Morgunblaðið - 19.11.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.11.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019 „FLJÓT, SJÁÐU! ÞAÐ ER EINHVER GAUR AÐ BERA SJÓNVARPIÐ OKKAR ÚT ÚR HÚSINU.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að prófa glútenlausar, vegan-, grænmetis- og alls konar máltíðir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG EFAST STÓRLEGA UM AÐ GRETTIR SÉ MEÐ EITTHVERT LEYNIMAKK GEGN ÞÉR Æ, GOTT ÞAÐ GLEÐUR MIG AÐ HEYRA ÞAÐ NEMA AÐ ÉG HAFI SAGT HENNI AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ HELLTU Í STAUP FYRIR MIG ÞVÍ STERKASTA SEM ÞÚ ÁTT! BÆKUR VÆNTANLEGAR! FYLGIR FRÍ ÁFYLLING MEÐ? NEI … ÞAÐ FYLGIR ÞESSU VINUR SEM TEKUR AF ÞÉR FALLIÐ! Fyrsta skútan hét Hafgolan, við stækkuðum síðan við okkur og keyptum Evu. Við hættum sigl- ingum og seldum fyrir u.þ.b. 10 ár- um. Skútusiglingar krefjast mikillar orku og maður verður að vera viss um að ráða við allt það sem sigl- ingar á seglskútu krefjast. Með okk- ur sigldu okkar kærustu vinir og þetta voru ógleymanleg og ómetan- leg ár. Við eigum afar góða vinahópa, „gönguhóp“ sem samanstendur af fernum hjónum úr Skátafélaginu Kópum, við höfum hist vikulega í yf- ir 25 ár, gengið um bæinn og ná- grenni og notið samvista yfir góðum veitingum í lokin. Einnig eigum við annan mjög góðan vinahóp, líka fern hjón, sem kynnst hafa í gegnum Söngskólann í Reykjavík, við höfum haldið hópinn og ferðast víða saman, bæði hér heima og erlendis. Fjölskylda Eiginkona Haraldar er Ásrún Davíðsdóttir, f. 24.11. 1946, aðstoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík. Foreldrar hennar eru hjónin Guðbjörg Kristjánsdóttir húsmóðir, f. 7.11. 1918, d. 30.11. 1972, og Davíð Áskelsson, kennari og skáld, f.,10.4. 1919, d. 14.7. 1979. Systkini Haraldar eru Finnur Þór Friðriksson, f. 7.6. 1951, maki Jó- hanna Björnsdóttir og Dröfn Huld Friðriksdóttir, f. 29.2. 1960, sam- býlismaður Magnús Sigurðsson. Foreldrar Haraldar eru Steina Mar- grét Finnsdóttir, húsmóðir frá Upp- sölum í Vestmannaeyjum, f. 10.6. 1926, d. 18.11. 2017, og Friðrik Har- aldsson bakarameistari frá Sandi í Vestmannaeyjum, f. 9.8. 1922, d. 21.3. 2014. Þau voru lengst af búsett í Kópavogi. Haraldur Friðriksson Margrét Albertsdóttir húsfreyja í Viðvík og á Bakkafi rði, f. á Eiði á Langanesi Einar Jóhannesson bóndi í Viðvík og á Bakkafi rði, f. á Leirlæk í Þistilfi rði Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Steina Margrét Finnsdóttir húsfreyja og verslunarkona í Vestmannaeyjum og Kópavogi Finnur Jósef Sigmundsson verktaki í Vestmannaeyjum Ragnheiður Sveinsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum, f. í Háagerði í Eyjum Sigmundur Finnsson fi skmatsmaður í Vestmannaeyjum, f. í Álftagróf í Mýrdal Ása Haraldsdóttir verslunarkona Sigmundur Finnsson útgerðarmaður í Ástralíu Haraldur Haraldsson vélsmiður Kristján Einarsson meðhjálpari í Langholtskirkju Flosi Finnsson skipasmiður í Vestmannaeyjum Rúrik Haraldsson leikari Valgerður Oddsdóttir húsfreyja á Búðarhóli í Landeyjum, f. á Rauðafelli undir Eyjafjöllum Einar Nikulásson bóndi á Krossi og Búðarhóli í Landeyjum, f. í Litlu-Hildisey Guðný Kristjana Einarsdóttir húsfreyja í Rvík og Vestmannaeyjum Fjóla Guðbjörg Haraldsdóttir fulltrúi í Rvík Óttar Guðmundsson geðlæknir Haraldur Sigurðsson trésmiður í Reykjavík og Vestmannaeyjum Guðbjörg Sigurðardóttir ljósmóðir, f. á Barkarstöðum í Fljótshlíð Sigurður Ólafsson bóndi og trésmiður í Butru í Fljótshlíð, f. í Tjarnarkoti í Landeyjum Úr frændgarði Haraldar Friðrikssonar Friðrik Haraldsson bakarameistari í Vestmannaeyjum og Kópavogi Sigrún Haraldsdóttir yrkir áLeir: Jens virtist léttur í lundu er lallaði hjá fyrir stundu. Hann kímdi á ská komandi frá þéttholda mömmu hennar Mundu. Ólafur Stefánsson hélt áfram: Hann sást fyrir sirkabát stundu, er Sigrún leit út yfir grundu. Með fullnægjubros, en á fötunum los, og lækar víst mömmu’ennar Mundu. Sigrún svaraði og kvað: „Nei, nei, þú misskilur þetta, Ólafur minn!“: Jens hann var kampakátur og kjagað líkt og bátur. Hamingjan beið, hann var á leið heim til að gera slátur. Sigurlín Hermannsdóttir bland- aði sér í málið: Þótt slappur og sloj væri Jens slátri hjá mömmu gaf séns. Einn vandi er hjá honum; er kemur að konum er auminginn öldungis lens. Páll Imsland heilsaði leirliði í haustrosanum: „Gleymið þið ekki garminum honum Katli. Ógöngur Jens eru vissulega alltaf að skjóta upp kolli, en ekki á Jón bróðir hans betra: Jón bróðir Jens fyrir stundu, jafngamall fyrrnefndri Mundu, var skotinn í Dóru hinni skelfingarstóru, en foreldrar að þessu fundu. Sigmundur Benediktsson kveður sér hljóðs og heilsar eftir þriggja vikna hlé: „Á heimleið úr Eyjafirði í gær, 14. nóv. var sól, heiðríkt og vægt frost sem jók á rakamyndun með hélu og gaf einnig gott and- rými í bjartviðrinu. Létt og fjörug öndin ör óðs í för um geiminn svífur snör við kvæðakjör kanna gjörir heiminn. Heklar sólin hélukjól hikar njólan svarta glitrar sól á grund og hól græðisbólin skarta. Sigurður Breiðfjörð yrkir til Skáld-Rósu: Einatt glæðist vonin veik viskuleynum mínum. Skýl mér flæðarelda eik undir greinum þínum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Jens og mömmu hennar Mundu Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.