Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 37
Sérfræðingur í greiningum
Capacent — leiðir til árangurs
Stoðir hf. eru öflugt
fjárfestingarfélag með 25
milljarða eigið fé í árslok 2019.
Starfsmenn félagsins eru nú
fjórir. Fjárfestingastefna Stoða
endurspeglar þá staðreynd
að félagið er í meirihlutaeigu
einkafjárfesta, sem fjárfesta
til langs tíma. Markmið Stoða
er að auka verðmæti hluthafa
sinna með því að fjárfesta í
fáum, stórum verkefnum, þar
sem félagið getur haft virka
aðkomu. Stærstu fjárfestingar
Stoða í árslok 2019 voru í
Símanum, Arion banka og TM.
Nánari upplýsingar má finna
hér: www.stodir.is
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/23621
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða
sambærileg menntun
Reynsla af gerð verðmata og fjárfestingakynninga kostur
Áhugi á efnahagsmálum og fyrirtækjarekstri
Hæfileiki til að útbúa vandað og greinargott kynningarefni
Ástríða fyrir excel
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Umsóknarfrestur
12. mars
Starfssvið:
Greining fjárfestingakosta
Gerð viðskiptaáætlana og verðmata
Gerð fjárfestingakynninga
Upplýsinga- og skýrslugjöf
Eftirfylgni með fjárfestingum
Önnur tilfallandi verkefni
Stoðir hf. óska eftir umsóknum í starf sérfræðings í greiningum fjárfestingaverkefna. Leitað er eftir einstaklingi með
brennandi áhuga á fjárfestingum og greiningum.
w w w.heilsustofnun.is
ENDURHÆFINGARLÆKNIR
Endurhæfingarlæknir óskast
á Heilsustofnun í Hveragerði
Heilsustofnun veitir árlega um 1350 einstaklingum
endurhæfingarþjónustu skv. samningi við
Sjúkratryggingar Íslands. Helstu meðferðarlínur
eru geð, streita, verkir, offita, sykursýki, bæklun,
gigt, krabbamein, hjarta og öldrun.
Læknar með aðra sérfræðimenntun sem
myndi henta starfseminni eru einnig hvattir
til að sækja um.
Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur til
greina. Starfsmannarúta til og frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir G. Birna Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri lækninga,
birna@heilsustofnun.is, í síma 4830300.
Starfið veitist frá 1. júní nk.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2020.
Umsóknir sendist til mannauðsstjóra
aldis@heilsustofnun.is
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
Skatturinn leitar að áhugasömum, jákvæðum, dugmiklum og
reyklausum einstaklingi til starfa í mötuneyti embættisins á
starfstöð þess að Laugavegi 166. Um fullt starf er að ræða,
tímabundið til eins árs, en með möguleika á framlengingu ef
aðstæður leyfa. Tveir starfsmenn starfa nú þegar í mötuneytinu
við móttöku, fulleldun og framreiðslu matar, undirbúning funda,
uppvask, frágang og þrif auk annarra tilfallandi verkefna.
Hæfnikröfur
• Fáguð framkoma og snyrtimennska.
• Rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hæfileiki til að vinna undir álagi.
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi.
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
• Stundvísi og reglusemi.
• Reynsla af starfi í mötuneyti er æskileg.
• Ekki er gerð krafa um formlega menntun á sviði framreiðslu.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Gunnarsdóttir í síma 442-1000
eða með tölvupósti á kristin.gunn@rsk.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðunni www.starfatorg.is. Ferilskrá sem
inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila
og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Laun taka mið af gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sameykis -
stéttarfélags í almannaþjónustu.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2020 og verður öllum umsóknum
svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Öflugur liðsmaður óskast
í mötuneyti
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 2 2 . F E B R ÚA R 2 0 2 0