Morgunblaðið - 17.10.2019, Qupperneq 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Það er óhætt að
segja að nýr sam-
göngusáttmáli ríkis og
sveitarfélaga hafi vak-
ið mikla umræðu í
samfélaginu, enda
löngu tímabært að far-
ið sé í samgöngu-
úrbætur á
höfuðborgarsvæðinu.
Verst þykir okkur
sjálfstæðismönnum í
Reykjavík að sáttmál-
inn, ef sáttmála skyldi kalla, er í
raun algjörlega óútfærður. Þetta
staðfesti Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri í kastljósviðtali fyrir
stuttu.
Það er ekki ábyrgt af stjórnmála-
mönnum að ana af stað í stór-
framkvæmdir án þess að hnýta alla
lausa enda, hvað þá að hnýta fyrir
stærsta þátt sáttmálans, fjármögn-
unina. Ekki liggur fyrir arðsem-
ismat en oddviti okkar sjálfstæð-
ismanna, Eyþór Laxdal Arnalds,
hefur ítrekað bent á nauðsyn þess
að gert verði arðsemismódel.
Nauðsynlegt að fram-
kvæma arðsemismat
Hann hefur sagt að mikilvægast
sé að gert verði arðsemismat á fyr-
irhuguðum framkvæmdum en til
þess þarf að gera umferðarmódel af
höfuðborgarsvæðinu. Þá sagði hann
í færslu á Facebook: „Í Hollywood
framleiða menn ekki gamanmynd án
þess að gera arðsemismódel.“ Þessu
hljóta allir skynsamir stjórnmála-
menn að vera sammála.
Stærsti hluti fjármögnunarinnar
upp á 60 þúsund millj-
ónir króna á að koma í
gegnum veggjöld sem
eru ekkert annað en
skattlagning á höf-
uðborgarbúa.
Félagshyggjumað-
urinn Dagur B.
Eggertsson
Eftir að umræðan
um veggjöld komst í
hámæli hef ég verið að
velta fyrir mér nokkr-
um staðreyndum um
veggjöldin. Í fyrsta lagi munu þau
íþyngja þeim mest sem búa í efri
byggðum Reykjavíkur, enda þurfa
íbúar þar oftar en ekki að nýta sér
stofnvegi til að koma sér í og úr
vinnu. Þau munu bitna minna á íbú-
um sem búa miðsvæðis, enda eru
langflest fyrirtæki og stofnanir stað-
sett þar, sem er auðvitað hluti af
vandamálinu hvað varðar umferð-
aröngþveitið. Það þarf engan sér-
fræðing til að sjá þennan skipulags-
halla en umferðarteppurnar mynd-
ast á morgnana þegar fólk ferðast í
vestur og í austur síðdegis. Þetta sjá
allir með berum augum þegar þeir
aka í og úr vinnu. Þá má líka leiða að
því líkur að þeir sem hafa minna á
milli handanna og búa í efri byggð-
um Reykjavíkur fari verst út úr því
fyrirkomulagi sem félagshyggju-
maðurinn Dagur B. Eggertsson
áformar.
Dagur sagði í viðtali á Sprengi-
sandi á Bylgjunni inntur eftir svör-
um um breytta gjaldtöku: „Mér
finnst þetta einn af stóru sigrunum í
þessu samkomulagi frá sjónarhóli
okkar sem stýrum sveitarfélögunum
á höfuðborgarsvæðinu. Ég held að
óháð þessu samkomulagi þá stefnum
við í breytta gjaldtöku á umferð.“
Orkuskipti í samgöngunum
munu hafa áhrif
Auðvitað er það ekki svo að hægt
sé að slá breytta gjaldtöku út af
borðinu enda munu orkuskipti í
samgöngum hafa gríðarleg áhrif á
næstu árum. En það verður að vera
algerlega á hreinu að gjaldtaka sem
þessi má ekki íþyngja skattgreið-
endum. Þess vegna er nauðsynlegt
að útfærslan liggi fyrir áður en hald-
ið er af stað svo skattgreiðendur í
Reykjavík lendi ekki í tvísköttun.
Hvað orkuskiptin varðar má jafn-
framt benda á að borgaryfirvöld
hafa sofnað á verðinum hvað varðar
innviðauppbygginu til að flýta fyrir
orkuskiptum. Hér er átt við að
Reykjavík, sem á stærstan hlut í
Orkuveitu Reykjavíkur, hefur enn
ekki farið af stað með tengi í öll fjöl-
býlishús svo íbúar þar geti hlaðið
bifreiðir sínar. Sjálfstæðismenn hafa
ítrekað lagt þetta til í borgarstjórn.
Aukinheldur má nefna í samhengi
samgöngusáttmálans að tækniþróun
getur reynst ótrúlega hröð, sem
verður enn ein breytan í þessu sam-
hengi sem taka þarf tillit til. Við get-
um nefnt sjálfakandi bifreiðir til að
mynda. Bent hefur verið á að sjálf-
akandi ökutæki gætu mögulega
fækkað bílum umtalsvert en það
mun skapa mikil tækifæri, m.a.
verði hægt að fækka bílastæðum og
gera vegi minni í stað þess að
byggja stórvirki sem eiga að sinna
almenningssamgöngum.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
nauðsynlegt að útfæra fjármögnun
áður en lengra er haldið.
Veggjöld koma verst niður
á þeim verst settu
Eftir Björn Gíslason » Það er ekki ábyrgt af
stjórnmálamönnum
að ana af stað í stór-
framkvæmdir án þess að
hnýta alla lausa enda
Björn Gíslason
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Ég tel að álitsgerðir
prófessors Carls Bau-
denbacher, fyrrverandi
dómsforseta EFTA-
dómstólsins í Lúx-
emborg og Skúla
Magnússonar, dómara
við Héraðsdóm
Reykjavíkur, fyrrver-
andi ritara EFTA-
dómstólsins, hafi tagl-
hnýtt Alþingi við orku-
pakkann. – Prófessorinn hefur
haldið hér fjölda fyrirlestra.
Í álitsgerð prófessors CB er virðu-
leg grímulaus ógnun um að Íslend-
ingar eiga að lúta yfirvaldinu; Evr-
ópuvaldinu (m.a. Surveillance
Authority (ESA)). Ekki skortir að
prófessorinn fullvissar lesanda um
að landsmenn þurfi ekkert að óttast
nema skömmina að hafa trassað að
gera athugasemdir í tæka tíð.
Prófessor CB bendir á að ótækt sé
að draga lengur eðlileg samskipti
Noregs og Lichtensteins við ESB. Á
þessu hamrar hann. Þá nefnir pró-
fessorinn fyrrverandi ritara sinn,
Skúla, ítrekað til vitnis, um að
stjórnarskrá Íslands megi teygja,
svo hægt sé að samþykkja orkupakk-
ann.
Hæst stiguð íslensk, vegna lær-
dóms og reynslu, var álitsgerð Stef-
áns Más Stefánssonar og Friðriks
Árna Friðrikssonar Hirst, en dugði
ekki til, því þeir vöruðu ítrekað við
samþykki orkupakkans:
„Með vísan til framanritaðs er það
álit höfunda að ekki séu að óbreyttu
forsendur til þess að Ísland aflétti
stjórnskipulegum fyrirvara við um-
rædda ákvörðun sameiginlegu EES-
nefndarinnar.“ (S. 36)
Meirihluti Alþingis
var ósáttur með álits-
gerðina. Þá var gripið
til tveggja ráða: pípu-
hatts utanrík-
isráðherra og að vitna í
álitsgerð Skúla.
Í umfjöllun um orku-
pakkann hefur Skúli
réttilega titlað sig dós-
ent við HÍ, en í hans
eigin ferilskrá er hann,
réttilega, titlaður dóm-
ari við Héraðsdóm
Reykjavíkur.
Álitsgerð Skúla er ámælisverð
vegna þess að:
Einbeitt atlaga er gerð að
stjórnarskrá Íslands.
Framsal á stjórn orkumála og
þá orkulindum Íslands er metið
ámóta eða minna fullveldisafsal, en
framsal á fjármálaeftirliti.
Ekki er gagnrýnt að ESB hefur
undanfarinn aldarfjórðung tekið sér
aukið vald innan EES-samningsins.
Er Skúli ekki meðvitaður um að hon-
um beri að gæta hagsmuna Íslands?
Tillögur fyrir Alþingi innihalda
mótsagnir.
Mótsagnir í tillögum flækja lög
og rétt landsins.
Í gerðinni er fjallað um laga-
tæknileg atriði en sjónum ekki beint
að afleiðingum ákvarðana.
Skúli heldur til skila að í stjórn-
arskránni eru engin ákvæði, um
framsal á ríkisvaldi. Að því gerðu
tekur hann að gæla við þá „fræði-
mennsku“ að löglaust framsal verði
löglegt ef það stendur lengi óátalið
og ítrekað. Er svo að skilja að við
það breytist stjórnarskráin.
Þá kemur í huga lesara hvort
þjófnaður verði löglegur ef lögleys-
Fráleitur samanburð
Eftir Tómas
Ísleifsson
Tómas Ísleifsson
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Það er ég viss um að margur lesandi
myndi taka undir þessa fyrirsögn,
sannfærður um að tilheyra hópi út-
valinna sem fordómalausastir væru í
veröldinni. En er það endilega svo?
Er nóg að berja sér á brjóst og segj-
ast fordómalaus gagnvart öllu
mögulegu, en gleyma öðru sem ekki
er eins áberandi og litaraft?
Hversu oft sér maður ekki á sam-
félagsmiðlum að þessi eða hinn ætti
að halda sig á mottunni því sá sé
gamall og úreltur?
Eins sést oft, þegar sagt er frá
skoðanakönnunum, að sjónarmið
þeirra sem „hafa meiri menntun“ og
„hærri tekjur“ séu einhvern veginn
rétthærri en hinna minna megandi.
Þó er lýðræði og jafn kosninga-
réttur, en ekki eru allir jafnir gagn-
vart tjáningarfrelsinu.
Kveikjan að þessum línum er fyr-
irsögn í blaði um mann sem átti
merkisafmæli í sumar leið. „Er enn
aktívur í umræðunni“. Því skyldi
hann ekki vera það, maður sem hafði
fundið til í stormum sinna tíða og
látið um sig muna?
Greinin hefði allt eins getað heitið:
„Er enn með réttu ráði“.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Fordómalausa þjóð
Fordómar Eru allir jafnfordóma-
lausir og þeir halda að þeir séu.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Sjóðheit steypujárnssending
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 9.500 kr.