Morgunblaðið - 17.10.2019, Page 50
Marta María
mm@mbl.is
Agnes starfar sem einkaþjálfari,
stott pilates-kennari, og svo lærði
hún markþjálfun og klassískan
söng. Hún hefur einnig starfað við
lífsstílsráðgjöf. Nú er Agnes hins-
vegar að leita aftur til fortíðar því
hún er farin að kenna í Kramhús-
inu á ný.
„Ég kem alltaf aftur í Kram-
húsið þótt ég vinni annars staðar
um hríð, það er svo gott að dansa
hér og æfa og auðvitað kenna líka.
Andinn er svo glaðlegur og nota-
legur og fólkið sömuleiðis. Hér er
svo dásamlega afslöppuð stemning
með alþjóðlegu ívafi með íslensk-
um og erlendum kennurum. Ég
kom hér fyrst rúmlega tvítug og
átti þá í meiðslum sem dansari og
þurfti að hvíla mig og æfa minna
eins og þá var ráðlagt. Hafði
heyrt spennandi sögur af Kram-
húsinu og Hafdísi Árnadóttur, eig-
anda og stofnanda, og hennar
flottu óvenjulegu tímum. Fyrr en
varði plataði hún mig til að leysa
af við að kenna djassballett og
músíkleikfimi og eitt leiddi af
öðru. Þarna opnaðist alveg nýr
heimur af alls konar danstímum
fyrir mér eins og argentínskur
tangó, magadans, afró, samba,
spunadans og fleira. Ég átti eftir
að kenna í átta ár í kjölfarið og
margs konar tíma. Ég hef lært
mjög mikið af Hafdísi og lít á
hana sem eina af mínum mestu
fyrirmyndum, ekki aðeins hvað
dans og hreyfingu varðar heldur
einnig líka lífsviðhorf og lífssýn.
Hafdís er algjör perla,“ segir
Agnes og bætir við:
„Það er gaman að rifja upp að
einn viðskiptavinurinn í húsinu
þarna á þessum árum þegar ég
var að kenna fyrst var bresk kona
sem ásamt manni sínum rak líb-
anska veitingastaðinn Marhaba
sem var með eindæmum vinsæll
og bauð upp á magadanssýningar
á hverju kvöldi. Þau voru skyndi-
lega komin í vandræði því maga-
dansarinn þeirra þurfti að fara til
Bretlands með engum fyrirvara. Á
þessum tíma var ég að dansa og
syngja í Evu Lunu í Borgarleik-
húsinu og það var bent er á mig
sem hugsanlegan kandidat í starf-
ið. Fyrr en varði var ég mætt í
stofuna heim til eiginmanns kon-
unnar sem kenndi mér nokkur
spor, lét mig fá búninga og víd-
eóspólu að horfa á og kvöldið eftir
var Shabaly mætt á gólfið á Rauð-
arárstígnum þar sem staðurinn
var og kom fram þrisvar á kvöldi.
Nafnið fann hann upp og við lét-
um eins og ég væri frá Líbanon.
Þetta var ægilega skemmtilegt og
enginn þekkti mig með hárkolluna
og blæju fyrir andlitinu. Ég kunni
auðvitað ekkert í magadansi held-
ur bara hristi mig eitthvað og
sveiflaði mjöðmunum í svakalega
flottum glimmerbúningum og
þetta gekk svona í þrjá mánuði.
Eftir þetta elska ég magadans og
er einmitt komin í tíma núna í
Kramhúsinu til að læra enda eru
þar okkar fremstu magadans-
kennarar,“ rifjar Agnes upp.
Dansinn mýkir líkamann
Agnes verður með fjölbreytta
tíma í vetur og fyrir þá sem vilja
detta inn af götunni er hægt að
kaupa stakan danstíma ef andinn
kemur yfir fólk.
„Ég er með nokkra tíma, meðal
annars styrktarþjálfun sem er
nýtt í Kramhúsinu. Þá erum við
að vinna með lóð og eigin þyngd
og fleira skemmtilegt. Svo kenni
ég dans og stott pilates. Kram-
húsið er eini staðurinn í mið-
bænum sem býður upp á þjálfun
og dans þannig að það er gaman
að bæta styrktarþjálfun inn og
gott að blanda saman dansi, jóga
og lóðum til dæmis. Í danstímana
er hægt að kaupa stakan tíma ef
fólk vill prófa.“
Hvað gerir dansinn sem lyft-
ingar gera ekki? „Ég stunda bæði
lyftingar og dans. Dansinn mýkir
upp líkamann um leið og hann
styrkir hann en kannski er það
mest útrásin og frelsið sem mað-
ur finnur fyrir í dansinum. Maður
verður bara svo glaður og tengd-
ur líkamanum þegar maður dans-
ar. Lyftingarnar eru líka frábær-
ar en svo er einmitt gott að dansa
með til að viðhalda liðleika og
minnka stífni. Á tímabili var ég
bara í kraftlyftingum en núna
blanda ég saman dansi, lyftingum
og pilates. Svo elska ég að ganga
og synda, segir Agnes.
Hætti að drekka þrítug
Hvað drífur þig áfram í kennsl-
unni?
„Ég er búin að kenna síðan ég
var sextán ára; alltaf eitthvað og
stundum eins og núna bara
nokkra tíma en það er ánægjan
að miðla því sem ég kann, sjá ár-
angur og gleði í andlitunum.
Það er mjög þakklátt að kenna
líkamsrækt og dans. Það kemur
alltaf árangur bæði andlega og
líkamlega, það kemur vellíðan og
þakklæti yfir að geta meira, líða
vel í eigin skinni, efla sjálfs-
traustið og margt fleira. Svo eru
alltaf einhverjir töfrar í gangi
þegar verið er að dansa enda
dansinn alltaf fylgt manneskjunni.
Dansinn er í okkur. Það lifnar
eitthvað við innra með manni þeg-
ar maður hreyfir sig við tónlist og
með öðrum, segir Agnes.
Nú tókstu þig til fyrir nokkrum
árum og léttist þónokkuð, er ekk-
ert vandasamt að halda árangr-
inum? Hvað gerir þú til að halda
þér í kjörþyngd?
„Ég er svo lánsöm að hafa
langoftast verið bara mátuleg
eins og sagt er enda alltaf hreyft
mig mikið og ég hef lengi haft
áhuga á hollum mat og líferni. En
svo komu nokkur ár þar sem ég
var að eiga við alvarlega streitu
og áföll og þyngdist á því tímabili.
Ég svaf mjög illa og borðaði til að
ná mér í orku eða til að róa mig.
Sérstaklega sykur. Ég náði tök-
um aftur á lífinu með því að leita
mér aðstoðar hjá frábærum fag-
aðilum. Svo fór ég að skoða mat-
aræðið upp á nýtt og náði að
koma mér á góðan stað aftur. Það
var á þessu tímabili sem ég fór að
æfa kraftlyftingar sem var alveg
nýtt hjá mér. Í dag horfi ég allt
öðrum augum á þetta allt saman.
Það eru engir töfrar eða skyndi-
lausnir. Lífið er ekki bara svart
og hvítt, það eru gráir tónar og
hver þarf að finna sína sátt með
sig. Ég hætti að vigta mig fyrir
nokkrum árum; ég var alltaf á
vigtinni og alltaf að rífa mig niður
fyrir einhver kíló. Ég vil auðvitað
að mér líði vel í eigin skinni og
þess vegna vel ég að næra mig
fallega og hreyfa mig og gera það
sem er gott fyrir mig eins og að
hugleiða. Ég reyni að sýna sjálfri
mér mildi, það er eitthvað svo fal-
legt við það. Horfa á það sem er
jákvætt í mínu lífi, vera þakklát
fyrir að geta hreyft mig, geta
dansað og lyft og svo margt
fleira. Það geta það ekki allir. Ég
reyni að vera mátuleg, hlusta á
hvernig mér líður, hvíla mig vel
og rækta mig andlega og lík-
amlega. Það gengur oftast mjög
vel. Stór partur af þeirri vellíðan
er pottþétt líka það að ég hætti
að drekka áfengi þegar ég var
þrítug og ég elska að vera bara
„high“ á lífinu,“ segir Agnes og
brosir.
Best að vera bara mátuleg
Agnes Kristjónsdóttir hefur kennt dans og líkamsrækt frá unga aldri og er í grunninn dansari og kom þannig inn
í líkamsræktina. Agnes glímdi á tímabili við mikla streitu eftir áföll í lífinu sem gerði það að verkum að hún
þyngdist, en með hjálp fagaðila hefur hún komist á sinn stað og kann að meta það að vera bara mátuleg.
Ljósmynd/Amalía Arnþórsdóttir
Líkamsrækt Agnes
segir að kraftlyftingar
og dans eigi vel saman.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili