Morgunblaðið - 27.11.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.11.2019, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019 Nautakjöt, lambakjöt, svínakjöt, grillkjöt, lúxus hamborgarar, bacon og pylsur í brönsinn Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu Umferðarvandinn á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist hratt á síð- ustu árum. Umferð- artafir á hvern bíl eru orðnar svipaðar og á borgarsvæðum með 1-2 milljón íbúa. Mælingar á umferðartöfum Fyrirtækið TomTom framleiðir GPS-leiðsögutæki og safn- ar upplýsingum um umferðarástand víða um heim frá 550 milljón tækjum. Með því að gúgla með leitarorðunum „TomTom traffic index“ getur les- andinn fundið hvernig TomTom rað- ar 403 borgum eftir umferðarástandi. Reykjavík (höfuðborgarsvæðið) er nýkomin á listann hjá TomTom og er nr. 309 í röðinni með tafastuðulinn 18%. Það þýðir að ökuferðir sem taka 10 mínútur í frjálsu flæði umferðar taka að meðaltali 10x1,18=11,8 mín- útur. Ef tafastuðullinn er reiknaður sérstaklega fyrir álagstíma umferðar, þá er hann 41% fyrir álagstíma ár- degis og 45% fyrir álagstíma síðdegis. Sömu ökuferðir taka að því að með- altali 10x1,45=14,5 mínútur á álags- tíma síðdegis. Samanburður við aðrar borgir Meginreglan er að umferðarástand versnar eftir því sem borgir stækka. Mumbai á Indlandi er efst á listanum hjá TomTom með tafastuðulinn 65%. Íbúafjöldi Mumbai-svæðisins er um 20 milljónir. Íbúafjöldi Los Angeles- svæðisins er um 12 milljónir og taf- astuðullinn 41% (80 % ef einungis er reiknað fyrir álagstíma síðdegis). Neðarlega á TomTom-listanum eru 10 bandarískar bílaborgir með tafast- uðul á bilinu 9-12%. Íbúafjöldi þess- ara borgarsvæða er á bilinu 600 þús- und til tvær milljónir. Af þessu má ráða að umferð- arástandið í bandarískum borgum af svipaðri stærð og höf- uðborgarsvæðið er að jafnaði mun betra en hér. Hvers vegna er það svo? Jú, skýringin er einföld. Þjóðvegirnir á höfuðborgarsvæðinu eru burðarásinn í gatna- kerfinu og að mestu fjármagnaðir af ríkinu. Við búum í mjög strjál- býlu landi, sem hefur ekki haft efni á því að koma vegakerfinu í jafn gott horf og þau lönd sem við viljum bera okkur saman við. Þess vegna hafa fjárveitingar til vega- gerðar á höfuðborgarsvæðinu verið af skornum skammti. Þrátt fyrir að mestum hluta fjárveitinga til nýbygg- ingar þjóðvega hafi á síðustu áratug- um verið varið til vegagerðar utan höfuðborgarsvæðisins, þá hefur það hvergi dugað til. Til skamms tíma vorum við í hópi þjóða með fæst dauðaslys miðað við höfðatölu, en síð- ustu árin höfum við dregist hratt aft- ur úr. Vegna sívaxandi umferðar, m.a. vegna aukins ferðamannastraums, er fyrirséð að næstu áratugina þarf að veita áfram mikið fé í endurbætur þjóðvega á landsbyggðinni. Auk þess er líklegt að fjárveitingar til jarð- gangagerðar á landsbyggðinni verði af stærðargráðunni 10 milljarðar á ári í fyrirsjáanlegri framtíð. Samgöngusáttmálinn Í sáttmálanum, sem nú bíður af- greiðslu Alþingis, er gert ráð fyrir að uppbygging samgönguinnviða á höf- uðborgarsvæðinu, sem í sögulegu samhengi séð hefði dreifst á 50 ár, verði lokið á 15 árum. Auk þess er stefnt að samkomulagi um legu Sundabrautar, en óvissa ríkir um tímasetningu framkvæmda. Hugur samgönguráðherra stendur til þess að lokið verði við Sundabraut fyrir 2030. Ef það verður niðurstaðan þá erum við að tala um nálægt 200 millj- arða kr. í uppbyggingu samgöngu- innviða á höfuðborgarsvæðinu til árs- ins 2033. Það yrði auðvitað fagnaðar- efni, en segir ekki alla söguna. Svona miklum fjármunum verður að for- gangsraða eftir hagkvæmni. Snjallvæðing umferðarljósa og aðr- ar tiltölulega ódýrar framkvæmdir sem bæta umferðarflæðið eru lang- hagkvæmasti hluti sáttmálans. Fjár- veiting upp á nokkra milljarða kr. mun skila sér margfalt til baka í formi tímasparnaðar vegfarenda, minni eldsneytiskostnaði og síðast en ekki síst minni mengun. Þessar ódýru að- gerðir duga því miður ekki til að leysa umferðarvandann, sérstaklega ekki til lengri tíma litið, auk þess sem huga þarf að fleiri þáttum, s.s. um- ferðaröryggi, umhverfisáhrifum bíla- umferðar o.fl. Að mínum dómi tekur samgöngusáttmálinn vel á þessum þáttum, með þremur undantekn- ingum. Í fyrsta lagi er mikilvægt að tryggja að framkvæmdum við Sunda- braut verði lokið sem fyrst. Í öðru lagi er áætluð fjárveiting til innviða hraðvagnakerfis (borgarlína) upp á 50 milljarða kr. til ársins 2033 langt frá því að vera nægilega hagkvæm fjárfesting. Áætlaður kostnaður við fullgerða borgarlínu er 70 milljarðar kr. Ódýrt hraðvagnakerfi upp á 15-25 milljarða kr. myndi gera nánast sama gagn og valda mun minni umferðar- töfum á framkvæmdatíma. Í sam- gönguáætlunum fyrir borgarsvæði af svipaðri stærð og höfuðborgarsvæðið er sjaldgæft að gert sé ráð fyrir um- fangsmiklu sérrými fyrir hraðvagna (Bus Rapid Transit, BRT). Yfirleitt er ekki gert ráð fyrir neinu hrað- vagnakerfi eða þá að gert er ráð fyrir ódýru kerfi (BRT-Lite). Í þriðja lagi hefði mátt spara um 10 milljarða kr. með því að láta Miklubraut í um helm- ingi styttri stokk, þ.e. milli Rauðar- árstígs og Stakkahlíðar. Auk þess myndu framkvæmdir taka styttri tíma og valda minna raski fyrir íbúa í grenndinni og umferðartafir á fram- kvæmdatíma yrðu miklu minni. Að lokum vil ég hvetja alþingis- menn til að fara vel yfir samgöngu- sáttmálann, áður en hann verður afgreiddur frá Alþingi. Umferðarvandinn og samgöngusáttmálinn Eftir Þórarin Hjaltason » Af þessu má ráða að umferðarástandið í bandarískum borgum af svipaðri stærð og höfuðborgarsvæðið er að jafnaði mun betra en hér. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræðingur og MBA. thjaltason@gmail.com Heiðmörk er stærsta útivistar- og skógræktarsvæði okk- ar Reykvíkinga. Næsta sumar eru 70 ár liðin frá því að borgarstjóri Reykja- víkur, Gunnar Thor- oddsen, vígði Heið- mörkina, en það hrinti af stað mestu sjálf- boðavinnu sem hefur verið unnin í umhverfismálum hér á landi. Við Rauðavatn blasir í dag við skógur sem framsýnir einstaklingar höfðu gróðursett fyrir um 120 ár- um. Þegar Gunnar Thoroddsen friðlýsti Heiðmörkina og afhenti Skógræktarfélagi Reykjavíkur hafði þessi tilraun til skógræktar sem sagt staðið í rúm 50 ár. Við sem erum fæddir á öndverðri síð- ustu öld könnumst við umtalið um skógræktarsvæðið við Rauðavatn, en það þótti ekkert vit í því að rækta barr- skóga hér á landi mið- að við þann árangur skógræktar sem blasti þar við. Trén sem voru sett þar niður höfðu lítið stækkað í þessi 50 ár frá því þau voru sett niður. Þannig var hugur meginþorra landsmanna til skóg- ræktar fyrir um 70 ár- um. Heiðmörkinni var skipt niður í hæfilega reiti sem síð- an var úthlutað til félagasamtaka og fyrirtækja, en starfið var skipu- lagt af Skógræktarfélagi Reykja- víkur. Eitt af þeim félögum sem fengu úthlutaðan reit var Akóges og hóf þar skógrækt strax á fyrsta ári. Mikill skógur hefur vaxið frá því að ég fór sem lítill gutti í skóg- ræktarferðir með föður mínum upp í Heiðmörk að gróðursetja tré með Akóges og að vinna hjá Skógrækt Reykjavíkur í sumarvinnu. Með ótrúlegri seiglu frammá- manna í skógrækt um allt land hafa verið ræktaðir skógar sem við erum stolt af og þessir skógar hafa valdið hugarfarsbreytingu og velkist eng- inn í vafa um að hægt sé að rækta skóg hér á landi. Það er líka ótrúlegt að vera feng- inn til að meta aspir í burðarvið sem óx í landi Vallarness á Austur- landi, sem síðan var notaður til að reisa hús þar á staðnum. Ásatrúar- menn munu reisa Hof í Öskjuhlíð- inni úr íslenskum viði. Þetta er að gerast og eftir nokkur ár verða starfandi sögunarmyllur hér á landi til að fletta bolum til húsbygginga. Starf okkar í Heiðmörk í 70 ár og allra þeirra sem fóru af stað í skóg- rækt um land allt á þessum tíma er lóðið á vogarskálar við að breyta hugarfarinu í trú á skógrækt og að við getum ræktað tré til nytja. „Við erum ekki lengur skóglausa þjóðin í skóglausa landinu,“ sagði Árni Friðriksson sem var formaður Skógræktarfélags Íslands. „Auð- legð okkar þjóðar og velmegun má sjá á því hvernig við yrkjum landið í dag,“ sagði Halldór Laxness. Því skiptir það okkur miklu máli, sem höfum unnið þetta frumkvöðlastarf, að jólatréð sem skreytir Austurvöll um jólin verði séð sem boðberi þess skógræktarstarfs sem hefur verið unnið hér á landi og beri nafn Heið- merkur til heiðurs. Tréð á Austurvelli er til heiðurs skógræktarstarfi hér á landi Eftir Eirík Þorsteinsson » Jólatréð sem skreytir Austurvöll um jólin er boðberi þess skógræktarstarfs sem var unnið hér á landi og ætti að bera nafn Heiðmerkur til heiðurs. Eiríkur Þorsteinsson Höfundur er trétæknir. eiki@timbur.is Ljósmyndari óþekktur Skógrækt Akóges í skógrækt í Heiðmörk fyrir 70 árum. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.