Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 6
Stór hluti leikskóla
er rekinn í lélegu og
úr sér gengnu húsnæði.
Starfsaðstæðurnar eru
óviðunandi.
Guðrún Jóna Thorarensen
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar
eftir tilnefningum um fyrirtæki eða
stofnun, sem vegna verka sinna og
athafna á síðasta ári er þess verðugt að
hljóta umhverfisviðurkenninguna
Kuðunginn fyrir árið 2019.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð
fylgi með tilnefningunni.
Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt
sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Tillögur skulu berast umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 17. mars
nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið
postur@uar.is eða með pósti í umhverfis-
og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101
Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.stjornarradid.is/kudungurinn
Kuðungurinn 2019
Umhverfisviðurkenning umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Utanríkisráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Félagsmálaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Fjármála- og
efnahagsráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Umhverfi s- og
auðlindaráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Stjórnarráð Íslands
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið
Merki að neðan í raðauglýsiungar
fyrir ráðuneytin miðað við ca. 2 dálka auglýsingar....
Húsmæðraorlof
Gullbringu- og Kjósarsýslu 2020
Garðabær, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær,
Reykjanesbær, Seltjarnarnes, Suðurnesjabær og Vogar
Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver
kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launa
greiðslu fyrir það starf.
Í ár verða eftirtaldar ferðir í boði:
Ítalíuferð - Bella Italia 1. – 8. júní
Aðventuferð til München í Þýskalandi 25. – 29. nóvember
Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar
og taka á móti pöntunum í síma,
24. – 28. febrúar, á milli kl. 17:00 og 19:00.
Svanhvít Jónsdóttir........ 565 3708
Ína D. Jónsdóttir ............. 421 2876
Guðrún Eyvindsdóttir .....422 7174
Sigrún Jörundsdóttir .... 661 3300
Sólveig Jensdóttir .......... 861 0664
Sólveig Ólafsdóttir ... ......698 8115
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
OPIÐLAUGARDAG
10-15
HUMARSÚPA
STÓR HUMAR
MENNTAMÁL „Ég hef gríðarlegar
áhyggjur af stöðu leikskóla Reykja-
víkurborgar. Leikskólakennurum
í leikskólum borgarinnar fækkaði
um 98 frá 2015 til 2018. Hlutfall
starfandi leikskólakennara inni
á deildum, af heildarfjölda starfs-
manna, er tæp 20 prósent,“ segir
Guðrún Jóna Thorarensen, leik-
skólastjóri og samráðsfulltrúi leik-
skólastjóra í Reykjavík.
Samkvæmt lögum á tveimur
þriðju stöðugilda við kennslu,
umönnun og uppeldi barna að vera
sinnt af menntuðum leikskóla-
kennurum. Samkvæmt tölum frá
Hagstofunni var þetta hlutfall um
28 prósent á landinu öllu árið 2018.
Guðrún bendir á að inni í tölum
Reykjavíkurborgar séu aðstoðar-
leikskólastjórar sem margir vinni
lítið sem ekkert inni á deildum.
Hlutfall leikskólakennara sem vinni
inni á deildunum sé því enn lægra.
„Ef þetta hlutfall lækkar enn meira
og fer kannski nálægt tíu prósentum
þurfum við bara að endurskilgreina
þessa stofnun. Við getum þá ekki
staðið undir þessum kröfum. Þetta
er mjög alvarlegt mál og það verður
að vera einhver samstaða um rót-
tækar aðgerðir,“ segir Guðrún.
Reykjavíkurborg rekur 63 leik-
skóla og á þeim eru 294 deildir. Rétt
rúmur helmingur deildarstjóra,
eða 164, hefur leikskólakennara-
menntun. Þess utan eru fimm leik-
skólar þar sem enginn faglærður
leikskólastjóri starfar fyrir utan
stjórnendur.
Þær breytingar urðu um áramót
að nú er aðeins eitt leyfisbréf gefið
út og gildir það fyrir kennslu í leik-
skóla, grunnskóla og framhalds-
skóla.
„Það er líka skortur á grunnskóla-
kennurum og skólastjórar vita vel
að leikskólakennarar hafa nýst
mjög vel í yngstu bekkjum grunn-
skólans. Leikskólakennarar sækja
auðvitað líka í betri vinnuaðstæður
og það á eftir að koma í ljós í vor og
sumar hversu margir færa sig yfir í
grunnskólana.“
Þá sé endurnýjun í stéttinni nán-
ast engin. Háskóli Íslands útskrif-
aði aðeins 22 leikskólakennara á
árunum 2016-2019. Til viðbótar
útskrifuðust 42 á sama tímabili með
M.ed.-próf í menntunarfræði leik-
skóla, sem er viðbótarnám fyrir þá
sem hafa aðra grunnmenntun.
„Af leiðingin af því hvað þetta
ástand hefur varað lengi er sú að
meðalaldur leikskólakennara fer
mjög ört hækkandi. Nú eru aðeins
fjögur prósent leikskólakennara
yngri en 32 ára og 42 prósent eru
eldri en 56 ára.“
Starfshópur um nýliðun og bætt
starfsumhverfi leikskólakennara
í Reykjavík skilaði í febrúar 2018
skýrslu og 33 tillögum til úrbóta.
Guðrún segir að fátt af því hafi
komist til framkvæmda.
„Það voru margar góðar tillögur
þarna. Þær kostuðu um milljarð
í framkvæmd en það voru settar
rúmar 200 milljónir í þetta. Starfs-
hópurinn talaði þá um neyðar-
ástand sem strax þyrfti að bregðast
við. Staðan í dag er enn verri.“
Guðrún segir einnig að borgin
hafi vegna sparnaðar lítið sinnt við-
haldi leikskóla í rúman áratug.
„Stór hluti leikskóla er rekinn í
lélegu og úr sér gengnu húsnæði.
Starfsaðstæðurnar eru óviðun-
andi. Það eru mörg dæmi þess að
leikskólastjórar hafi þurft að kalla
til Vinnueftirlitið til að knýja á um
bættar aðstæður starfsmanna, þar
sem húsnæði hefur ekki staðist lág-
markskröfur.“
Guðrún bendir einnig á þá stað-
reynd að um níu prósent félaga í
Félagi leikskólakennara hafi leitað
eftir ráðgjöf og þjónustu hjá Virk
starfsendurhæfingu í kjölfar lang-
tímaveikinda. Það hlutfall sé fimm
prósent hjá grunnskólakennurum
og tvö prósent hjá framhaldsskóla-
kennurum.
„Þessar tölur endurspegla það
álag sem er í störfum leikskólakenn-
ara,“ segir Guðrún.
Borgin spari sér líka háar fjár-
hæðir í launakostnað þar sem
menntaðir leikskólakennarar fáist
ekki til starfa. Þá séu nú um 400 laus
pláss í leikskólum borgarinnar sem
ekki sé hægt að nýta sökum skorts á
starfsfólki. Lausu plássin hafi verið
370 á síðasta ári og um 200 fyrir
tveimur árum.
„Ég skil ekki af hverju leikskólinn
þarf alltaf að vera svona fjársveltur.
Þetta er örugglega ódýrasta stofn-
unin miðað við þjónustuna sem
hún veitir. Vegna þess launaum-
hverfis sem leikskólinn býr við og
vinnuaðstæðna starfsmanna er
hann ekki samkeppnisfær við aðrar
atvinnugreinar.“
sighvatur@frettabladid.is
Róttækra aðgerða sé
þörf á leikskólunum
Leikskólastjóri og samráðsfulltrúi leikskólastjóra í Reykjavík segist hafa
áhyggjur af stöðu leikskóla í borginni. Breytingar á útgáfu leyfisbréfa geti leitt
til enn frekari fækkunar leikskólakennara og endurnýjun sé lítil sem engin.
Reykjavíkurborg rekur 63 leikskóla víðs vegar um borgina og á þeim eru nærri 300 deildir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERKFALL Í ljósi þess að ótímabund-
ið verkfall Ef lingar stendur yfir,
brýnir Reykjavíkurborg fyrir fólki
að skilja ekki poka með blönduðum
úrgangi eftir við grenndarstöðvar.
Af því skapist óþrifnaður og hætta
á að sorpið dreifist.
„Á endurvinnslustöðvum SORPU
má losa sig við allan f lokkaðan
úrgang og blandað heimilissorp, sé
ófremdarástand að skapast í sorp-
geymslum,“ segir á vef borgarinnar.
Reynt var að hirða sem mest af
heimilissorpi áður en verkfallið
skall á, en veður hafði áhrif á sorp-
hirðuna.
Ljóst er að ef sorp verður ekki
hirt um lengri tíma gætu áhrifin á
umhverfið og heilsu fólks farið að
segja til sín. Blandaður og lífrænn
úrgangur er gróðrarstía gerla og
skorkvikinda og því hætta á sýk-
ingum meiri en ella. Þá er einnig
meiri hætta á slysum, sérstaklega
ef oddhvassir hlutir eru í ruslinu.
– khg
Fólk skilji ekki blandaðan úrgang eftir
Hætta er á sýkingum og slysum ef
rusl fer að flæða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð