Morgunblaðið - 27.11.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Á endanum erum við öll á sama
báti og blaðamenn líka og verkefni
næstu daga eru að finna leið til þess
að blaðamenn geti orðið hluti af
þessari stóru heild lífskjarasamn-
inganna,“ segir Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, en kjara-
samningur Blaðamannafélags Ís-
lands og samtakanna var felldur í
atkvæðagreiðslu í gær. Alls greiddu
147 atkvæði eða 38,7% fé-
lagsmanna. Þar af sögðu 36 já, eða
24,5% og 105 sögðu nei eða 71,4%.
Sex skiluðu auðu.
Halldór segir að SA geti lítið bor-
ið að samningaborðinu til viðbótar,
þau hafi spilað sínum ásum út.
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ,
segir að blaðamenn hafi sent skýr
skilaboð um að þeir vilji hóflegar
breytingar á kjörum sínum sem
henti starfsstéttinni og að hann voni
að á þá verði hlustað.
Blaðamenn felldu samning
SA vilja sam-
þykkt um lífs-
kjarasamninginn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Talning Atkvæði voru talin í húsnæði Blaðamannafélagsins í Síðumúla.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur
tilkynnt Joy – Eyjagleði ehf. í Vest-
mannaeyjum að starfsleyfi fyrir-
tækisins verði afturkallað næstkom-
andi föstudag, ef þá hafi ekki verið
gerðar útbætur á aðstöðu fyrir-
tækisins og starfsemi. Joy er veit-
ingastaður með ísbúð.
Fjölmargar athugasemdir eru
gerðar við aðstöðu á veitingastaðn-
um í bréfi sem Heilbrigðiseftirlitið
sendi fyrirtækinu 13. nóvember sl.
eftir að málið var kynnt á fundi heil-
brigðisnefndar Suðurlands. Varða
athugasemdirnar húsnæði og búnað,
þrif, meindýravarnir, hreinlæti, vörn
gegn mengun og mælingar á hita-
stigi matvæla.
Jafnframt kemur fram að hluti at-
hugasemdanna hefur verið gerður
eftir þrjár skoðanir á síðasta ári og í
ár án þess að nokkur viðbrögð hafi
borist eða tímasettar áætlanir um
framkvæmdir.
Hóta að
loka ísbúð
í Eyjum
Engin viðbrögð
við athugasemdum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Embætti landlæknis flytur á Höfðatorg og verður
í Katrínartúni 2, 6. hæð. Stefnt er að því að opna
þar á morgun klukkan 10. Undanfarið hefur emb-
ættið verið til húsa á Rauðarárstíg 10.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra svar-
aði nýlega fyrirspurn frá Sigurði Páli Jónssyni al-
þingismanni sem spurði m.a. um kostnað við hús-
næði landlæknisembættisins. Fram kom í svarinu
að greiðslur til leigusala húsnæðis embættisins á
Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi námu samtals 110
milljónum frá 1. janúar 2011 til 28. febrúar 2015.
Meðaltalsleiga á fermetra á tímabilinu var 1.692
krónur. Greiðslur fyrir rafmagn og hita námu 7,6
milljónum á tímabilinu. Eftir að Lýðheilsustöð og
embætti landlæknis voru sameinuð varð húsnæðið
við Austurströnd of lítið.
Landlæknisembættið fékk aðsetur á Barónsstíg
47 árið 2011. Greiðslur til leigusala þar frá 1. júní
2011 til 9. maí 2019 námu samals 370,7 milljónum
króna og greiðslur fyrir rafmagn og hita námu
samtals 13,8 milljónum á tímabilinu.
Mygla fannst á Barónsstíg 47 samkvæmt úttekt
tveggja aðila. Kostnaður vegna myglunnar, þ.e.
húsaleiga í Skógarhlíð frá febrúar 2018 til apríl
2019, þrif í Skógarhlíð, úttekt verkfræðistofu,
skýrsla óháðs matsmanns og sendibílakostnaður
nam samtals 18,7 milljónum.
Einnig kemur fram að leiga fyrir Barónsstíg 47
sé ógreidd frá því að riftun var lýst yfir. Áfallinn
kostnaður komi til skuldajafnaðar við leigukröfu
frá því að riftun var lýst yfir og þar til húsnæðið
var afhent. Þá hefur embætti landlæknis gert
kröfu um endurgreiðslu áfallins kostnaðar á hend-
ur leigusala, að svo miklu leyti sem hann verður
ekki greiddur með skuldajöfnuði.
Landlæknir flytur í Katrínartún
Tíðir flutningar embættisins á síðustu árum Greiðslur til leigusala námu 110
milljónum frá 2011 til 2015 Kostnaður vegna myglu nam tæplega 19 milljónum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Höfðatorg Landlæknisembættið er að flytja í
Katrínartún 2 en það hefur verið á Rauðarárstíg.
Skrifstofu Spalar, rekstrarfélags Hvalfjarðar-
ganga, á Akranesi var endanlega lokað í gær og
skilti fyrirtækisins tekið niður. Síðasti starfs-
maður félagsins var Anna Kristjánsdóttir en hún
fylgdist með því þegar smiðir frá Trésmiðjunni
Akri, Baldvin Þór Þórunnarson og Baldvin Þór
Guðmundsson, tóku skiltið sem var utan á húsinu
niður. Gylfi Þórðarson, einn af frumkvöðlum
Spalar og fyrrverandi framkvæmdastjóri félags-
ins, var einnig viðstaddur þessa sögulega stund.
Í dag verður síðasta herbergi skrifstofunnar
tæmt og þar með lýkur skrifstofuhaldi Spalar
sem hófst árið 1996.
Eins og flestum er kunnugt eignaðist Vega-
gerðin Spöl síðasta vor.
Anna Kristjánsdóttir var þá framkvæmda-
stjóri félagsins en hefur eftir það verið starfs-
maður Vegagerðarinnar.
Skiltið sem tekið var niður í gær er eign Vega-
gerðarinnar líkt og annað sem Spölur lætur eftir
sig. Magnús H. Ólafsson, arkitekt á Akranesi,
hannaði merki Spalar. Það sást fyrst á bygging-
arteikningum sem hann vann að fyrir Spöl í að-
draganda gangagerðarinnar.
Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson
Spölur skellir í lás eftir 23 ára rekstur
Tryggja þarf að
stjórnir frjálsra
félagasamtaka
sem eru á samn-
ingi við Sjúkra-
tryggingar Ís-
lands um veitingu
heilbrigðisþjón-
ustu hlutist ekki
til um faglegan
rekstur slíkra
stofnana.
Þetta kemur fram í hlutaúttekt
embættis landlæknis á Reykjalundi
en í tilfelli Reykjalundar eru það
SÍBS sem eru á samningi við
Sjúkratryggingar Íslands.
„Við tökum ábendingar frá land-
lækni alvarlega. Við munum vinna
úr þeim eftir bestu getu,“ segir Stef-
án Yngvason, formaður starfs-
stjórnar Reykjalundar.
Samkvæmt úttektinni má rekja
óánægju starfsfólks á Reykjalundi
til margra samverkandi þátta en
starfsfólk taldi að framkoma stjórn-
ar SÍBS gagnvart starfsfólki
Reykjalundar hefði ekki verið „lip-
ur“. thorunn@mbl.is
Framkom-
an ólipur
Stefán
Yngvason
Hlutaúttekt birt