Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 6
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ný umferðarlög, sem að óbreyttu
taka gildi 1. janúar næstkomandi,
kveða m.a. á um heimild til að tak-
marka eða tímabundið banna um-
ferð þegar mengun er yfir heilsu-
farsmörkum eða hætta er talin á að
svo verði. Til grundvallar slíku banni
skal liggja fyrir rökstuðningur fyrir
takmörkun umferðar vegna meng-
unar, studdur mæliniðurstöðum og
mengunarspám. Ljóst má vera að
lokun vega og svæða, þ.m.t. stofn-
æða, á höfuðborgarsvæðinu kallar á
víðtækt samstarf sveitarfélaga, lög-
reglu og Vegagerðar. Þeir bæjar-
stjórar sem Morgunblaðið ræddi við
í gær eru allir á einu máli; götu-
lokanir koma vart til greina.
„Mín fyrstu viðbrögð eru nei. Að
loka fyrir bílaumferð hugnast mér
alls ekki,“ segir Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, og
heldur áfram: „Þetta er ekki spenn-
andi kostur og í raun ólíklegt að
hægt verði að framkvæma hann.“
Aðspurð segir Rósa nauðsynlegt
að horfa til „hófstilltari og vægari
úrræða“ í stað þess að banna bíla-
umferð almennings. „Einhver boð
og bönn í þessu samhengi hugnast
manni bara alls ekki þó færa megi
rök fyrir því að tilgangurinn sé góð-
ur. Við hljótum að geta gripið til
annarra leiða til að bregðast við
stöðunni,“ segir hún.
Götuþrif hafa reynst vel
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í
Mosfellsbæ, segir menn þar glíma
við svifryksmengun með götuþrif-
um. Slíkt hafi skilað góðum árangri.
„Okkar helsta æð er Vesturlands-
vegur og það væri ekki skynsamlegt
að loka honum. Það væri mun mál-
efnalegra að þrífa veginn og ryk-
binda þegar aðstæður eru með þeim
hætti,“ segir hann og bætir við að
götusópun hafi dregið úr mengun
innan marka sveitarfélagsins.
„Þessi mál eru þó alltaf til skoð-
unar hjá okkur og það má til að
mynda nefna að við höfum áhuga á
að setja upp mæli til að fylgjast með
loftgæðum í sveitarfélaginu. Og það
er í raun í undirbúningi,“ segir hann.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
í Kópavogi, tekur í svipaðan streng.
Götulokanir á stofnæðum og vegum
sveitarfélagsins eru ekki inni í
myndinni, að hans mati.
„Við höfum tekið á þessu máli með
því að þrífa vegina okkar. Það hefur
breytt mjög miklu þar sem okkar
helsta vandamál er, til að mynda í
Kópavogsdal. En að loka götum
vegna mengunar – ég sé það bara
ekki gerast. Ég reikna því ekki með
að Kópavogur beiti þessu heimildar-
ákvæði,“ segir hann.
Þá segir Ármann ljóst að götulok-
un vegna mengunar muni einungis
leiða til verra ástands. „Ég veit ekki
hvernig í ósköpunum við ættum að
fara að því að loka til dæmis Nýbýla-
vegi. Ef lokað er á einum stað þá
eykst bara álagið á öðrum stað.
Þetta er mjög flókið samspil og það
er alls ekki hlaupið að því að fara að
loka götum,“ segir hann.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, segir „hættuástand“ þurfa
að skapast áður en gripið er til rót-
tækra aðgerða á borð við götu-
lokanir á höfuðborgarsvæðinu.
„Menn ættu ekki að gera svona
nema í ýtrustu neyð og svona þarf að
vera vel ígrundað,“ segir hann. „Við
munum auðvitað taka þátt í þessu
samtali og skoðum það með öðrum
sveitarfélögum hvað hægt sé að
gera. Ég á ekki von á því að eitt
sveitarfélag taki af skarið og loki
einhvers staðar án samráðs.“
Ekki náðist í Ásgerði Halldórs-
dóttur, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi.
Útfærslan ekki á hreinu
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
Vinstri grænna og formaður um-
hverfis- og heilbrigðisráðs Reykja-
víkurborgar, segir ekki búið að út-
færa nákvæmlega hvaða úrræði það
eru sem sveitarfélög gætu gripið til
þegar kemur að því að koma bönd-
um á loftmengun vegna umferðar.
„Strangt tiltekið vitum við ekki
enn útfærsluna. En við ætlum að
skoða hvað hefur heppnast best í
kringum okkur. Við þurfum aftur á
móti að vera tilbúin með ákveðið
verklag og geta stutt það með tölu-
legum gögnum þegar stefnir í svif-
ryks- og mengunardaga,“ segir hún.
Þá segir Líf mikla þörf á því að
bregðast við mengun á höfuðborg-
arsvæðinu. „Ég held við getum öll
verið sammála um að við viljum ekki
svona ástand og að þörf sé á að ná
þessu niður. Þetta er ekki einkamál
Reykvíkinga,“ segir Líf og bendir á
að samvinna sé lykillinn í þessu.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að engin vinna væri haf-
in þar í tengslum við umræddar
heimildir í nýjum umferðarlögum.
Bæjarstjórar gegn götulokunum
Ný umferðarlög kveða á um heimildir til að takmarka eða banna umferð ökutækja þegar loft-
mengun er mikil Bann kallar á víðtækt samstarf sveitarfélaga, lögreglu og Vegagerðarinnar
Morgunblaðið/RAX
Loftmengun Svifryk og útblástur frá ökutækjum er orðið að miklu vandamáli á höfuðborgarsvæðinu.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Ragnhildur G. Finnbjörnsdóttir, doktor í lýðheilsuvísindum og teymis-
stjóri hjá Umhverfisstofnun, segir svifryk valda slæmum áhrifum á heilsu
fólks. „Það er jafn viðurkennt innan vísindaheimsins að svifryk skaðar
heilsu fólks eins og reykingar skaða heilsu fólks. Þó höfuðborgarsvæðið
sé kannski ekki stórt í samhengi við stórborgir erlendis, þá koma oft
slæmir dagar hér sem eru áþekkir þeim sem koma upp í stórborgum á
borð við Lundúnir og París,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið.
Að sögn Ragnhildar hafa auknar innlagnir á sjúkrahús vegna lungna-
og hjartasjúkdóma verið tengdar við svifryk.
„Það sama á við um heilablóðföll. Einnig er búið að finna samband á
milli svifryksmengunar og dauðsfalla,“ segir hún enn fremur og bætir við
að börn séu sérstaklega útsett fyrir svona mengun.
Mengun í anda stórborga
SÉRFRÆÐINGUR HJÁ UMHVERFISSTOFNUN
www.fi.is
Myndakvöld
Ferðafélags Íslands
Þá er komið að myndakvöldi í kvöld,
miðvikudag, 27. nóvember. Þemað er að
þessu sinni snjór og ís á framandi slóðum.
Ragnar Th. Sigurðsson sem er löngu
kunnur fyrir myndir sínar frá Íslandi
og framandi slóðum sýnir myndir frá
Svalbarða.
Þá sýna Þóra Hrönn Njálsdóttir og
Sigurjón Pétursson myndir frá ferð sinni
með skútu og á kayak um Scoresbysund
á Grænlandi. Ljósmyndir þeirra Þóru Hrannar og Sigurjóns prýða m.a.
árbók FÍ 2019 um Mosfellsheiði svo og nýútkomna gönguleiðabók um
sama svæði.
Myndakvöldið er í sal FÍ í mörkinni 6 og hefst kl. 20:00.
Boðið er upp á kaffiveitingar í hléi.
Aðgangur er ókeypis og eru
allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is
Myndakvöld verður í sal FÍ í Mörkinni 6
miðvikudaginn 27. nóvember kl. 20.00 Höskuldur Daði Magnússonhdm@mbl.is
„Þetta er bæði rosalega ánægjulegt og fyllilega verð-
skuldað,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá
Bjarti/Veröld.
Þeim áfanga var fagnað í gær að spennusagnahöfund-
urinn Ragnar Jónasson hefur selt eina milljón eintaka af
bókum sínum. Hefur hann selt 500 þúsund bækur í
Frakklandi, 250 þúsund í Bretlandi, 100 þúsund í Banda-
ríkjunum og 65 þúsund á Íslandi.
Að sögn Péturs hafa vinsældir Ragnars úti í heimi
aukist hratt undanfarið og síðasta árið lætur nærri að á
tveggja mínútna fresti hafi verið seld bók eftir Ragnar
einhvers staðar í heiminum. „Þetta er frábær árangur
hjá Ragnari. Það tók auðvitað tíma að vinna þessi lönd
erlendis og það var ekki fyrr en svona 2016 að hjólin fóru
að snúast fyrir alvöru,“ segir Pétur Már.
Fyrsta bók Ragnars kom út 2009 og hefur hann gefið
út nýja bók á hverju ári síðan. Bækur Ragnars hafa verið
gefnar út í rúmlega tuttugu löndum, þar á meðal í
Bandaríkjunum, Kanada og flestum Evrópulöndum. Þá
hafa bækurnar komið út í Japan, Suður-Kóreu og Ástr-
alíu auk þess sem útgáfuréttur hefur verið seldur til Eþí-
ópíu. Nú í haust komu bækur út á spænsku og kata-
lónsku í fyrsta sinn. Samkvæmt upplýsingum frá
útgefanda er tyrknesk útgáfa væntanleg í desember og á
næsta ári bætast við Holland, Noregur, Makedónía, Arg-
entína og Mexíkó. Þá verða bækurnar komnar út í 30
löndum.
Um helgina valdi The Sunday Times nýjustu bókina á
ensku, Drunga (The Island), sem eina af fimm bestu
glæpasögum ársins í Bretlandi. Dimma var í sumar til-
nefnd sem bók ársins í Svíþjóð. Í Frakklandi og Svíþjóð
hafa bækur Ragnars náð efstu sætum metsölulista á
árinu. Nýjasta bókin, Hvítidauði, var seld til risaforlags-
ins Macmillan í Bandaríkjunum áður en hún kom út.
Ragnar Jónasson rýfur
milljón eintaka múrinn
Miklar vinsældir í Frakklandi Útgáfa í yfir 20 löndum
Ljósmynd/María Margrét Jóhannsdóttir
Milljón bækur Hólmfríður Helga Jósefsdóttir keypti
milljónasta eintakið af bókum Ragnars Jónassonar (t.h.)
í gær og fékk að launum myndarlegan blómvönd.