Morgunblaðið - 27.11.2019, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Spilafíkn erandstyggi-legt fyrir-
bæri. Í Morgun-
blaðinu og á mbl.is
hefur Anna Lilja Þórisdóttir
undanfarna daga fjallað um
spilafíkn og afleiðingar hennar
og verður framhald á þeirri
umfjöllun á komandi dögum.
Þess eru dæmi að heilu fjöl-
skyldurnar hafi verið á vonar-
völ vegna spilafíknar. Um sex
þúsund Íslendingar munu eiga
við verulegan spilavanda að
glíma. „Amma spilafíkill. Það
er ég,“ sagði 65 ára gömul
kona í einu viðtalinu. Hún
áætlar að hafa eytt 30 til 50
milljónum í spilakassa á tíu ár-
um.
Alma Hafsteinsdóttir, við-
skiptafræðingur og fíkni- og
fjölskyldumarkþjálfi með sér-
hæfingu í spilafíkn, þekkir
sjúkdóminn af eigin raun. Hún
segir að skortur á úrræðum
fyrir fíkla sé alvarlegt mál.
Alma er með heimasíðuna
spilavandi.is þar sem hægt er
að finna upplýsingar um spila-
fíkn og fara í sjálfspróf með
því að svara spurningum um
fjárhættuspil og hegðun.
Spilakassar hafa verið sagðir
skæðastir þegar kemur að
spilafíkn. Í einum kassa er
hægt að tapa 360 þúsund krón-
um á klukkustund að sögn
Ölmu og bætir hún við að ekki
sé óalgengt að langt leiddir
spilafíklar spili í
tveimur kössum
samtímis.
Hér á landi reka
tvö fyrirtæki spila-
kassa, Happdrætti Háskóla Ís-
lands og Íslandsspil, sem er í
eigu Rauða kross Íslands
(64%), Landsbjargar (26,5%)
og SÁÁ (9,5%).
Í fyrra voru tekjur þessara
fyrirtækja af spilakössum rúm-
ir 12,2 milljarðar króna að því
er fram kom í svari dóms-
málaráðherra við fyrirspurn
Björns Levís Gunnarssonar,
þingmanns Pírata, fyrr á árinu.
Að nafninu til er þessi starf-
semi í þágu góðs málstaðar. En
spyrja má hvort málstaðurinn
sé orðinn að aukaatriði. Í fyrra
var hagnaðurinn af spilaköss-
unum 1,9 milljarðar. Það er
vissulega álitleg upphæð, en þó
aðeins um 15% af heildartekj-
unum. Hætt er við að góð-
gerðarfélag sem aðeins tækist
að nýta 15% aflaðs fjár í þágu
málstaðar yrði fyrir gagnrýni
og myndi jafnvel missa stuðn-
ing. Ætti eitthvað annað að
gilda um spilakassa?
Fórnarkostnaður þessarar
fjáröflunarleiðar er gríðar-
legur. Og þegar milljónirnar
eru flognar getur spilafíkillinn
ekki einu sinni huggað sig við
að peningarnir hafi runnið til
góðs málefnis því að þeir fóru
að mestu í að viðhalda og reka
spilakassana.
Spilafíkn getur
valdið miklum skaða}Allt lagt undir
Nú þegar rúmurhálfur mán-
uður er til kosninga
í Bretlandi er
Íhaldsflokkurinn
með töluvert for-
skot á Verka-
mannaflokkinn. Þó er ekki
hægt að ganga út frá því að
Íhaldsflokkurinn nái meiri-
hluta, jafnvel þó að kannan-
irnar séu nærri lagi, sem vita-
skuld er óvissu háð. Spennan er
þess vegna mikil enda mikið í
húfi, einkum það sem snýr að
útgöngu Breta úr Evrópusam-
bandinu, Brexit.
Leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, Jeremy Corbyn, hefur tek-
ið mjög undarlega afstöðu í því
máli, sem er að taka ekki af-
stöðu. Slíkt afstöðuleysi er vita-
skuld afar ótrúverðugt fyrir
leiðtoga flokks og mann sem
sækist eftir að verða forsætis-
ráðherra og hefur veikt hann í
samanburðinum við Boris
Johnson, leiðtoga Íhaldsflokks-
ins, sem hefur verið skeleggur
og afgerandi.
En það er fleira sem flækist
fyrir Corbyn, meðal annars það
að hann stillir sér upp yst á
vinstri væng stjórnmálanna og
væri eflaust stimplaður öfga-
maður væri hann hinum megin
á pólitíska litróf-
inu. Hann vill til að
mynda þjóðnýta
flesta innviði Bret-
lands, en hug-
myndir um svo víð-
tæka þjóðnýtingu
eru óþekktar meðal flokka sem
vilja láta taka sig alvarlega á
Vesturlöndum.
Annað sem flækist fyrir Cor-
byn og er ekki heldur til fyrir-
myndar er að hann og fleiri í
flokknum hafa þótt hallir undir
gyðingaandúð. Ýmis dæmi hafa
komið upp um slíkt og þetta
hefur orðið til þess að æðsti
rabbíni Bretlands hefur stigið
fram og lýst því yfir að Corbyn
sé óhæfur til að gegna valda-
stöðu. Slíkur maður hefur aldr-
ei fyrr tjáð sig með þessum
hætti um stjórnmál, sem sýnir
hve alvarlegum augum þetta er
litið.
Allt hefur þetta ýtt undir efa-
semdir um að Corbyn geti leitt
nýja ríkisstjórn að kosningum
loknum og hafa efasemdirnar
jafnvel heyrst innan úr hans
eigin flokki. Því má þó ekki
gleyma að Verkamannaflokk-
urinn hefur hálfan mánuð til að
styrkja stöðu sína með ein-
hverjum aðgerðum og ekki er
útilokað að það takist.
Afstöðuleysi, öfgar
og gyðingaandúð
eru ekki hjálpleg í
kosningabaráttu}
Corbyn í vanda
2
6. nóvember 2017 Fulltrúar flokka
með sameiginlega fortíðarsýn skál-
uðu í kampavíni í ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu að loknum árekstra-
lausum stjórnarmyndunarviðræðum.
1. desember 2017 Formenn stjórnarflokk-
anna mættu til Gísla Marteins sem sagði eftir
þáttinn: „Þau voru reyndar alls ekki drukkin,
heldur bara afslöppuð“. Þetta mun vera í síð-
asta sinn sem slík yfirlýsing hefur verið gefin.
22. desember 2017 Samþykkt tillaga for-
manns Sjálfstæðismanna um að hækka fjár-
magnstekjuskatt um 10%. Á sama tíma var
ákveðið að falla frá ákvörðun fyrri ríkisstjórnar
um hækkun á kolefnisgjöldum, enda umhverf-
ismálin undir forystu VG.
10. apríl 2018 Ljósmæður og BHM „lýsa
undrun og vanþóknun á ummælum heilbrigðis-
ráðherra“ sem „benda til þess að hún telji kjör ljósmæðra
þeim sjálfum að kenna“.
18. júlí 2018 Hátíðarfundur á Þingvöllum að við-
stöddum hátt í 200 manns, að meðtöldum ferðalöngum,
ljósamönnum og Piu Kjærsgaard, sérstökum gesti forseta
Alþingis. Ekkert var til sparað í ljóskösturum á þessum
sumardegi og talið að þingmenn hafi aldrei verið eins vel
upplýstir. Lýsingin, sem kostaði 22 milljónir króna, er tal-
in dýrasta þinglýsing sögunnar.
8. september 2018 Heilbrigðisráðherra lýsir því yfir að
það „hjálpaði ekki parkinsonssjúklingi á Þórshöfn ef opn-
uð yrði ein stofa taugalæknis í Reykjavík“.
1. desember 2018 Af því að búið var að eyða 86.985.415
kr. í lýsingu og fleira við þingfundinn á Þingvöllum var
enginn peningur eftir í hitalampa fyrir dönsku
drottninguna við stjórnarráðið. Hún fékk þó
ullarteppi.
5. desember 2018 Fram komu upplýsingar
um greiðslur til þingmanna, meðal annars fyr-
ir flug og akstur, ágæt nálgun við kolefnisspor
þeirra. Þingmenn VG náðu þremur af fimm
efstu sætum þetta ár, en í ljós kom að margir
þingmenn eru sífellt úti að aka.
11. desember 2018 Að frumkvæði VG var
samþykkt að lækka veiðigjöld á útgerðar-
menn.
19. ágúst 2019 Forsætisráðherra lýsti því
yfir að hún gæti ekki hitt varaforseta Banda-
ríkjanna vegna þess að hún hefði lofað að flytja
ávarp á þriggja daga fundi Norræna verka-
lýðssambandsins og „sæi ekki ástæðu til þess
að breyta því“. Varaforsetinn var ekki jafn
upptekinn og átti auðvelt með að breyta sinni dagskrá.
13. nóvember 2019 Fjármálaráðherra: „Auðvitað er rót
vandans í þessu tiltekna máli veikt stjórnkerfi og spillt
stjórnkerfi í landinu. Það virðist vera einhvers konar und-
irrót alls þess sem við erum að sjá flett ofan af.“
Á afmælinu er við hæfi að yrkja til stjórnarinnar í anda
listaskáldsins góða:
Stjórnin er hvorki sterk né góð
stundum lin og ekki beitt.
Hún er hvorki hress né móð.
Hún er svo sem ekki neitt.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Tvö tíðindalítil ár í stjórnarráðinu
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Unnið er við smíði húsanna,
sem flutt verða á staðinn þegar
sökklar hafa verið reistir, en unnið
er við að grafa fyrir þeim núna. Þá
er nú unnið við lagnir í Ægisgarð-
inum, en þær þarf að endurnýja og
jafnframt að fjarlægja lagnir sem
eru á byggingasvæði húsanna.
Vinna við að innrétta húsin
hefst þegar þau eru komin á staðinn
og verður unnið í þeim öllum sjö
talsins í vetur, að sögn Guðmundar.
Eitt húsanna er tækjahús sem reist
er fyrir tæknibúnað og þar verður
enn fremur salernisaðstaða. Gata og
gangstéttir verða síðan endurgerðar
og pallar útbúnir milli húsanna.
Arkitektar eru Yrki arkitekta-
stofa ehf. og verkfræðistofan Hnit
ehf. sér um burðarþolshönnun.
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna
í haust var staðfest tillaga skipu-
lagsfulltrúa um úthlutun smáhýs-
anna og var hafnarstjóra heimilað
að ganga frá afnotasamningum með
fyrirvara um að viðkomandi fyrir-
tæki uppfylli kröfur reglna um afnot
smáhýsanna.
Óskað var eftir umsóknum um
aðstöðu í nýjum söluhúsum frá
áhugasömum aðilum sem eru nú
starfandi í hafsækinni ferðaþjónustu
við Miðbakka og Ægisgarð. Níu um-
sóknir bárust í mars 2019. Lagt var
til að gerður yrði afnotasamningur
við eftirfarandi fyrirtæki vegna
nýrra söluhúsa við Ægisgarð:
Special Tours, Elding, Sea Sa-
fari, Seatrips, Reykjavík by Boat,
Happy Tours og Katla Whale Watch-
ing.
Samhliða þessu er unnið að því
að koma fyrir nýjum brimbrjóti í
Suðurbugtinni austan við Ægisgarð,
þ.e. fyrir framan grænu verbúðirnar.
Flotbryggjum verður komið fyrir í
bugtinni og var hún jafnframt dýpk-
uð til að tryggja viðunandi dýpi.
Króli ehf. útvegar flotbryggjurnar
og kemur þeim fyrir. Landgangar
verða endurnýjaðir og verða útbúnir
samkvæmt ítarlegri kröfum en áður.
Gamlir skúrar víkja
fyrir nýjum húsum
Morgunblaðið/sisi
Ægisgarður Gömlu skúrarnir eru nú horfnir á braut og byrjað að slá upp fyrir grunnum undir nýju söluhúsin.
Tölvumynd/Yrki arkitektar
Nýju húsin Mikil breyting verður á Ægisgarði þegar þau verða komin upp.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ægisgarður í Gömluhöfninni í Reykjavíker að taka stakka-skiptum. Skúrar sem
sett hafa svip sinn á svæðið hafa ver-
ið fjarlægðir. Skúrarnir hafa verið
aðsetur hvalaskoðunarfyrirtækja
undanfarin ár. Næsta sumar verður
búið að koma fyrir nýjum söluhúsum
á svæðinu, þar sem ferðamenn geta
keypt sér miða í hvala- og lundaskoð-
unarferðir og aðrar slíkar ferðir. Þá
hefur tækifærið verið notað til þess
að endurnýja lagnir í jörðu.
Ægisgarður liggur í beinu fram-
haldi af Ægisgötu. Hann er austan
Slippsins og hafa hvalbátar Hvals hf.
haft viðlegu við Ægisgarð í áraraðir.
Umferð erlendra ferðamanna hefur
stóraukist á svæðinu undanfarin ár
og tími kominn til að endurnýja það
og fegra.
Faxaflóahafnir skrifuðu undir
verksamning við E Sigurðsson ehf.
þann 15. maí 2019. Samnings-
upphæðin er tæplega 400 milljónir.
E. Sigurðsson er að smíða söluhúsin
og sér fyrirtækið um allt verkið, þ.m
talið jarðvinnuna við Ægisgarð.
Verkinu á að ljúka 30. apríl 2020.
Vetraraðstöðu hefur verið kom-
ið upp fyrir þá aðila sem halda úti
hvalaskoðun yfir vetrarmánuðina og
hafa aðrir skúrar verið fjarlægðir,
samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Eiríkssonar, forstöðumanns
tæknideildar Faxaflóahafna.