Morgunblaðið - 19.11.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Karlar eru í meirihluta þeirra 128
starfsmanna sem Íslandspóstur
sagði upp á tímabilinu frá septem-
berbyrjun 2017 til jafnlengdar í ár.
Alls voru karlarnir í þessum hópi 75
talsins eða 59% en konurnar voru
53 eða 41%. Á fyrrgreindu tímabili
var mest um að fólki frá átján ára
aldri til fertugs væri sagt upp.
Í hópuppsögnum í ágúst sl. hjá
Póstinum var hins vegar m.a. lagt
upp með að starfsfólk sem var kom-
ið að eða á lífeyrisaldur léti af störf-
um, svo verja mætti störf yngra
fólks. Alls var níu starfsmönnum á
aldrinum 64-69 ára sagt upp í þeim
aðgerðum
Fyrrgreindar upplýsingar
koma fram í svari Bjarna Bene-
diktssonar fjármálaráðherra við
fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnús-
dóttur, þingmanns VG. Fram kem-
ur í svari ráðherrans að ástæður
uppsagna hafi verið misjafnar,
stundum hafi fólki sem ekki stóð
undir væntingum í starfi verið sagt
upp, en í öðrum tilvikum vegna
skipulagsbreytinga eða hagræð-
ingaraðgerða.
Reynt var að verja störf
yngra fólks hjá Póstinum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akranes Pósthúsið á Skaganum.
128 manns var
sagt upp 2017-2019
Póstmenn
» Alls hættu 128 manns hjá
Póstinum á tveimur árum.
» Skipulagsbreytingar og
hagræðingaraðgerðir
» Sumir starfsmenn þóttu
ekki standa sig sem skyldi.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við í Ölfusi höfum alla burði til þess
að reka áfram sjálfstætt sveitarfélag
án þess að sameinast öðrum,“ segir
Gestur Þór Kristjánsson, forseti
bæjarstjórnar Sveitarfélagsins
Ölfuss. Á fundi
sínum á fimmtu-
dag lýsti bæj-
arstjórn Hvera-
gerðis vilja sínum
til viðræðna við
Ölfus um samein-
ingu, enda kæmu
bæjarfulltrúar í
báðum byggð-
unum að málinu
fullir áhuga. Þetta
var samþykkt eft-
ir að hugmyndum Sveitarfélagsins
Árborgar um sameiningu allra sveit-
arfélaga í Árnessýslu var hafnað.
Breyttar forsendur
Samkvæmt þeirri stefnu sem
ríkisstjórnin hefur markað á lág-
marksíbúafjöldi íbúa sveitarfélaga að
verða 250 manns eftir kjör til sveitar-
stjórna árið 2022 og 1.000 eftir kosn-
ingarnar 2026. Þessar áherslur hafa
komið málum á skrið og með samein-
ingu Hveragerðis og Ölfuss yrði til
sveitarfélag með um 5.000 íbúa.
Landfræðilega má segja að samein-
ing þessi liggi beint við, enda er
Hveragerði undir Kömbunum, sem
er frekar landlítil byggð, sem eyja í
Ölfusinu miðju.
Í bókun bæjarstjórnar Hvera-
gerðis segir að með sameiningu við
Ölfus yrði til öflugt sveitarfélag sem
fengi 820 milljón króna meðgjöf frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Einnig
megi minna á að árið 2014 hafi sam-
eining við Ölfus verið hlutskörpust af
þeim valkostum sem í boði voru þeg-
ar Hvergerðingar voru spurðir um
vilja til sameiningar við önnur sveit-
arfélög. Ekki hafi þá verið áhugi á
sameiningu í Ölfusi, sem nú sé kann-
aður aftur í ljósi nýrra forsendna.
Mikil fjölgun íbúa í Þorlákshöfn
„Erindið úr Hveragerði hefur ekki
borist okkur formlega ennþá, svo að
málið hefur ekkert verið rætt á vett-
vangi bæjarstjórnar hér,“ segir Gest-
ur Þór. „Ölfusið stendur vel. Íbúarnir
eru í dag 2.250 – þeir eru um 1.650 í
Þorlákshöfn og hefur fjölgað mikið
síðustu ár. Þessi þróun mun vænt-
anlega halda áfram; margir sem vilja
komast í ódýrara húsnæði en býðst á
höfuðborgarsvæðinu eru að flytjast
hingað í Þorlákshöfn. Hér er nú verið
að reisa fjölda nýrra húsa og er
sveitarfélagið í margvíslegum fram-
kvæmdum.“
Eins og segir hér að framan var
áhugi á sameiningu við Hveragerði
ekki til staðar þegar málið var kann-
að í íbúakosningum á netinu árið
2015. Þar var spurt hvort fólk væri
hlynnt því að bæjarstjórn ræddi við
annað eða önnur sveitarfélög um
sameiningu, sem 304 voru fylgjandi
og 308 andvígir. Gestur Þór Krist-
jánsson segist þó ekki treysta sér til
að dæma um hvort viðhorfin hafi
breyst síðan þetta var, en almennt
talað telji hann hljómgrunn í Ölfus-
inu fyrir sameiningu ekki vera
mikinn.
Hvergerðingar
vilja samein-
ingu við Ölfus
Áhugi ekki gagnkvæmur Væn
meðgjöf frá Jöfnunarsjóði er í boði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þorlákshöfn Útgerðarbær sem er
nú úthverfi höfuðborgarinnar.
Sameining?
» Hvergerðingar eru 2.260 og
í Ölfusinu búa 2.250 manns.
Samanlagt yrðu íbúar því
4.940.
» Ölfusið er landmikið sveitar-
félag sem umlykur Hvera-
gerðisbæ á alla kanta.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Niðurstöður Framfaravogarinnar
2019 fyrir Kópavogsbæ, Reykja-
nesbæ og Sveitarfélagið Árborg
voru kynntar í gær. Markmið
Framfaravogarinnar er að draga
fram stöðu félagslegra framfara í
samfélaginu og benda á hvað betur
má fara. Fjöldi atriða eru metin og
þeim gefnar einkunnir. Greint var
frá vísitölu félagslegra framfara í
sveitarfélögunum þremur og hvað
má lesa út úr henni.
Kópavogur fékk 72,89 stig í
Framfaravoginni 2019. Það endur-
speglar góða frammistöðu sam-
kvæmt þeim viðmiðum sem höfð
eru til hliðsjónar. Reykjanesbær
fékk 57,78 stig sem endurspeglar
veika frammistöðu. Samfélagið er í
mikilli þróun, fólksfjölgun ör og
áskoranir margar. Sveitarfélagið
Árborg fékk 61,54 stig sem end-
urspeglar meðal frammistöðu.
Rósbjörg Jónsdóttir, fulltrúi Soci-
al Progress Imperative á Íslandi
sem stendur að verkefninu, sagði að
stóra niðurstaðan nú sé að sveit-
arfélögin hafi ekki aðgang að nógu
áreiðanlegum gögnum um ýmsa
þætti einmitt nú. Í skýrslu um verk-
efnið kemur m.a. fram að enn vanti
töluvert á að gögn hér á landi séu
þannig að auðvelt sé að safna sam-
anburðarhæfum upplýsingum um
einstök sveitarfélög. Þetta á jafnvel
við um þætti sem lúta að atriðum
eins og ástandi og gæðum umhverf-
isins. Sama á við um aðgengi fólks
að heilbrigðisþjónustu og húsnæði.
„Oftar en ekki er horft til lands-
hluta eða heilbrigðisumdæma sem
eru á skjön við þær stjórnsýsluein-
ingar sem bera ábyrgð á mála-
flokknum. Hér má gera bragarbót,“
segir í skýrslunni. Rósbjörg sagði
að ýmsar stofnanir séu að þróa
lausnir um þessar mundir til að
bæta úr þessu.
Hún sagði að Framfaravogin
endurspegli stöðuna í sam-
félögunum eins og hún
er á hverjum tíma.
Stjórnendur sveitarfé-
laga geti séð af niður-
stöðum hvar og hvern-
ig sé best að
forgangsraða verkefn-
um til hagsbóta fyrir
íbúana. Einnig geti
þeir séð veikleika og
styrkleika sveitarfé-
laga sinna og leitað
lausna út frá því.
Morgunblaðið/Eggert
Framfaravogin 2019 Fulltrúar sveitarfélaganna sem tóku þátt mættu og hlýddu á fyrirlestra og kynningu.
Framfaravogin 2019
sýnir misjafna stöðu
Niðurstöður fyrir þrjú sveitarfélög voru kynntar í gær
Framfaravogin byggir á að-
ferðafræði Social Progress
Imperative (SPI) um vísitölu
félagslegra framfara (e. social
progress index).
SPI í Washington er ábyrgð-
ar- og umsjónaraðili vísitölu
félagslegra framfara - VFF/
SPI. Michael Green, forstjóri
SPI og Matthew Bishop hjá
The Economist áttu frum-
kvæði að því að þessi vinna
hófst eftir efnhagskreppuna
2008. Vísitalan hefur verið í
stöðugri þróun. Prófessorarnir
Michael Porter hjá Harvard
Business School og Scott
Stern hjá MIT komu
til liðs við þá 2011.
Fulltrúi SPI á Ís-
landi er Rósbjörg
Jónsdóttir,
stofnandi Cog-
nito ehf.
Félagslegar
framfarir
VÍSITALA REIKNUÐ ÚT
Rósbjörg
Jónsdóttir
Gestur Þór
Kristjánsson