Morgunblaðið - 27.11.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 279. tölublað 107. árgangur
KEPPIR TIL
ÚRSLITA ANNAÐ
ÁRIÐ Í RÖÐ
TÍMABIL
SÓFA-
VEIÐANNA
TUGMILLJ-
ARÐA EIGNIR
STJÓRNENDA
NÝ VEIÐIBÓK 29 VIÐSKIPTAMOGGINNUNGUR PÍANÓLEIKARI 4
Það var glatt á hjalla hjá skautandi fólki á Rauða-
vatni þegar sólin var að setjast síðdegis í gær.
Indælir litatónar böðuðu fólkið og svellið þó að
varla hafi verið rauða slikju að sjá. Friðsælt en
kalt vetrarveður er á landinu þessa dagana og er
útlit fyrir að það haldist þannig næstu daga.
Morgunblaðið/Eggert
Skautandi skuggamyndir skemmtu sér á svellinu
„Ég hélt sjálfur áður fyrr að spila-
fíkn væri einhvers konar hliðarfíkn
með áfengis- eða vímuefnavanda. Ég
áttaði mig engan veginn á því hvað
hún er sterk fyrr en ég kynntist fólki
sem er að berjast við þetta.“
Þetta segir Jónas, karlmaður á
fimmtugsaldri, en fyrrverandi eigin-
kona hans er spilafíkill og spilaði
eingöngu í spilakössum.
Hann vill ekki koma fram undir
nafni af tillitssemi við fyrrverandi
konu sína og segir að spilafíknin hafi
valdið þeim nægilegum þjáningum
nú þegar.
„Hún spilaði fyrir skírnargjöf son-
ar okkar. Lét sig hverfa og eyddi
hátt í milljón á mánuði. Eitt það
versta var þegar við höfðum mælt
okkur mót í Grasagarðinum á af-
mælisdegi sonar okkar þar sem við
ætluðum að eiga skemmtilegan dag.
Þegar hún kom ekki fór ég að leita
að henni og fann hana á næsta spila-
kassastað,“ segir Jónas, sem segir
fyrrverandi konu sína hafa verið
spilafíkil þegar þau kynntust.
Hún leitaði sér þá aðstoðar og var
óvirk í um tíu ár en hóf þá að spila
aftur og eyddi, að sögn Jónasar, 4-5
milljónum í spilakassa á 5-6 mán-
uðum. »10
Spilaði fyrir um milljón á mánuði
Skírnargjöf sonarins fór í spilakassa
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Spilafíkn Jónas segir sögu fyrrverandi konu sinnar sem er spilafíkill.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er auðvitað nauðsynlegt að
geta gripið til einhverra úrræða, en
að nýta heimild til götulokana og
banna umferð hefur ekki verið rætt
og yrði hvergi vinsælt,“ segir
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á
Akureyri, í samtali við Morgunblaðið
og vísar í máli sínu til heimildar til að
takmarka eða tímabundið banna um-
ferð ökutækja þegar mengun fer yfir
heilsufarsmörk eða hætta er talin á
að svo verði. Heimild þessa er að
finna í nýjum umferðarlögum sem að
óbreyttu taka gildi 1. janúar nk. Til
grundvallar slíku banni skal liggja
fyrir rökstuðningur fyrir takmörkun
umferðar vegna mengunar.
Ásthildur segir umferðarbann
hljóta að vera „allra síðasta úrræði“
sem sveitarfélög myndu grípa til.
„Þegar menn grípa til þess ráðs að
banna umferð, þá hljóta þeir að hafa
reynt öll önnur úrræði án árangurs“.
Morgunblaðið setti sig í samband
við flesta bæjarstjóra á höfuðborgar-
svæðinu í þeim tilgangi að leita álits
þeirra á hugsanlegu umferðarbanni
á mengunardögum. Enginn þeirra
tók vel í hugmyndina.
„Mín fyrstu viðbrögð eru nei,“
sagði bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Sagði sá einnig nauðsynlegt að horfa
til „hófstilltari og vægari úrræða“.
Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ sagði
meðal annars „ekki skynsamlegt“ að
loka fyrir bílaumferð á stofnæð á
borð við Vesturlandsveg.
Bæjarstjóri Kópavogs sagði götu-
lokun vegna mengunar einungis
leiða til enn verra ástands og bæjar-
stjórinn í Garðabæ sagði götulokanir
ekki koma til greina nema „í ýtrustu
neyð“ að vel ígrunduðu máli.
„Yrði hvergi vinsælt“
Bæjarstjórar eru ekki hrifnir af hugsanlegu umferðarbanni á mengunardögum
Bann við bílaumferð aldrei annað en „allra síðasta úrræði“ og „í ýtrustu neyð“
MBæjarstjórar gegn … »6
Markaðsherferðin svartur föstudag-
ur virðist ná sífellt betur til lands-
manna. Á meðan veltan hjá raftækja-
versluninni Elko, sem hefur verið
áberandi í tengslum við herferðina
frá árinu 2015, hefur þrefaldast frá
því að fyrirtækið bauð fyrst upp á til-
boð á þessum degi, hyggjast forsvars-
menn Kringlunnar, Smáralindar og
Hafnartorgs m.a. lengja afgreiðslu-
tíma sína.
Í verslunum á Hafnartorgi í mið-
borg Reykjavíkur verður opið til mið-
nættis, í Kringlunni verður opið til kl.
21 og opið verður til kl. 22 í Smára-
lind. Forsvarsmenn Kringlunnar bú-
ast við 25 þúsund gestum á föstudag
og á undanförnum árum hafa 17 til 20
þúsund manns farið í Smáralind á
þessum degi. »ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tilboð Svartur föstudagur heillar.
Búast við
25 þúsund
manns
Rithöfund-
urinn Ragnar
Jónasson náði í
gær þeim áfanga
að hafa selt millj-
ón eintök af bók-
um sínum.
Af bókunum
milljón hefur
Ragnar selt
minnst hérlendis
eða 65 þúsund eintök. Bækur hans
hafa selst vel erlendis en flestar
bækur hefur Ragnar selt í Frakk-
landi eða 500 þúsund eintök. »6
Milljónasta bók
Ragnars seldist
Ragnar Jónasson
Níu þingmenn úr sex stjórn-
málaflokkum á Alþingi vilja afnám
70 ára aldurstakmörkunar í starfs-
mannalögum ríkisins og hafa þeir
lagt fram þingsályktunartillögu
þess efnis. Er þar lagt til að fjár-
mála- og efnahagsráðherra, ásamt
félags- og barnamálaráðherra,
hefji viðræður við samtök opin-
berra starfsmanna um afnám
þeirra ákvæða úr lögum sem tak-
marka starf opinberra starfsmanna
við 70 ára aldur. Samninganefnd
sveitarfélaga samdi á dögunum við
iðnaðarmannafélög í ASÍ um heim-
ild til að framlengja ráðningar
starfsmanna sem náð hafa 70 ára
aldri en ríkisstarfsmenn eiga ekki
kost á svipuðum lausnum að
óbreyttum lögum. »4
Vilja afnám 70 ára
aldurstakmörkunar