Morgunblaðið - 19.11.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points Pandora
25.990 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kippur í sölu miðborgaríbúða
Þingvangur hefur síðustu vikur selt 30 miðborgaríbúðir Margir umsækjendur falla á greiðslumati
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélagið Þingvangur hefur síðustu
vikur selt um 30 íbúðir á Brynjureit í miðborg
Reykjavíkur. Verðmæti viðskiptanna er vel á
annan milljarð króna.
Þegar Morgunblaðið skoðaði söluvef verk-
efnisins um miðjan október voru fjórar íbúðir
skráðar seldar. Síðdegis í gær var búið að
merkja við 37 seldar íbúðir. Þar af eru 27 af 49
íbúðum seldar á Hverfisgötu 40-44.
Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri
Þingvangs, segir markaðinn hafa tekið við sér í
haust eftir rólegt sumar. Fjárfestar og fyrstu
kaupendur hafi verið í hópi kaupenda.
Fjárfestarnir horfi meðal annars til þess að
íbúðir séu betri fjárfesting en að geyma pen-
inga á bankareikningum með lágum vöxtum.
Þá vilji sumir af skattaástæðum fjárfesta fyrir
áramót. Það henti þeim mjög vel að kaupa
íbúðir sem séu tilbúnar til afhendingar.
Væntingar hafa áhrif
Pálmar segir hluta íbúðanna í fjármögnun.
Hann eigi ekki von á öðru en að það gangi eftir.
„Húsgagnasalar segja mér að það hafi orðið
kippur í sölu á húsgögnum í október og nóvem-
ber. Ef það gengur vel að selja íbúðir fylgir
húsgagnasalan með. Væntingar eru um að
næsta ár verði betra, sem kann að hafa áhrif á
að fólk er farið af stað með fjárfestingar,“ segir
Pálmar um markaðinn í haust. Íbúðirnar komu
í sölu í sumarbyrjun en voru nær samstundis
teknar frá fyrir fjárfesti. Áformin rættust hins
vegar ekki og komu íbúðirnar í sölu á ný.
Önnur hver íbúð er seld
Á Brynjureit er 71 íbúð í húsum sem standa
við Hverfisgötu og bakhúsum sem snúa að
Laugavegi. Með sölunni á Brynjureit hefur
dregið úr framboði nýrra íbúða á Hverfisgötu.
Á Hverfisgötu 96-98 eru 23 af 38 íbúðum seldar
en á Hverfisgötu 85-93 alls 21 íbúð af 70. Hafa
því selst um 90 af 180 nýjum íbúðum í götunni.
Tveir sérfræðingar sögðu það hægja á sölu
íbúða í miðborginni að óvenju margir féllu á
greiðslumati, ekki síst fyrstu kaupendur.
Morgunblaðið/Eggert
Brynjureitur Íbúðirnar eru í nokkrum húsum.
Gamlar byggingar viku fyrir nýbyggingum.
„Það er kominn
biðlisti hjá okkur í
fyrsta sinn. Það er
hræðileg staða.
Fólk sem er í
sjálfsvígshættu á
ekki að þurfa að
bíða. Okkur bráð-
vantar fleiri fag-
menntaða til
starfa og meira
fjármagn. Við vilj-
um ekki vísa fólki frá,“ sagði Kristín
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta-
samtakanna sem vinna að forvörnum
gegn sjálfsvígum. Fagfólk sem hjá
þeim starfar er geðhjúkrunarfræð-
ingar, sálfræðingar og félagsráðgjaf-
ar. Samtökin starfa með leyfi land-
læknis.
Kristín sagði að þeim fjölgaði stöð-
ugt sem leituðu aðstoðar hjá Píeta-
samtökunum. Áberandi fjölgun hefur
orðið í þremur hópum, það er hópi
ungra karla 18-25 ára, karla 55 ára og
eldri og kvenna sextugra og eldri.
Píeta-samtökin voru stofnuð í apríl
2018. Kristín sagði að framan af hefðu
aðallega konur leitað til samtakanna
en nú væru kynjahlutföllin orðin
nokkuð jöfn. Hún kvaðst vera ánægð
með að jafnt eldri konur og eldri karl-
ar væru farin að leita sér aðstoðar
vegna sjálfsvígshugsana. Hún taldi
líklegt að vandinn hefði verið til stað-
ar en opnari og meiri umræða orðið til
þess að fólk hefði farið að leita sér
hjálpar í auknum mæli.
„Sjálfsvígshugsanir virðast ekki
spyrja ekki um aldur, stétt eða stöðu
þeirra sem þær leita á,“ sagði Kristín.
Hún sagði að sér virtist að lífið breytt-
ist t.d. hjá mörgum konum þegar þær
hættu að vinna, væru jafnvel fráskild-
ar og börnin farin að heiman. Þá
sækti einsemd og erfiðar hugsanir á
þær.
Ef fólk sem leitar hjálpar hjá Píeta-
samtökunum glímir við neyslu vímu-
gjafa, er greint með geðsjúkdóm eða
virðist glíma við andleg veikindi að
mati ráðgjafa er reynt að koma því í
viðeigandi meðferð, að sögn Kristín-
ar. gudni@mbl.is
Biðlisti hjá Píeta-samtökun-
um í fyrsta sinn frá stofnun
Fólk í sjálfsvígshættu á ekki að þurfa að bíða Skortir fé
Kristín
Ólafsdóttir
Oddgeir Ottesen, formaður Skák-
félags Selfoss og nágrennis (SSON),
setti alþjóðlegu Ísey skyr skákhá-
tíðina á Hótel Selfossi í gærkvöld.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð-
herra, flutti ávarp og sést hér
hampa Suðurlandsriddaranum sem
Sigríður Jóna Kristjánsdóttir, út-
skurðarmeistari á Grund í Flóa,
skar út. Suðurlandsriddarinn er
einn af verðlaunagripum mótsins.
Einnig var dregið í töfluröð og flutt
tónlist.
Skákhátíðin er haldin í tilefni af
30 ára afmæli SSON og stendur til
29. nóvember. Aðalviðburður hátíð-
arinnar verður heimsmeistaramót í
skák þar sem tíu skákmenn og
-konur tefla. Þau hafa unnið sam-
tals 14 heimsmeistaratitla í mis-
munandi aldursflokkum.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Ísey skyr skákhátíðin var sett í gærkvöld á Hótel Selfossi
Öflugir skákmeistarar tefla
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Minnihlutinn í borgarstjórn hefur
sameinast um tillögu þess efnis að
efnt verði til almennrar atkvæða-
greiðslu á meðal íbúa Reykjavíkur
um deiliskipulag við Stekkjarbakka
Þ73, sem er innan Elliðaársvæðisins,
„svo borgarbúum verði gert kleift að
koma á framfæri afstöðu sinni til
gróðurhvelfingar og atvinnureksturs
á reitnum“.
Lagt er til að allir sem kosninga-
rétt hafa í sveitarfélaginu verði kjör-
gengir, að atkvæðagreiðslan verði
rafræn og Þjóðskrá Íslands falið að
annast hana. Flokkarnir sem standa
að tillögunni eru Sjálfstæðisflokkur-
inn, Sósíalistaflokkur Íslands, Mið-
flokkurinn og Flokkur fólksins. Til
stendur að leggja tillöguna fram í
borgarstjórn í dag.
Mál sem á að kjósa um
„Málið er mjög umdeilt. Íbúar á
svæðinu og Hollvinasamtök Elliða-
árdalsins hafa gagnrýnt þessi áform
mjög sem og stofnanir eins og Um-
hverfisstofnun og Skipulagsstofnun.
Þetta er umhverfismál og ætti að
mínu mati að vera yfir pólitíska
flokkadrætti hafið. Þetta er græn-
asti reiturinn í Reykjavík. Ef eitt-
hvað mál ætti að setja í íbúakosningu
þá ætti það einmitt að vera svona
mál,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna. Bendir hann á að
Píratar hafi talað mikið um það fyrir
síðustu kosningar að íbúar hefðu
áhrif á skipulagsmál en þegar á
reyndi virtist minni áhugi á því.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti
Pírata, segir að þótt hún sé hlynnt
íbúalýðræði hafi hún ekki séð rök
fyrir því að íbúakosning eigi við um
umrætt mál frekar en einhver önnur.
„Auðvitað styð ég íbúakosningu ef
það kemur formleg krafa frá íbúum
um það. Það eru lög sem kveða á um
að ef ákveðið hlutfall kjósenda biður
um atkvæðagreiðslu þá á að verða
við því. En lýðræðið á að vera á for-
sendum almennings, ekki á forsend-
um flokka sem nenna ekki einu sinni
að búa til tillögur sem standast fag-
legar formkröfur,“ segir Dóra Björt.
Hún sakar Sjálfstæðisflokkinn um
að misnota íbúalýðræði með því að
leggja til kosningar um einstök mál
„til þess að valda fjaðrafoki“.
Vilja kjósa um
Stekkjarbakka
Eyþór
Arnalds
Tillaga lögð fram í borgarstjórn í dag
Dóra Björt
Guðjónsdóttir