsnæði á Tjarnarvöllum og því hafa ýmis hefðbundin störf munasafnsins þurft að bíða eilítið,“ segir Freyja. Geirfinnsmálið hefur fylgt þjóðinni í nær hálfa öld. Greinarhöfundur hef- ur fylgst með því frá upphafi og rifjað það upp í allmörgum greinum hér í blaðinu. Blaðamenn eru sagnaritarar samtímans og því sit ég við tölvuna og skrifa enn eina greinina um málið. Og mögulega ekki þá síðustu. Morgunblaðið/Árni Johnsen Frumrannsóknin Valtýr Sigurðsson, John Hill og Haukur Guðmundsson önnum kafnir við vinnu sína við Geirfinns- málið á lögreglustöðinni í Keflavík. Í gluggakistunni geymdu þeir leirstyttuna, hinn svokallaða Leirfinn. Lítil frétt Fyrsta fréttin um hvarf Geirfinns lét lítið yfir sér. Engan gat grunað að þetta væri upphafið að frægasta sakamáli samtímans. Morgunblaðið/Friðþjófur Hnakkamynd Þessi mynd birtist í Morgunblaðinu og jók á spennuna. „Þessi tilgáta listakonunnar stenst ekki. Það var bara gerð ein leirstytta vegna rannsóknar Geir- finnsmálsins,“ segir Sævar Þ. Jóhannesson, fyrrverandi rann- sóknarlög- reglumaður. Sævar starfaði við tæknideild sakadóms Reykjavíkur þeg- ar rannsókn Geirfinnsmálsins hófst haustið 1974. Frumrann- sóknin var gerð í Keflavík en síðar færðist hún til sakadóms og tæknideildin varðveitti leirstytt- una. Tæknideildin var mjög öflug stoðdeild við rannsóknir saka- mála á sinni tíð. „Leirstyttan var gagn í saka- máli og geymd sem slík,“ segir Sævar. „Þegar sakadómur var leystur upp árið 1992 bað Gunn- laugur Briem yfirsakadómari mig að varðveita styttuna sem ég gerði í fjöldamörg ár. Ég geymdi hana í læstum skáp á heimili mínu. Síðar lánaði ég hana sem sýningargrip til rannsóknar- deildar lögreglunnar í Vínlands- leið, þar sem hún var sýnd í gler- skáp. Styttan var síðan lánuð á sýningu í ljósmyndasafni Reykja- víkur að mér forspurðum. Það síðasta sem ég frétti var að lög- reglustjórinn í Reykjavík hefði af- hent Þjóðminjasafninu leirstytt- una til varðveislu. Ég var ekki spurður um þessa ráðstöfun heldur,“ segir Sævar. Hann segir það sína skoðun að framtíðarheimili Leirfinns eigi að vera í lögregluminjasafni sem nú er verið að setja á stofn. Þar verða margir merkir munir sem tengjast lögreglu og rannsóknum sakamála. Sævar hefur verið öfl- ugur safnari og mun leggja safn- inu til ófáa muni. Geymdi Leirfinn í læstum skáp heima hjá sér í fjöldamörg ár SÆVARI Þ. JÓHANNESSYNI FALIN VARÐVEISLA STYTTUNNAR Sævar Þ. Jóhannesson Ráðstefna um breska rithöfundinn C.S. Lewis og tengsl hans við Ísland verður haldin í Háskólabíói og ná- lægum húsum á morgun og laugar- dag, 18.-19. október. Í kvöld kl. 18:30 verður sérstakur fundur undir heit- inu „Tea with Tumnus“ í sal HT-105 á há- skólatorgi Há- skóla Íslands. Léttar veitingar. Fundurinn er ókeypis og öllum opinn. Lewis skrifaði m.a. Narníu-bæk- urnar, sem komu út á íslensku í þýðingu Kristínar Thorlacius, og fjöl- margir þekkja. Einnig komu út á ís- lensku bækurnar Rétt og rangt, og Guð og menn, sem Andrés Björnsson þýddi og Með kveðju frá Kölska í þýðingu Gunnars Björnssonar svo dæmi séu tekin. Ráðstefnan fjallar um ævi og verk C.S. Lewis og tengsl hans við Ísland. Á dagskrá eru erindi, kvikmyndasýn- ingar, umræður, fjölskyldudagskrá og fleiri viðburðir. Nánari upplýsing- ar og skráning eru á slóðinni CSLew- is.is. Stjúpsonur C.S. Lewis, Douglas Gresham, mun rifja upp kynni sín af Lewis. Einnig flytja erindi dr. Jerry Root og dr. Melody Green sem bæði eru sérfróð um C.S. Lewis. Flest er- indin verða túlkuð á íslensku. Ungur heillaðist C.S. Lewis af Ís- lendingasögunum og goðafræði Ís- lendinga og má nefna að ævilöng vin- átta hans við höfund Hringadróttins- sögu, J.R.R. Tolkien, hófst með sameiginlegum áhuga þeirra á Ís- lendingasögum. Síðar snerist Lewis frá guðleysi til kristinnar trúar og gerðist mikilvirkur trúvarnarmaður. gudni@mbl.is Ráðstefna um C.S. Lewis  Heillaðist af Íslendingasögum Ljósmynd/CSLewis.is Áhrifamikill C.S. Lewis ritaði fjölda áhrifamikilla bóka. Narnia Vinsælar barnabækur. m. Lítil og létt loftpressa. Kemur með fjórum stútum sem passa á dekk, bolta, vindsængur og fleira. REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu) M12 Inflator Alvöru loftpressa fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.