Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 16
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Því ber að
fagna hug-
myndum um
stórauknar
innviðafjár-
festingar
ríkisins til að
sporna við
enn frekari
kólnun
hagkerfisins.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
Í mars árið 2017 bankaði kanadísk leikkona, Sarah Edmondson, að dyrum á einbýlishúsi í Albany-borg í Bandaríkjunum. Sarah var félagi í sjálfs-
styrkingarsamtökum sem kölluðust Nxivm. Það átti
að vígja hana inn í DOS, sérstaka kvennahreyfingu
Nxivm sem var aðeins fyrir útvaldar. Hinum megin við
dyrnar beið martröð.
Nxivm var stofnað árið 1998 af Keith Raniere. Keith
var sagður haldinn undragáfum. Hann kvaðst hefði
verið altalandi eins árs, vera með margar háskóla-
gráður og spila á píanó eins og konsertpíanisti. Yfirlýst
starfsemi Nxivm var að hjálpa fólki að ná árangri í lífi
og starfi. Raunveruleikinn var þó annar.
Í júní í fyrra dæmdi alríkisdómari í Bandaríkjunum
Keith Raniere sekan um fjölda glæpa, þar á meðal fjár-
glæfrastarfsemi, kynlífsþrælkun og mansal. Við rétt-
arhöldin var Nxivm lýst sem sértrúarsöfnuði þar sem
konum var gert að stunda kynlíf með leiðtoganum,
þær voru sveltar, féflettar og heilaþvegnar. Konurnar
í kvennahreyfingunni DOS voru auk þess brenni-
merktar með upphafsstöfum Raniere.
En hvernig gat starfsemi sem Nxivm þrifist óáreitt
í tvo áratugi? Raniere nýtti sér sígildar sálfræðiað-
ferðir til að hafa stjórn á félögum samtakanna. Hann
skikkaði þá auk þess til að láta sér í té viðkvæmar per-
sónuupplýsingar, svo sem nektarmyndir og leyndar-
mál, sem nýta mátti gegn meðlimum ef þeir yfirgæfu
söfnuðinn. En þá er ekki allt talið.
Eftir að Sarah Edmondson var brennimerkt árið
2017 gekk hún úr söfnuðinum. Í kjölfarið kærði Nxivm
Söruh til lögreglu fyrir að valda fyrirtækinu fjárhags-
og orðsporshnekki. Árum saman hafði Nxivm notað
málaferli til að kveða niður gagnrýnisraddir. Í krafti
sterkrar fjárhagsstöðu samtakanna ofsótti Raniere
þá sem gengu úr félagsskapnum, sem og blaðamenn
sem fjölluðu gagnrýnið um Nxivm, með tilhæfu-
lausum ásökunum. Málaferlin sem einnig áttu að vera
öðrum víti til varnaðar leiddu ósjaldan til þess að hinir
ákærðu urðu gjaldþrota vegna lögfræðikostnaðar.
En Sarah hugðist ekki láta Raniere kúga sig. Hún
fór til lögregluyfirvalda og greindi þeim frá vafasamri
starfsemi Nxivm. Söruh til furðu aðhöfðust yfirvöld
ekkert. Það var ekki fyrr en Sarah leitaði til dagblaðsins
The New York Times sem fjallaði um málið að yfirvöld
rannsökuðu loks Nxivm og handtóku Raniere og aðra
forsprakka samtakanna.
Samherji og kynlífs-költið
Í vikunni sem leið bárust fréttir af því að sjávarútvegs-
fyrirtækið Samherji hefði hótað RÚV málshöfðun
vegna fréttar um „meintar“ mútugreiðslur Samherja í
Namibíu. Sagði lögfræðingur fyrirtækisins umfjöllun-
ina „refsiverða“ og geta haft í för með sér fangelsisvist.
Þá sagði í bréfinu að „framganga af þessu tagi“ gæti
valdið tjóni sem væri bótaskylt og réðust fjárhæðir „af
þeim viðskiptahagsmunum og orðspori sem er undir“.
Áskildi Samherji sér „rétt til að höfða mál“.
Vel má vera að hrein sannleiksást knýi Samherja
áfram í bréfaskiptum sínum við RÚV. En annar mögu-
leiki er þessi: Samherji er eins og kynlífs-költið.
„Tjáningarfrelsið er grundvallarmannréttindi,“ sagði
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í kjölfar efna-
hagshrunsins árið 2008, í blaðaviðtali stuttu eftir hrun:
„Það má alltaf gera ráð fyrir því að þeir sem mögulega
hafa framið efnahagsbrot og eiga hagsmuna að gæta
haldi uppi vörnum með ógnunum og tilraunum til
þöggunar.“
Sagan af Nxivm er dæmi um tvennt. Annars vegar
hvernig fjársterkir aðilar nota dómstóla til að kveða
niður gagnrýni og hræða aðra til þagnar. Hins vegar
hversu mikilvægt er að fjölmiðlar beini kastljósinu
að misgeðfelldum starfsháttum þessara sömu fjár-
sterku aðila þrátt fyrir hótanir. Því rétt eins og Sarah
Edmondson komst að: Það er svo oft sem yfirvöld kæra
sig kollótt um réttlætið fyrr en óréttlætið hefur verið
afhjúpað á forsíðum blaðanna.
Sannleiksást eða þöggun?
DAGAR
Mikið úrval af vönduðum
Helly Hansen fatnaði í
verslunum Icewear Magasín
fyrir herra, dömur og börn.
Skuggi hvílir yfir íslensku efnahagslífi. Ekki hefur dregið jafn mikið úr útflutningstekjum í þrjá áratugi og atvinnuleysi hefur þann tíma ekki verið meira, að undanskildu árinu 2008. Landsframleiðsla vex hægt og talið er að svo verði áfram næstu árin verði ekkert að gert.
Samkeppnisstaða hagkerfisins hefur versnað.
Laun hafa hækkað meira hér en víða annars staðar.
Að auki er launakostnaður mjög hátt hlutfall verð-
mætasköpunar flestra atvinnugreina.
Þungar fregnir af stöðu áliðnaðarins eru graf-
alvarlegar enda var útflutningur álvera 230 millj-
arðar króna árið 2018, þar af fóru 86 milljarðar í
innlend útgjöld. Það er grafalvarlegt að Rio Tinto
í Straumsvík kunni að hætta starfsemi sem hefur
skapað um 500 vel launuð störf hjá fyrirtækinu og
750 afleidd störf.
Því ber að fagna hugmyndum um stórauknar
innviðafjárfestingar ríkisins til að sporna við enn
frekari kólnun hagkerfisins. Með þeim verði hag-
kerfið reist við og byggt undir framtíðarhagvöxt.
Óveður vetrarins sýna svo ekki verður um villst
að styrking raforkukerfisins er mjög aðkallandi.
Uppbygging Landsnets á nýrri byggðalínu er risa-
framkvæmd og mun kosta tugi milljarða. En þar
verður einnig að einfalda leikreglur og tímaramma
sem framkvæmdum eru settar eins og forsvarsmenn
Landsnets hafa ítrekað bent á.
Fjárfestingarþörf í samgöngum er gríðarleg. Sá
listi er því miður allt of langur: vegir, brýr, hafnir
eða göng. Dæmi um slík verkefni eru Sundabraut og
að ráðast þarf í að byggja nýja flugstöð og flughlað
Akureyrarflugvallar.
Forsætisráðherra hefur einnig talað fyrir fjár-
festingum í nýsköpun og vísindum til að efla sam-
keppnishæfni landsins. Nýsköpun knýr vöxt og
fleiri hugmyndir komast á legg og verða verðmæt
fyrirtæki. Ríkið áætlar að verja 2,5 milljörðum
króna til stofnunar Kríu, nýs hvatasjóðs nýsköpunar
og frumkvöðlastarfs. Þar ættu að fylgja rýmri heim-
ild ir líf eyr is sjóða til fjár fest inga í nýsköpun.
Það kann að hljóma eins og þverstæða, en á sama
tíma og hvatt er til opinberra fjárfestinga í innviðum
er ástæða til að vara við ofþenslu ríkisútgjalda og
að steypa ríkissjóði í milljarða rekstrar halla. Nóg
er samt. Standi vilji til þess að koma atvinnulífi af
stað er skynsamlegt að draga úr álögum á atvinnu-
líf. Lægra tryggingargjald og lægri fasteignagjöld
sveitarfélaga eru hér ofarlega á blaði.
Þá væri skynsamlegt að umbreyta eign ríkisins í
Íslandsbanka í innviði. Þótt slík sala geti vart verið
þáttur í skammtímaátaki á fjármögnun nauðsyn-
legra innviðaframkvæmda, væri eignasalan skyn-
samleg – og ætti að skapa rými og tækifæri.
Séu lán tekin til innviðafjárfestinga ættu menn að
skoða þátttöku lífeyrissjóða. Undanfarin ár hefur
ríkið dregið mjög úr skuldabréfaútgáfu, en með
útgáfu markaðshæfra skuldabréfa með ríkisábyrgð
ættu sjóðir á nýjan leik að geta fjárfest í slíku. Þörf
fyrir uppbyggingu innviða er mikil. Ekki myndi
skaða ef fjármunirnir væru innlendir.
Gegn kólnun
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN