Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.10.2019, Blaðsíða 14
B
ókin Klopp Allt í
botn, sem fjallar
um knattspyrnu-
feril þjálfarans
og fyrrverandi
leikmannsins geðþekka
Jürgen Klopp, var nýverið
gefin út á íslensku af Út-
gáfunni. Upphaflega kom
bókin út á ensku árið
2017 en hefur nú verið
þýdd á íslensku auk þess
sem bætt hefur verið við kafla
um síðustu tvö tímabil Klopp
sem knattspyrnustjóra Liver-
pool.
Höfundur bókarinnar, hinn
þýski íþróttafréttamaður
Raphael Honigstein, fléttar
saman frásagnir ýmissa aðila
sem hafa kynnst Klopp á ein-
hvern hátt á lífsleiðinni. Þannig
sýnir hann feril Klopps allt frá
því hann byrjar fyrst að æfa
knattspyrnu sem ungur drengur,
byrjar að þjálfa Mainz, gerir Dort-
mund að Þýskalandsmeisturum og
þar til hann gerir Liverpool að Evr-
ópumeisturum í sumar.
Honigstein, sem búsettur er í
London og starfar einkum fyrir enska
fjölmiðla, oft sem sérfræðingur um
þýskan fótbolta, segist strax hafa tek-
ið eftir miklum áhuga á Klopp þegar
hann tók við Liverpool í október árið
2015. „Ég var svo oft beðinn um að
koma í sjónvarp og tala eða skrifa um
Klopp að ég hugsaði að það væri
ómögulegt að gera það almennilega í
gegnum venjulega fjölmiðla svo af
hverju ekki að skrifa bók?“ segir
hann um aðdragandann að bókinni.
Ferðalag til fortíðarinnar
Honigstein segist fyrst hafa tekið eft-
ir Klopp þegar hann fór með Mainz
05 upp í úrvalsdeildina í Þýskalandi
árið 2004 en Honigstein hafði þá ver-
ið búsettur í London í yfir áratug.
„Ég hitti hann nokkrum sinnum þeg-
ar hann var stjóri Dortmund og ég
myndi segja að ég hefði komist nær og
nær honum á sama tíma og hann
færðist nær og nær mér landfræði-
lega,“ segir Honigstein sposkur.
Til að kynnast Klopp betur talaði
Honigstein við þá sem störfuðu með
Klopp, þar með talið núverandi og
fyrrverandi lærisveina, fram-
kvæmdastjóra og aðstoðarþjálfara,
auk þess að hann ræddi við fjöl-
skyldu hans og vini. „Þetta var
nokkurs konar ferðalag til fortíðar-
innar,“ segir Honigstein.
Þó að Klopp vilji sjálfur ekki eiga
hlut í bók um sig fyrr en ferlinum er
lokið lagði hann blessun sína óbeint
yfir bókina. „Af þeim 60 sem ég talaði
AFP
við fyrir bókina voru um það bil 50 sem
fóru til hans og spurðu: „Get ég talað við
þennan gaur um þig?“ Og hann sagði alltaf
já. Hann hefði auðveldlega getað sagt fólki
að tala ekki við mig,“ segir Honigstein en
hann segir skrifin hafa tekið um 10 mánuði
og svo hafi tekið um mánuð til viðbótar að
uppfæra bókina með síðustu tveimur árum
Klopp hjá Liverpool.
„Ég var heppinn að Liverpool bauð mér
að koma til Marbella þar sem liðið æfði vik-
una fyrir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni.
Ég bjóst við því að allir væru smá stress-
aðir og svona en þetta var í raun and-
stæðan. Þeir voru mjög opnir og rólegir og
þá hugsaði ég: „Já, Liverpool er að fara að
vinna þennan leik.““
Kröfuhart ljúfmenni
– Var eitthvað sem kom þér á óvart við Jür-
gen Klopp?
„Það er erfitt að segja en líklega var það
hversu erfitt það var að finna einhvern sem
vildi segja eitthvað slæmt um hann. Vana-
lega í fótboltaheiminum þegar einhver einn
hælir einhverjum finnurðu tvo sem segja að
hann sé ekkert það frábær, hann sé lygari
eða hitt og þetta. Með Jürgen var það nán-
ast ómögulegt. Það var einn sem ég vissi að
hefði lent í ósætti við hann, Michael Thurk,
sem sættist svo við hann og er í bókinni.
Svo var annar sem líkaði ekki við Klopp
sem þjálfara sem sagði: „Ég vil ekki vera
eini maðurinn í Þýskalandi sem líkar ekki
við Jürgen Klopp.“ En þá var það í raun
bara taktíkin sem hann var ósáttur við. Það
var ekkert persónulegt.“
Þó Klopp virðist ávallt viðkunnanlegur og
eigi í góðu sambandi við alla í kringum sig
þá er hann mjög kröfuharður við leikmenn
og aðra. „Meira að segja þegar ég talaði við
hann þegar hann var hjá Dortmund og var
ósáttur við eitthvað sem ég gerði sem
blaðamaður lét hann mig virkilega finna
fyrir því,“ segir Honigstein. „Það getur ver-
ið erfitt að vinna með honum í þeim skiln-
ingi að hann er ekki að fara að gefa þér
neinn slaka. Ef honum finnst þú ekki hafa
staðið þig nægilega vel mun hann láta þig
vita af því.“
Honigstein segir þetta geta verið erfitt
fyrir suma því margir eru þannig gerðir að
þeir forðast árekstra og átök. „Á endanum
er þetta jákvætt því hann er hreinskilinn og
mun aldrei ljúga að þér.“
100% sami náunginn
– Sjáum við hinn sanna Jürgen í fjölmiðlum
og á vellinum?
„Ég spurði Gini Wijnaldum [leikmann
Liverpool og hollenska landsliðsins] þess-
arar sömu spurningar. Og hann sagði að all-
ir í Hollandi spyrðu hann að þessu. Allir
vilja vita það sama: „Er hann raunverulega
svona?“ Og ég get sagt að hann sé 100%
sami náunginn. Það er erfitt að þykjast
vera eitthvað annað en þú ert á þessu stigi.
Fólk kemst að hinu sanna um þig.“
Þó Klopp sýni einungis eina hlið persónu-
leika síns í sviðsljósinu gerir hann það
hvert sem hann fer. Gildir þá einu hvort
hann sé að spjalla við myndatökufólk eða
verksmiðjustarfsmenn. „Hann hefur þetta
jákvæða viðhorf og maður getur ekki annað
en hrifist af honum. Ég held að það sé mik-
ilvægur þáttur í þjálfunaraðferð hans. Fólk
stendur sig betur ef því líður eins og það sé
metið að verðleikum og hér sé maður sem
vilji hjálpa því,“ segir Honigstein.
Tók áhættu í upphafi ferilsins
Klopp hefur ávallt farið óhefðbundnar leiðir
í nálgun sinni á fótboltann og er taktík þar
engin undantekning. Hann pælir mikið í
henni og notaði svokallaða fjögurra manna
varnarlínu, sem var ekki mikið notuð í
Þýskalandi, þegar hann tók við Mainz 05 í
næstefstu deild. Fyrrverandi þjálfari
Raphael Honigstein er höfundar bókarinnar.
Getur ekki annað
en hrifist af Klopp
Knattspyrnuþjálfarinn Jürgen Klopp hefur
rifið Liverpool upp úr meðalmennskunni og
stýrði þeim til Evrópumeistaratitils í ár. Höf-
undur bókar um Klopp sem er nýkomin út á
íslensku segir nánast ómögulegt að finna ein-
hvern sem talar illa um hann.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Klopp lyftir Evrópubik-
arnum eftir að Liverpool
tryggði sér sigur í Meist-
aradeild Evrópu í júní.
KNATTSPYRNA
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.10. 2019