Morgunblaðið - 17.10.2019, Qupperneq 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
OKTÓBER TILBOÐ
WWW.ILVA.IS/TILBOD
INCONTRI GLÖS
Vatnsglös. 4 í pk. 3.495 kr. Nú 2.395 kr.
Vínglös. 4 í pk. 3.495 kr. Nú 2.395 kr.
30%
frá18.900
129.900
Amigo
ZAMORA SKÁPUR
Svart járn með glerhurðum.
L 80 x D 37 x H 200 cm.
129.900 kr.
Zamora
AMIGO BEKKUR
1 sæti. L 55 x D 35 x H 45 cm.18.900 kr.
2 sæti. L 90 x D 35 x H 45 cm. 27.900 kr.
Önnur sýning á dansverki Ólafar
Óskar Þorgeirsdóttur, Hún., fer
fram í kvöld kl. 21 hjá Gilfélaginu í
Deiglunni á Akureyri. Ólöf sótti við
gerð verksins innblástur í álit sam-
félagsins á sjálfsöryggi ungra
kvenna. Auk Ólafar dansa í verkinu
Antonía Hölludóttir, Arna Sif Þor-
geirsdóttir, Birta Ósk Þórólfsdóttir,
Erla Vigdís Óskarsdóttir, Karen
Birta Pálsdóttir Maitsland, Unnur
Lilja Arnarsdóttir og Sunneva
Kjartansdóttir.
Hún. í annað sinn
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Okkur var hent í þeytivinduna. Við
erum komnir upp í efstu deild og
vorum þjálfaralausir í framhaldinu.
Mér finnst mesta furða að okkur
hafi tekist að lenda standandi,“
sagði Birgir Tjörvi Pétursson, for-
maður knattspyrnudeildar Gróttu,
en karlalið félagsins komst í haust
mjög óvænt upp í efstu deild í
fyrsta skipti. »60
Furða að tekist hafi
að lenda standandi
ÍÞRÓTTIR MENNING
Halldór Eldjárn heldur tónleika í
Iðnó í kvöld kl. 21 í tilefni af útgáfu
fyrstu sólóplötu sinnar, Poco
Apollo. Sex hljóðfæraleikarar munu
flytja plötuna í heild
sinni með Halldóri.
Poco Apollo hefur
verið í vinnslu í tvö ár
og byggjast lögin á
henni öll á myndum
frá ferðalagi NASA
til tunglsins. Hall-
dór skrifaði forrit
sem greinir
myndirnar og
semur lítil tón-
verk út frá
innihaldi
þeirra.
Lög sem byggjast
á ferðalagi NASA
til tunglsins
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vöruflutningabílstjóri hjá fyrir-
tækinu Ragnari og Ásgeiri ehf. í
Grundarfirði hefur á síðustu miss-
erum oft vakið athygli manna í
vöruafgreiðslunni við Sundahöfn
fyrir að vera snar í snúningum.
Kappinn rennir í hlað á hvítum
Scania-vörubíl sem hann er fljótur
að losa. Fer síðan út á vegina að
nýju og kemur aftur eftir kannski
tvo klukkutíma vestan af Snæfells-
nesi á öðrum bíl, drekkhlöðnum
fiski. Lengi var mönnum, sem ekki
til þekktu, ráðgáta hvernig þetta
væri pilti mögulegt uns upplýst var
að þetta væru tveir menn en ekki
einn.
Með bíladellu og
í björgunarsveitinni
„Já, nú er ég búinn að ná þessu.
Þetta útskýrir ýmislegt,“ sagði lyft-
aramaðurinn og hló þegar honum
var sagt að um tvíbura væri að
ræða, Sigurð og Þorstein Jónssyni
úr Þorlákshöfn. „Við erum búnir að
lifa og hrærast í öllu varðandi bíla
og tæki síðan við vorum smástrákar.
Ég er búinn að vera flutningabíl-
stjóri í mörg ár en réð mig til Ragn-
ars og Ásgeirs fyrir tveimur árum,
en þá var Steini búinn að vinna þar
fyrir í önnur tvö ár,“ sagði Sigurður
þegar Morgunblaðið spjallaði við
þessara riddara þjóðveganna nú í
vikunni. Þeir eru fæddir árið 1977 –
og hafa búið alla sína tíð í Þorláks-
höfn. Strákar með bíladellu og eru í
björgunarsveitinni í sínum
heimabæ. Samrýndir dugnaðar-
forkar sem hafa gaman af slarki og
ævintýrum.
Báðir á Scania
Vinnudagurinn hefst oftast um
klukkan eitt á daginn í Reykjavík og
þá er stefnan gjarnan tekin vestur á
Snæfellsnes, en flutningur á fiski úr
útgerðarplássunum þar er stór þátt-
ur í starfinu. „Stundum liggur leiðin
norður í land ef sækja þarf hráefni
af bátum þaðan og flytja á Snæfells-
nesið. Maður veit hreint ekki alltaf
hvernig vinnudagurinn þróast sem
er nú eitt af því sem gerir þetta
skemmtilegt,“ segir Þorsteinn sem
ekur á gráum Scania S730, árgerð
2017, en Sigurður á Scania R730,
hvítum bíl sem er árgerðinni eldri.
„Þetta eru öflugir dráttarbílar
með tengivagni og maður er fljótur
að ná tökum á þeim. Kannski er allt
auðvelt sem manni finnst skemmti-
legt,“ segir Sigurður. Leiðina vestur
segist hann þekkja orðið eins og lóf-
ann á sér og þekki hvar aðgát skuli
hafa. Vindstrengir á Kjalarnesi,
undir Hafnarfjalli og í Hnappadaln-
um komi kunnugum sjaldan á óvart.
Dagur og nótt
„Yfirleitt erum við búnir að skila
af okkur og komnir aftur í bæinn á
tólfta tímanum á kvöldin, þó að
stundum dragist þetta inn í nóttina
ef afli er mikill. Stundum kemur fyr-
ir að dagur og nótt renna saman –
og þegar í bæinn kemur er svo eftir
að koma sér heim í Þorlákshöfn,“
segir Þorsteinn, sjálfum sér og
bróður sínum líkur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bílamenn Bræðurnir Sigurður og Þorsteinn Jónssynir, hér við Scania-bílinn sem sá síðarnefndi ekur um landið.
Tvíburar á trukkum
Þjóðvegariddarar úr Þorlákshöfn Tveir bílstjórar en
ekki einn Samrýndir dugnaðarforkar Flytja fisk