Fréttablaðið - 22.02.2020, Side 26
myndina standa þeir félagar enn
við þessa fullyrðingu og aðspurðir
staðfesta þeir að öll atriðin eigi sér
stoð í raunveruleikanum.
Örn Marinó: „Auðvitað tökum
við okkur skáldaleyfi til að tengja
söguþráðinn og atburði saman og
stílfæra.“
Þorkell: „En þetta hefur allt gerst.
Oft. Og á eftir að gerast aftur.“
Eins og heyra má gengur ýmislegt
á þegar hópur karlmanna kemur
saman til að skemmta sér í nokkra
daga fjarri ábyrgð hversdagsins en
„veiðidellan“ fræga lætur ekki að
sér hæða.
Þorkell: „Ég hitti einmitt á dög-
unum eiginkonu veiðimanns sem
er nú sérlega dagfarsprúður maður
og háttsettur í opinbera geiranum.
Hún hafði séð trailer myndarinnar
og fundist hann óþægilega líkur því
sem hún héldi að gengi á í þessum
ferðum. Hún sagði mér svo sögu af
því þegar hún og maðurinn voru
ung og blönk með nýfætt barn.
Hann hefði átt bókaða veiði en
þar sem þau hefðu verið skítblönk
hefðu góð ráð verið dýr. Hann hefði
þó reddað 200 þúsund króna yfir-
drætti fyrir ferðinni og skilið hana
eftir með ekki neitt. Hún þurfti svo
að fá lánaðan pening hjá foreldrum
sínum fyrir bleyjum og mat. Í mat-
arbúðinni hitti hún svo eiginkonu
annars veiðimanns í sama túr og
sagði henni söguna. Sú tók þá upp
gjafabréf í matarbúðina sem hún
hafði fengið hjá móður sinni enda
svipað ástatt á því heimili.“
Og þessi hjónabönd hafa haldið?
Þorkell: „Já, enda ágætis prófraun
svona strax í upphafi.“
Örn Marinó: „Þetta er bara
svona. Menn þrá að fara út í nátt-
úruna að hlaða batteríin á misskað-
legan hátt.“
Þorkell: „Mín skoðun er sú að
hægt sé að rekja þessa þörf allt
aftur til þess tíma þegar við vorum
apar, konurnar sáu um af kvæmin
og karlarnir fóru að veiða til matar.
Nú í dag vinnum við bara venju-
lega vinnu og verslum í matinn í
Bónus eða Hagkaup eða pöntum
frá Eldum rétt en erum enn að díla
við þessa þörf. Það talar enginn
um þetta. Það að fara í Bónus veitir
enga útrás fyrir veiðieðlið og svo
erum við orðnir svo úrkynja að
þetta endar allt í vitleysu eins og í
myndinni.“
Örn Marinó: „Það þarf líka að
vera veisla og það er pressa á þeim
sem sér um matinn.“
Þorkell: „Við fórum einn til
tvo túra á ári með miklum veiði-
manni. Svo klúðraði hann matnum
eitt sinn. Þá var hann settur á skil-
orð. Árið eftir klúðraði hann aftur
matnum. Við erum hættir að veiða
með honum.“
Örn Marinó: „Yndislegur maður.
En klúðraði matnum.“
Veiðimynd um konur næst
Er von á f leiri myndum um efnið?
Örn Marinó: „Já, það er planið, að
gera nokkrar myndir. Nú eru kon-
urnar líka mikið farnar að veiða og
við erum búnir að viða að okkur
mörgum sögum frá þeim ferðum
sem eru alveg að ná að fylla í eina
góða ræmu.“
Þorkell: „Þær eru alveg jafn
„verri“ og við. Ég er tengdur konu
sem hefur mikið verið í veiði og
tókst að sannfæra hana, gegn því að
ég viðhaldi nafnleynd, um að segja
mér aðeins hvað er búið að vera í
gangi. Ég ætlaði varla að trúa þess-
um frásögnum. Þær þurfa greinilega
húsmæðraorlof! Þeirra rugl er með
aðeins öðrum keimi þó það sé í raun
alveg það sama. Það er bara aðeins
meira dresskód.“
Örn Marinó: „Það lúkkar betur –
meiri stíll yfir því.“
Þorkell: „Ég heyrði af kvennaholli
sem kom við á brúðarkjólaleigu á
leið í veiðitúr og leigði sér kjóla. Eina
vaktina ákváðu þær svo að hittast í
hyl sem var nálægt húsinu og auð-
veldur aðkomu þar sem þær veiddu
í marenstertubrúðarkjólum með
kokteil.“
En óttist þið ekki að verða óvin-
sælir hjá veiðifélögunum eftir frum-
sýningu myndarinnar?
Sex íslenskum stórleikurum var gert að búa saman í veiðihúsi í tvær vikur
við tökur myndarinnar og er ekki laust við að kofaveiki hafi komið upp.
gista í húsinu á tökutímanum. Við
bjuggum til eins konar útihátíðar-
stemningu þar sem trailerar og
fellihýsi voru líka nýtt fyrir starfs-
fólkið okkar, áhöfnina sem gerði
okkur kleift að koma þessari mynd
alla leið á hvíta tjaldið. Án þeirra og
samstarfsaðila hefðum við aldrei
náð þessu.“
Leikarar með kofaveiki
Myndin var tekin upp á alls sautján
dögum með tökudögum í bænum
enda skipti máli að láta tímann
vinna með sér og spara þannig
fjármuni. Myndin hlaut ekki náð
fyrir augum Kvikmyndasjóðs en
þó nokkrir einkaaðilar lögðu verk-
efninu lið og eru þeir félagar þakk-
látir fyrir það.
Þorkell: „Það er nefnilega mun
erf iðara að sækja styrki fyrir
gamanmynd hjá Kvikmyndasjóði
heldur en fyrir þyngra stöff. Við
erum miðaldra karlar í krísu að
gera kvikmynd um sex miðaldra
karlmenn í krísu. Sjóðaumhverfið
er ekkert rosa jákvætt út í þá hug-
mynd. Við erum búnir að vera að
vinna í kvikmyndabransanum frá
því um tvítugt og höfum lært í hvað
peningurinn fer og hvað skilar sér
svo á tjaldið í lokin. Með ákveðn-
um aga hjálpar sú reynsla við að
gera mynd fyrir minni upphæðir
án þess að það komi niður á inni-
haldinu.“
Örn Marinó: „Það var mikill
kostur að hafa alla á einum stað
og sparaði mikinn tíma þó vinnu-
dagarnir hafi ekki verið langir enda
ekki stefna okkar að hanga of lengi
yfir hlutunum. Það myndaðist góð
orka enda allir all-in.“
Þorkell: „Það bjuggu líka allir
leikararnir í veiðihúsinu sem þeir
dvelja í, í myndinni.“
Örn Marinó: „ Sem skapaði
ákveðna kofaveiki. Það er ekkert
auðvelt að vera allir saman allan
daginn svona lengi. Það er alveg
erfitt að vera saman í þrjá daga í
veiði en þetta voru tvær vikur.“
Þorkell: „Þeir voru nú f ljótir að
rjúka í bæinn þegar þeir fengu leyfi.
Þá voru þeir farnir. Þetta var ekki
búið degi of snemma. Það voru allar
tilfinningar komnar út og menn
bæði grátandi og hlæjandi á sömu
mínútunni.“
Skuldum þjóðinni gamanmynd
Þeir félagar eru, eins og heyra má,
búnir að skipuleggja ekki bara
næstu mynd heldur þriðju, fjórðu
og fimmtu.
Þorkell: „Það verður leyst úr
ýmsu í næstu og þarnæstu mynd.“
Þorkell: „Maður hefur heyrt af
heilu hópunum sem ætla að gera sér
glaðan dag. Jafnvel bjóða konunni
út að borða áður. Kannski ágætt
að mýkja hana aðeins upp fyrir
myndina.“
Að sögn þeirra félaga hafa yfir
45 þúsund manns skoðað trailer
myndarinnar sem birtur var á Vísi,
en það þykir nánast einsdæmi með
íslenska kvikmynd.
Þorkell: „Svo verður gaman að sjá
hvort þetta fólk skili sér í bíó.“
Þorkell: „Ég held að það sé mjög
þakklátt að gera góða gamanmynd.“
Örn Marinó: „Sérstaklega eftir
svona vetur.“
Þorkell: „Það á að gera alls konar
myndir. Áherslan hefur þó verið á
þyngri myndir og mér finnst við
skulda þjóðinni góða gamanmynd.
Við erum komin í mínus. Þetta eru
þakklátar myndir sem horft er á
aftur og aftur. Fólk elskar gaman-
myndir.“
Er erfiðara að gera gamanmyndir?
Örn Marinó: „Já og nei. Ég held að
þetta sé bara spurning um að gera
þetta. En maður er svolítið varnar-
laus og afhjúpaður því um leið og
þú mætir með verkið í bíósal og ef
enginn hlær þá hefur þér mistekist.“
Þorkell: „Það er bara eitt skot í
byssunni. Þú annaðhvort hittir eða
ekki. Þú færð ekkert stig fyrir að
skjóta nálægt. Það er kannski þess
vegna sem það er ákveðin hræðsla
í garð gamanmynda.“
Örn Marinó: „Ætli við séum ekki
bara nægilega vitlausir til að ákveða
bara að gera þetta.“
Þeim félögum finnst þjóðin eiga skilið góða gamanmynd, ekki síst nú á þessum harða vetri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
ÞAÐ VIRÐIST OFT VERA
ÞANNIG AÐ MENN KOMIST
Í EINS KONAR VILLI-
MANNAGÍR ÞEGAR ÞEIR
KOMAST ÚT FYRIR
BORGARMÖRKIN.
Þorkell
Örn Marinó: „Við sögðum vissum
aðilum hvað við værum að fara að
gera og að þeir gætu stoppað þetta
fyrir ákveðna summu.“
Þorkell: „Við vorum falir.“
Örn Marinó: „Menn hugsuðu
málið og íhuguðu að henda í söfnun
en ég held að samstaðan hafi ekki
verið nægileg. Þeir hafa bara verið
of nískir.
Fólk mun þó vonandi bara hafa
gaman af þessu. Þegar við for-
sýndum myndina fyrir nokkra
veiðimenn og konurnar þeirra fyrir
norðan var hlátur karlanna aðeins
pínlegri á meðan konurnar gjör-
samlega góluðu. Það heyrðist varla
í myndinni fyrir þeim.“
Þorkell: „Ég held að eiginkonur
veiðimanna velti því oft fyrir sér
hvað sé eiginlega um að vera í þess-
um ferðum. Hvað sé svona spenn-
andi við að vera í hóp úti á landi
umvafinn fiski- og táfýlu. Þarna sjá
þær loksins hvað er að gerast.“
Örn Marinó: „Þetta er dulinn
heimur að ákveðnu leyti.“
Þorkell: „Það eru margar ástæður
fyrir því. Þetta er ákveðin sam-
félagsþjónusta sem við erum að
inna af hendi.“
Örn Marinó: „Það var kominn
tími á að gera mynd um þetta eins
og svo margt annað.“
Þeir félagar hafa eins og fyrr
segir farið í ansi marga veiðitúra
í gegnum árin og hlæja að því að
þróunarvinnan hafi verið rándýr.
En auðvitað þarf ákveðið innsæi í
efnið til að geta fjallað um það.
Örn Marinó: „Þessi hugmynd er
búin að malla með okkur í góðan
áratug. Svo fórum við að veiða fyrir
norðan í Mýrarkvísl og sáum fram á
að við gætum leigt ána og veiðihúsið
í tvær vikur. Þannig gátum við gert
þetta á stuttum tíma og á ódýrari
hátt með því að láta alla leikarana
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð