Morgunblaðið - 17.10.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 17.10.2019, Síða 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 Washington. AFP. | Þegar geimfarar NASA fara næst til tunglsins eiga þeir að geta gengið á yfirborðinu nánast alveg eins og þeir væru á jörðinni – án þess þurfa að hoppa eins og kanínur – þökk sé nýjum geimbúningi sem bandaríska geim- vísindastofnunin hefur kynnt. Þeir eiga að vera betri að mörgu leyti en búningarnir sem notaðir voru í Apollo-geimferðunum. NASA kynnti annars vegar Orion-áhafnarbúning sem geimfar- ar eiga að vera í á leiðinni til tunglsins og hins vegar búning sem nefnist xEMU og er ætlaður til notkunar á yfirborði fylgi- hnattarins. NASA segir að xEMU-búningur- inn sé stækkanlegur og eigi því að passa á alla, auk þess sem hann geri geimförum kleift að ganga og hreyfa sig eðlilega á yfirborði tunglsins. „Þeir sem muna eftir Apollo-geimferðunum minnast væntanlega þess að Neil Armstrong og Buzz Aldrin hoppuðu eins og kanínur á yfirborði tunglsins,“ sagði Jim Bridenstine, forstjóri NASA. „Núna getum við gengið á yfirborði tunglsins og nýi búningurinn er því mjög ólíkur þeim gömlu.“ Bandaríkjamenn hættu tungl- ferðum 1972 en samkvæmt Artemis-áætluninni stefnir NASA að því að senda geimfara til tungls- ins ekki síðar en 2024 og síðan u.þ.b. einu sinni á ári eftir það. Geimvísindastofnun Bandaríkjanna hefur kynnt nýjan geimbúning, xEMU, sem er ætlaður til notkunar á yfirborði tunglsins Hámarkar hreyfanleika mjaðma, handa og fóta Búnaður sem tekur í sig CO2 Getur viðhaldið öndun í allt að sex daga Skv. Artemis-áætluninni á geimfar NASA að lenda á suðurskauti tunglsins og rannsaka merki um vatnsís sem fundust árið 2009 Á að passa á alla, stækkanlegur Hanskar Eru með hitara fyrir fingurna og hannaðir með það fyrir augum að auðvelt sé að hreyfa þá Neðri hluti Verndar fæturna gegn hrjúfu yfirborði Færanleg öndunarvél Orkugjafi Vatnsgeymir til kælingar Senditæki Búnaður: Stjórnborðshylki „Heili geimbúningsins“ stjórnar öndunarvélinni og öðrum búnaði Harður efri hluti Tengir tæki geimbúningsins saman Hjálmur Hjálmgríma sem verndar geimfarann gegn geislum sólar Loftræstingarbúnaður sem sér geimfaranum fyrir súrefni Nýr geimbúningur NASA Heimild: NASA Ljósmynd: Andrew Caballero-Reynolds Þurfa ekki að hoppa eins og kanínur á tunglinu  NASA kynnir nýja geimbúninga fyrir tunglfara Fjölmiðlar í Norður-Kóreu hafa birt myndir af einræðisherranum Kim Jong-un ríða hvítum hesti á snævi- þöktu Paektu-fjalli, helgum stað í augum Norður-Kóreumanna, og lýs- ingar meðreiðarmanna hans þóttu benda til þess að hann væri að undir- búa mikilvæga yfirlýsingu. „Ferð hans á hestbaki á Paektu- fjalli er stórviðburður og hefur mjög veigamikla þýðingu í sögu byltingar- innar í Kóreu,“ sagði norðurkóreska fréttastofan KCNA. Hún hafði eftir fylgdarmönnum einræðisherrans að þeir hefðu séð „göfugan ljóma“ í augum hans. „Þeir eru vissir um að í vændum sé stórvirki sem geri alla heimsbyggðina agndofa af undrun og marki stórt skref fram á við í kór- esku byltingunni.“ Paektu-fjall er um 2.750 metra hátt og sagt er að faðir Kims hafi fæðst þar, eins og Dangun, stofnandi fyrsta kóreska konungdæmisins fyr- ir rúmlega 4.000 árum. Sérfræð- ingar í málefnum Norður-Kóreu segja að Kim hafi áður farið á fjallið í aðdraganda mikilvægra pólitískra ákvarðana, til að mynda í desember 2017 þegar hann undirbjó áramóta- ræðu sem markaði upphaf samn- ingaumleitana hans við stjórnvöld í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum. Ferð Kims á fjallið hefur vakið vangaveltur um að hann sé að endurskoða loforð sitt um að hætta tilraunum með kjarnavopn og lang- drægar eldflaugar vegna óánægju með þráteflið í viðræðunum við bandarísk stjórnvöld. Einræðisherr- ann hefur krafist þess að Banda- ríkjamenn slaki á efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Norður-Kóreu áður en hann hefji kjarnorku- afvopnun en stjórnin í Washington hefur ekki fallist á það. Embættismenn landanna tveggja ræddu málið í Stokkhólmi fyrr í mánuðinum en samningamaður Norður-Kóreustjórnar sagði að við- ræðunum hefði verið slitið vegna þess að þær hefðu ekki borið þann árangur sem hún hefði vonast eftir. bogi@mbl.is AFP Heimsbyggðin slegin undrun? Kim Jong-un einræðisherra þungt hugsi á hvítum hesti í skógi á Paektu-fjalli eftir fyrstu snjókomu vetrarins. Telja „stórvirki“ vera í vændum  Sáu „göfugan ljóma“ í augum Kims „Tvíburahöfuðborg heimsins,“ stendur á stóru skilti sem blasir við þeim sem aka inn í bæinn Igbo-Ora í suðvestanverðri Nígeríu. Íbúar hans segja að þar sé tíðni fjölbura- fæðinga sú hæsta í öllum heiminum og þeir halda upp á það með árlegri tvíburahátíð. Hundruð tvíbura hvaðnæva af landinu taka þátt í há- tíðinni, syngja og dansa í litríkum skrautbúningum. „Með hátíðinni viljum við stuðla að því að öll heimsbyggðin geri sér betur grein fyrir mikilvægi tvíbura sem sér- stakra barna og gjafa frá Guði,“ sagði fertug kona á meðal hátíðar- gestanna. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar í Nígeríu fæðast að meðaltali 45-50 tvíburar á hverjar þúsund fæðingar í héraðinu sem Igbo-Ora tilheyrir. Á Íslandi hefur tíðni fjölburafæðinga verið u.þ.b. 14 á hverjar þúsund fæðingar. GUÐSGJÖFUNUM FAGNAÐ AFP Guðsgjafir Mæður halda á tvíburum sínum á hátíð í höfuðborg tvíburanna. Hátíð í tvíbura- höfuðborg heimsins 100% Merino ull Flott og þægileg ullarnærföt við allar aðstæður Frábært verð Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Verslun Grétars Þórarinns- sonar, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.