Morgunblaðið - 19.11.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 19.11.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ferðin gekk afar vel og góð stemning í hljómsveitinni. Allt skipulag var til fyr- irmyndar, “ segir Daníel Bjarnason tónskáld og aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) um tónleikaferð sveitarinnar til Austurríkis og Þýskalands sem lauk með tón- leikum undir hans stjórn í Konzerthaus í Berl- ín á sunnudagskvöld fyrir fullu húsi. Þegar blaðamaður náði tali af Daníel í gær var hann aftur kominn til Salzburgar til að eiga fund með austurríska slagverksleikarann Martin Grubinger sem Daníel er að semja einleiks- konsert fyrir að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar sem frumflytur verkið í árslok 2020. Lærdómsríkt að vera sífellt á tánum „Við fengum hlýjar og góðar móttökur frá áhorfendum í öllum borgunum þremur, ekki síst í Berlín enda sterk tenging við Ísland í Berlín,“ segir Daníel, en samkvæmt upplýs- ingum frá SÍ lék Víkingur Heiðar, sem er staðarlistamaður í Konzerthaus, tvö aukalög og hljómsveitin eitt við mikinn fögnuð tón- leikagesta. Tónleikarnir í Berlín voru há- punktur á Íslandshátíð sem haldin var í Kon- zerthaus og jafnframt lokatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar á tónleikaferðalagi hennar um Austurríki og Þýskaland þar sem haldnir voru fimm tónleikar í þremur borgum undir stjórn Daníels. Tónleikaferðin er sú fyrsta þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands er með íslenskan hljómsveitarstjóra og íslenskan einleikara í fararbroddi ásamt því að tvö ís- lensk tónverk eru í lykilhlutverki, þ.e. píanó- konsertinn Processions eftir Daníel og Aer- iality eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Aðspurður segir Daníel uppselt hafa verið á alla tónleika sveitarinnar í tónleikaferðinni. „Við spiluðum þrisvar í röð fyrir fullu húsi í Großes Fest- spielhaus í Salzburg, sem er ótrúlegt enda tekur salurinn um tvö þúsund manns. Það er mjög lærdómsríkt bæði fyrir hljómsveitina og mig að fara í svona ferð þar sem tækifæri gefst til að spila sama prógrammið nokkrum sinnum í ólíkum húsum fyrir nýja áhorf- endur,“ segir Daníel og tekur fram að því mið- ur gefist fá tækifæri til þess á Íslandi að spila sama prógrammið oftar en einu sinni á tón- leikum. „Það var líka góður skóli að fara út úr rútínunni og skipta milli prógramma án mik- illa æfinga á staðnum, sem krefst þess að allir séu sífellt á tánum og í góðu spilaformi. Það er lærdómsríkt og gott fyrir hljómsveitina að venjast slíku.“ Eldborg á pari við alla bestu sali í heimi Daníel stjórnaði píanókonsert sínum á öll- um þremur tónleikastöðu, þ.e. í Herkulessaal í München, Großes Festspielhaus í Salzburg og Konzerthaus í Berlín. „Það var mjög gaman að fá tækifæri til að flytja konsertinn í þremur mismunandi sölum og gaman að heyra eitt- hvað nýtt í verkinu á hverjum nýjum stað,“ segir Daníel og fer ekki dult með að uppá- haldstónleikarýmið hafi verið í Berlín. „Stóri salurinn í Konzerthaus er dásamlegur. Maður heyrir svo skýrt og vel á sama tíma og hljóm- urinn er bæði hlýr og fallegur. Salurinn býður líka upp á góða nálægð við áhorfendur,“ segir Daníel og tekur fram að allir þrír tónleikastað- irnir hafi verið góðir. „Þá fattar maður líka hvað við erum ótrúlega heppin að eiga Eld- borg sem er á pari við alla bestu sali í heimi,“ segir Daníel, sem auk einleikskonsertsins fyr- ir Grubinger er um þessar mundir að semja sönglagaflokk við texta eftir Kanadamanninn Royce Vavrek fyrir írska sönghópinn Crash Ensemble sem pantaði verkið í samvinnu við Fílharmóníusveit Los Angeles sem frumflutt verður í mars á næsta ári. Daníel og Vavrek vinna einnig saman að óperu um síðustu aftök- una á Íslandi sem Íslenska óperan pantaði. Gleði Víkingur Heiðar Ólafsson og Daníel Bjarnason ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í Berlín. „Fengum hlýjar og góðar móttökur“  Fullt hús á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Víkingi Heiðari í Konzerthaus Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hugmyndin að verkinu kviknaði út frá mínum eigin heimsenda- og um- hverfiskvíða, og pælingum um stað manneskjunnar innan þeirra tíma sem við lifum á núna þar sem heimsendir er orðinn áþreifanlegri en hann var fyrir þrjátíu árum. Mörgum líður eins og þeir séu að horfa á lestarslys í fjarlægð og fólk vill gera meira en kerfið sem við bú- um í leyfir okkur. Við búum við óvissu um hvað við getum gert sem einstaklingar til að leggja lóð á vog- arskálarnar í baráttunni gegn ham- farahlýnun,“ segir Aron Martin Ás- gerðarson, höfundur Heimsendis, nýs leikverks sem Stúdentaleik- húsið frumsýnir á morgun, miðviku- dag, kl. 20. Aron er nýútskrifaður leikstjóri af sviðshöfundabraut LHÍ og segir að verkið sé svört kómedía. „Þetta er grátbroslegt verk, en mér finnst sú tilfinning einmitt vera hluti af mínum heimsendakvíða. Maður fer að hugsa um hvað skiptir máli og hvað það er sem maður er að halda í, hvort sem það eru ein- hverjar fantasíur, draumar eða leyndarmál. Hvers vegna maður lif- ir lífinu eins og maður lifir því, þrátt fyrir að heimurinn sé að fara til andskotans. Í því eru einmitt fyndin augnablik þar sem maður áttar sig á því hvað skiptir máli og að maður sé að halda í hluti sem skipta í raun engu máli í stóra samhenginu. Margt verður hjóm eitt við hliðina á alheimsendaógn, sérstaklega í þess- um aðstæðum sem sögupersónur verksins eru í, afmælisveislu, þegar nokkrir klukkutímar eru í raun- verulegan heimsendi. Samt eru allir að halda í eitthvað sem þeir ættu kannski að sleppa.“ Frjór hópur sem gefur af sér Aron lét Stúdentaleikhúsið á sín- um tíma vita að hann ætti hugmynd í fórum sínum að leikverki sem gæti hentað því að setja upp og því var tekið fagnandi. Heimsendi vann hann síðan í samsköpun með leik- hópnum í gegnum spuna og hvers konar æfingar. „Við héldum áheyrnarprufu- námskeið og þar valdi ég fólk í hóp- inn, en mörg þeirra sem ég valdi eru útskrifuð af leikarabraut Kvik- myndaskólans. Aðalmarkmið mitt var að velja góðan hóp fyrir sam- sköpunina, frjóan hóp sem gæti gef- ið mikið af sér. Þessi hópur er frá- bær og í vinnuferlinu hefur verkið tekið þó nokkrum breytingum frá grunnhugmyndinni. Þetta byggist á sköpunarkrafti hópsins, sem hefur verið magnaður, og komið hafa fram alls konar nýir fletir. Við höf- um farið á flug með heimspekilegar pælingar um fyrirbærið heimsendi og fléttað þær inn í verkið með spuna og öðrum samsköpunar- aðferðum. Vissulega getur það verið flókið og svolítið erfitt að skapa verk saman, en það er alltaf jafn gefandi. Slík vinna er svo skemmti- leg og til verður samheldni í hópn- um þegar allir finna að það ríkir fullkomið traust til þeirra sem lista- manna til að skapa efnið sem þau munu svo sýna. Þetta snýst um að hlusta og virða og skoða allar til- lögur. Við náum að samrýma það sem við erum að gera svo úr verður heild og öllum líður eins og þeir eigi hluta í verkinu.“ Verk Arons, Heimsendir, er sýnt að Sölvhólsgötu 13, í gamla LHÍ. Verkinu er lýst sem gamanleikriti sem gerist í afmælisveislu hins eigingjarna Matthíasar en hún er haldin sama dag og heimsendir á að gerast. Gestirnir eru mættir, kökur eru á borðum og veislustjórinn reynir að halda uppi stemningunni meðan gestirnir deila um minnstu mál þrátt fyrir yfirvofandi endalok. Miðasala á sýningar á verkinu er á vefnum tix.is. Heimsendir í afmæli  „Margir halda í eitthvað sem þeir ættu kannski að sleppa,“ segir leikstjóri Heimsendis hjá Stúdentaleikhúsinu Stúdentaleikhúsið Aron (fremstur fyrir miðju í hettupeysu) ásamt þeim sem koma að sýningunni á leikritinu Heimsendi. Efst frá vinstri: Birgitta Björk Bergsdóttir, Ylfa Marín Haraldsdóttir, Iðunn Helgadóttir, Andri Freyr Sigurpálsson og Sigurður Traustason. Sitjandi frá vinstri: Svanur Pálsson, Birkir Sigurjónsson, Aron og María Jóngerð Gunnlaugsdóttir. Á myndina vantar Vilhjálm Ólafsson og Natalíu Gunnlaugsdóttur. HÁDEGIS- TILBOÐ Mánudaga-föstudaga kl. 11.00-14.30 Borðapantanir í síma 562 3232 Verð frá 990 til 1.990 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.