Morgunblaðið - 17.10.2019, Síða 47

Morgunblaðið - 17.10.2019, Síða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019 um fyrir öllu í lífinu, þá getur maður verið nokkuð sáttur. Þessi ytri ró gerði allt sem hann sagði enn áhugaverðara, því að hann eyddi ekki óþarfa orðum þegar hnitmiðuð setning miðlaði innihaldinu svo miklu betur. Afi talaði hæglátlega og oft hljómaði það alvarlega en samofið öllu sem hann sagði var stórkostlegt skopskyn og bros sem gat bjargað deginum þegar það birtist. Hann átti það líka til að koma manni á óvart með dálitlum stríðnistóni. Þagnirnar ágerðust enn þeg- ar afi varð langafi dætra minna og Juliu Cassells. Lilja Rachel er átta ára og Emilia Florence sex. Þar sem við búum í London hafa þær aldrei lært íslenssku og þar sem afi kunni ekki ensku voru samræður þeirra á milli að mestu útilokaðar. Það kom ekki að sök. Ekki vitund. Það var merkilegt að horfa upp á ástina sem virtist ríkja milli afa og Lilju og Emiliu. Þær sátu hjá honum glaðar, voru alltaf til í að heimsækja hann og vera vissar um að hann sæi hversu mikils þær mátu hann. Sorg þeirra þegar þær fréttu af því að hann væri far- inn, einkum Lilju sem er farin að skilja svolítið meira en systir hennar, er meðal þess dapur- legasta sem ég hef séð. En hví- lík náðargjöf er það líka að þær fengu að elska hann og átta sig á því hversu sérstakur hann var. Vertu sæll, afi, vertu sæll, langafi. Þakka þér fyrir öll æv- intýrin, fallegu trégripina sem þú skarst út, notalegu fríin í sumarbústaðnum þínum og þinn innri mann – sem alltaf skein í gegn og sem ég, Julia, Lilja og Emilia fundum svo skýrt fyrir. Almar Örn Hafliðason. Afi minn stóð í mínum augun fyrir lífshætti og lífsafstöðu sem er mér afar kær. Sú veröld sem hann ólst upp í heillaði mig, enda er hún svo gerólík þeirri sem við þekkjum í dag. Frá- sagnir af ævi hans gáfu mér innsýn í það hvernig bæði Ís- land og heimurinn hafa breyst, ekki síst í því hvernig við mann- fólkið komum fram hvert við annað. Eins og margir sem þekktu hann vissu var Árni maður fárra, vel valinna orða. Þegar ég var lítill fannst mér hann mjög góður en oft afar alvöru- gefinn út á við, og undir niðri hafði ég nokkuð reglulega áhyggjur af því að ég hefði gert eitthvert skammarstrik (sem var líka raunin þegar ég var þriggja ára og kveikti í servíett- unum í brúðkaupi Sissúar móð- ursystur minnar. Þá sagði hann rólega: „Þetta er ekki nógu gott, vin- ur,“ og var fljótur að slökkva eldinn. Þar kom reynsla hans sem slökkviliðsmanns á Húsa- vík að góðum notum). Þegar fram liðu stundir átt- aði ég mig á að það hversu fá- skiptinn hann gat stundum sýnst var einfaldlega arfur frá því sem líklega var annar tími og opnaði þannig sömuleiðis glugga að reynslu minna eigin foreldra og að stað þaðan sem ég er upprunninn, þó að ég sé ekki fæddur þar. Einfalt dæmi um þetta er að reynsla hans sem bifvélavirki leiddi til þess að hann grandskoðaði margvís- legar vélar, reglulega og skipu- lega, tók þær varlega í sundur, gerði við þær og setti saman á ný, ofur rólega og íhugull, ger- ólíkt því sem tíðkast í einnota- menningu nútímans. Mér fannst mjög áhugavert að heyra söguna af forfeðrum hans sem hétu Sören og Árni til skiptis – alveg þangað til kom að honum sem eignaðist fjórar dætur – og ekki síst eftir að ég komst að því að uppruni nafns- ins er talinn vera í latínu, „Severus“ eða „Severin“, sem merkir strangur eða alvarlegur. Það var ástæða þess að ég ákvað seinna á ævinni að taka það upp sem millinafn og nota gömlu dönsku stafsetninguna, en afi átti ættir að rekja til Danmerkur. Ég ber þetta nafn til minningar um gæsku hans, hlýju og óhagganleika. Þakka þér, afi, fyrir sam- veruna, veiðarnar, viðgerðirnar og rannsóknirnar. Andri Søren Hafliðason. Ég mun alltaf muna eftir afa sem hlýjum og umhyggjasöm- um manni. Þótt hann liti stund- um svolítið alvarlega út hafði hann góða kímnigáfu og hann kom okkur oft til að hlæja með viðbrögðum sínum, sérstaklega þegar hann var hissa á ein- hverju sem við gerðum sem var svolítið kjánalegt. Hann breytti mínu lífi þegar hann gaf okkur notaða tölvu sem hann sendi alla leið til Skotlands. Þó ég væri bara 8 ára skildi hann hvað ég var hrifinn af tölvum. Með því hófst ævilangur áhugi minn og ferill, og fyrir það er ég eilíflega þakklátur. Þegar ég nota tölvur finnst mér ég alltaf vera tengd- ur honum. Afi var svo klár, hann gat lagað nánast hvað sem var. Þó hann segði oft: „Ég veit ekkert um þetta,“ þá tókst honum samt að gera við alla hluti. Þessir hæfileikar hans hafa alltaf verið mér til fyrirmyndar. Blessuð sé minning afa míns, hans verður minnst með kær- leika og mikilli virðingu. Stefán Sölvi Hafliðason. Nú þegar leiðir okkar Árna skilur er mér efst í huga rík vit- und og þakklæti fyrir að hafa átt góðan frænda. Við Ragn- heiður dóttir Árna urðum sam- ferða í gegnum barnaskólann og gagnfræðaskólann á Húsavík eins og þeir hétu í okkar ung- dæmi og ég man að mér var líka hlýtt til stóru frænkna minna, Unnar Bjargar og Mar- grétar. Sigþrúði náði ég því miður ekki að kynnast, það var svo langt á milli okkar í aldri. Mér hefur alla tíð verið ljóst að Árni frændi minn var maður mikilla hæfileika og þegar ég lít til baka sé ég að dagsverk hans er óvenju stórt. En svo höguðu örlögin því að leiðir okkar Árna lágu óvænt saman og það var fyrir rúmum tveimur áratugum. Ég og bróð- ir minn Árni höfðum færst mik- ið í fang, höfðum þá hafið út- gerð á fyrrverandi fiskibátum og það til farþegaflutninga á Skjálfandaflóa. Þá þegar var pabbi okkur stoð og stytta við endurbyggingu bátanna, en nú var komið að bróður hans. Ég knúði dyra hjá Árna Sör. og Þórdísi í Borgarsíðu hér á Akureyri og þar var nú ekki komið að tómum kofunum. Næstu árin áttum við hjónin oftar en ekki erindi til þeirra í Borgarsíðuna. Þar var yndislegt að koma; Þórdís brosmild og bjóðandi sínar góðgerðir og Árni þyngri á brún, en hlýjan sem umlukti okkur á því fallega heimili var sönn og gefandi. Árna mun vart verða minnst sérstaklega fyrir glaðlyndi eða augljósa kátínu af neinu tagi, en undir niðri leyndist djúpt og gott skopskyn. Með því að ögra frænda mín- um á því sviði fékk ég oft fram hans fallega og íbyggna bros, jafnvel skellihlátur. Vinátta okkar og gagnkvæm virðing þroskaðist og dafnaði og dugði fram að banadægri hans. Kveðjustund mín með honum einum skömmu fyrir andlátið mun verða með mér það sem ég á ólifað. Kærar kveðjur til aðstand- enda Árna og Þórdísar frá Herði Sigurbjarnar og Sigríði (Siggu). ✝ Ingimar Stein-dór Guðmunds- son fæddist í Ytri- Njarðvík 17. októ- ber 1948. Hann lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Hvamms- tanga 19. septem- ber 2019. Foreldrar hans eru Guðmundur S. Guðjónsson bif- reiðastjóri á Hvammstanga, f. 17.7. 1923, d. 17.6. 1997, og Gunnhildur Vig- dís Þorsteinsdóttir, f. 31.7. 1931. Ingimar var elstur í hópi níu systkina en systkini hans eru Þorsteinn Gunnar, f. 17.10. 1948, d. 17.9. 2005, Guðrún Þor- björg, f. 3.5. 1950, Kristín Helga, f. 19.6. 1951, Garðar Þór, f. 17.11. 1952, Edda Heiða, f. 13.2. 1955, Inga Margrét, f. 18.2. 1960, Anna María, f. 28.11. 1962, og Davíð Eggert, f. 15.4. 1964. Ingimar kvæntist þann 19.7. 1974 Elínbjörgu Kristjáns- dóttur, f. 10.11. 1955. Foreldrar hennar eru Kristján G. Sigurðs- son, fyrrv. bóndi á Höskulds- stöðum í Vindhælishreppi, f. Ingimars með tvíburasyni sína, Ingimar og Gunnar, norður í Húnavatnssýslu, þangað sem þau bæði áttu ættir að rekja, og settust að á Hvammstanga. Líf Ingimars byrjaði snemma að snúast um búskap en eins og al- gengt var í þá tíð var hann ung- ur að árum sendur til starfa í sveit, Huppahlíð í Miðfirði, þar sem hann undi sér vel við bú- störfin. Árið 1964 hóf Ingimar störf við brúarvinnu hjá Guð- mundi Gíslasyni og vann þar um nokkurra ára skeið m.a. við byggingu Miðfjarðarbrúar- innar. Um tíma var Ingimar einnig vinnumaður hjá Geir Gunnlaugssyni á búi hans í Lundi í Kópavogi þar sem þá var rekið kúabú en í dag stend- ur nýlegt íbúðahverfi. Húna- vatnssýslan togaði þó fljótt aftur í Ingimar og hann hóf störf sem ýtumaður hjá Búnaðarfélagi V- Hún. Hann starfaði um skeið á ýtunni, bæði áður og eftir að hann hóf sjálfur búskap. Ingimar og Elínbjörg hófu sauðfjárbúskap á Melstað í Mið- firði árið 1974 og bjuggu þar til ársins 1981. Þá fluttu þau til Skeggjastaða í Miðfirði og bjuggu þar til ársins 1988 en þá keyptu þau jörðina Uppsali í Miðfirði og stunduðu þar sauð- fjárbúskap eftir það. Útför Ingi- mars fór fram frá Melstað- arkirkju 27. september 2019. 25.8. 1930, og Helga G. Guð- mundsdóttir hús- freyja, f. 23.2. 1930. Ingimar og El- ínbjörg eignuðust fjögur börn: 1) Guð- mundur Helgi, f. 30.6. 1974, maki Helena M. Áskels- dóttir, f. 11.10. 1975. Synir þeirra eru Áskell Ingi, f. 6.12. 2002, og Eysteinn Oddur, f. 29.6. 2015. 2) Kristján Viðar, f. 29.12. 1977. Dóttir hans og Hild- ar Harðardóttur er María Rós, f. 1.2. 2003, og dætur hans og Láru G. Þorsteinsdóttur eru Vigdís Helga, f. 13.1. 2004, og Jakobína Eik, f. 18.8. 2014. 3) Guðrún Petrea, f. 3.1. 1979, maki Sturlaugur V. Guðnason, f. 13.5. 1965. Börn þeirra eru Að- albjörg Ósk, f. 11.8. 2002, og Kristján Vilberg, f. 28.7. 2008. 4) Guðjón Einar, f. 27.1. 1987, maki Júlía Káradóttir, f. 21.4. 1989. Synir þeirra eru Ingimar Kári, f. 5.2. 2010, og Hafsteinn Elí, f. 25.2. 2017. Vorið 1949 fluttu foreldrar Að vera bóndi, ó, guð minn góður! í grænu fanginu á sinni móður og finna ljós hennar leika um sig og lyfta sálinni á hærra stig! Og bónda hitnar í hjartans inni við helgan ilminn frá töðu sinni, og stráin skína í skeggi hans sem skáldleg gleði hins fyrsta manns. Og sumardagarnir faðma fjöllin og fljúga niður á þerrivöllinn, og stíga syngjandi sólskinsdans við sveittan bóndann og konu hans. (Jóhannes úr Kötlum) Takk fyrir allt elsku pabbi og afi, Guðmundur (Gummi), Áskell og Eysteinn. Elsku pabbi. Maður trúir varla að þú sért farinn í draumalandið. Það er skrýtið að koma heim í sveitina og hitta þig ekki. Finnst að þú sért bara í fjárhúsunum og rétt ókominn heim í mat. Þú elsk- aðir að vera í sveitinni og í kring- um féð þitt og fjölskylduna þína. Mér fannst gaman að fara á hestbak þegar ég var lítil og þú hafðir engar áhyggjur af mér þeg- ar ég fór í langan reiðtúr. Þú varst oft spurður hvernig væri að taka á móti litlu barni (mér) í heimahúsi og svarið sem þú sagðir alltaf var að þú værir bóndi og kynnir að taka á móti lömbum og þá líka barni. Þú hafðir gaman af að ferðast um landið og fræðast meira um landið og skoða fugla. Barnabörnin elskuðu þegar þú fórst á fjórhjólið og horfðir á grín- myndir með þeim. Það var mikið hlegið. Þú elskaðir að fá þér ís og ég elskaði að geta fært þér ís á sjúkrahúsið og svo komu öll barnabörnin, tengdabörn, mamma og systkinin mín og bjuggum til ísveislu með þér. En það sem huggar mig er það að vita að þú kvaldist ekki lengi og ég veit að þú ert í góðum höndum hjá langömmu, afa og tvíburða- bróður þínum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð, Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, Glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. ( V. Briem) Blessuð sé minning þín og ég elska þig elsku pabbi. Þín dóttir, Guðrún Petrea. Í fyrsta sinn sem ég hitti tengdaföður minn, Ingimar á Uppsölum, fannst mér eins og ég væri orðin keppandi í spurninga- þætti. Ingimar var nefnilega gjarn á, bæði þá og síðar, að spyrja mann og annan óhikað alls kyns beinskeyttra spurninga um allt milli himins og jarðar, stund- um með vott af glettni saman við og stríðnislegum glampa í augum. Hann viðurkenndi líka fúslega (og með stolti) að hann væri, eins og hann orðaði það sjálfur; „afar for- vitinn maður“. Við nánari kynni mín af honum þróaðist þetta yfir í hinar bestu samræður og frásagnir því Ingi- mar hafði góða hæfileika til að segja skemmtilega frá. Hann sagði mér til dæmis ýmsar sögur frá sínum yngri árum og gjarnan skiptumst við á fréttum úr sveit- inni og sauðburðarsögum í sauð- burðarlok. Einnig er mér minn- isstætt þegar við stóðum undir stjörnubjörtum himninum á Upp- sölum og spáðum í stjörnufjöld- ann og óendanleika alheimsins en þar sýndi Ingimar svo sterkt sína mýkri hlið, sem hann annars að öllu jöfnu leyndi vel. Ingimar hélt gjarnan til haga, og fylgdist vel með, atburðum í sveitinni. Einhvern tímann var sagt um Ingimar eitthvað á þá leið að ef þorrablótsnefndina vantaði sögur af sveitungunum til að nota í annálinn þá væri á vísan að róa að leita til Ingimars og að ekki skemmdi fyrir að hann hefði svo einstaklega gaman af því að segja þær. Uppsalir liggja hátt í landslag- inu og þaðan sér til margra bæja á Miðfjarðarhringnum. Eitt árið ræddum við um ágæti hinna mis- munandi áburðartegunda og Ingi- mar var búinn að taka það vís- indalega út – var með það á hreinu hvaða bóndi í dalnum notaði hvaða tegund og tún hverra spryttu best. Ég sat í síðasta sinn á móti Ingimar við eldhúsborðið á Upp- sölum í sumar sem leið. Þá var hann farinn að veikjast talsvert en þó enn nokkuð hress. Gummi kom inn með þær fréttir að heyrúllu- verktakinn frá næsta bæ hefði af- þakkað að koma inn í mat því hann væri á hraðferð. „Nú? Hvert var hann að fara?“ spurði tengda- pabbi eins og ekkert væri sjálf- sagðara en að vitneskja um allar ferðir Barkarstaðabóndans lægju fyrir en Gummi hafði ekki spurt. „Var hann að fara heim eða ætlar hann að rúlla á Torfustöðum líka?“ Gummi yppti bara öxlum. „Við getum séð í hvora áttina hann beygir,“ fullyrti Ingimar með nokkurri eftirvæntingu og lyfti gardínunni frá eldhúsglugg- anum en þaðan er fallegt útsýni yfir sveitina – og í áttina að veg- inum. Ég tók þátt í þessu og hjálp- aði til með gluggatjaldið. „Þú horfir til suðurs og ég til norðurs,“ lagði Ingimar til við mig og svo sátum við þarna, sposk á svip, við gluggann eins og tveir spæjarar þar til við komumst að hinu sanna. Ómetanleg andartök alveg. Kæri tengdapabbi, ég er þess fullviss að þú ert ekki alveg hætt- ur að fylgjast með sveitinni þinni (og okkur hinum) þótt þú sért far- inn yfir móðuna miklu og þar sé eflaust margt annað forvitnilegt að sjá. Þú munt eflaust líka hafa margar skemmtisögur að segja þegar við hittumst næst, af fólk- inu þarna fyrir handan. Kærar þakkir ætíð fyrir sam- fylgdina, Ingimar. Helena Margrét Áskelsdóttir. Elsku Ingimar. Það er erfitt að trúa að þú sért farinn svo fljótt. Minningar hellast yfir mann á svona stundum. Ég man alltaf fyrsta skiptið sem við hittumst. Ég kom í fjárhúsin og sauðburður stóð yfir. Þú tókst mér fagnandi, tókst í höndina á mér og mér fannst ég strax vera velkomin í fjölskylduna. Þú varst óttalega stríðinn og gerðir yfirleitt góðlátlegt grín að mér og ég svaraði bara í sömu mynt. Þú varst yndislegur afi og son- ur minn hann nafni þinn, Ingimar Kári, var mikið hrifinn af afa sín- um sem var alltaf tilbúinn að sýna og segja frá lífinu. Þetta er mjög erfitt fyrir ungan dreng að með- taka en við Guðjón verðum dugleg að halda í og rifja upp minning- arnar ykkar og góðu stundirnar. Hvíldu í friði kæri tengdapabbi. Margs er að minnast, margs er að sakna. Júlía Káradóttir. Ingimar Steindór Guðmundsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR EYSTEINSDÓTTIR, Suðurlandsbraut 68a, Reykjavík, lést 8. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 21. október klukkan 13. Eysteinn Sigurðsson Elísabet Árnadóttir Pjetur Sigurðsson og ömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN LOFTSDÓTTIR, Vestri-Hellum, Gaulverjabæjarhreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi fimmtudaginn 10. október Andrés Pálmarsson Helga Pálmarsdóttir Eyjólfur Pálmarsson Svanhildur Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN A. FRIÐLEIFSSON, Gerðhömrum 25, Reykjavík, lést mánudaginn 9. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Guðmundur Guðjónsson Lára Bergsveinsdóttir Agnar Georg Guðjónsson Örn Ómar Guðjónsson Seble Work Mamo barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.