Fréttablaðið - 22.02.2020, Qupperneq 41
Launafulltrúar,
gjaldkerar,
þjónustufulltrúar
hagvangur.is
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
8 . M A R S
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra
sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda
er það staðföst trú okkar að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og málefnalegum rökum.
Isavia leitar að öflugum leiðtoga til að leiða viðskipta- og
markaðsstarf félagsins á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við
framkvæmdastjóra og aðra stjórnendur.
Forstöðumaður viðskipta- og markaðsmála á Viðskipta- og
þróunarsviði Isavia leiðir, mótar og framfylgir viðskipta-
og markaðsstefnu félagsins fyrir Keflavíkurflugvöll í
samvinnu við fjölbreyttan hóp haghafa, m.a. verslanir og
veitingasölu, Fríhöfnina, bílaleigur og hópferðafyrirtæki.
Forstöðumaður sér auk þess um útleigu á aðstöðu, rými
og eignum á Keflavíkurflugvelli og ber ábyrgð á rekstri
bílastæðaþjónustunnar KEF Parking.
Um er að ræða spennandi starf í líflegu alþjóðlegu umhverfi
þar sem mikil tækifæri eru til að ná til nýrra viðskiptavina
á hverjum degi. Öflug markaðssetning á vöruframboði
flugvallarins og samstarf um framsetningu og nýtingu
verslunarsvæða sem skilur eftir sig eftirminnilega upplifun
farþega Keflavíkurflugvallar er krefjandi áskorun.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Daði Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Viðskipta og þróunar,
dadi.runarsson@isavia.is
Helstu verkefni
• Dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri
• Þróun og mótun á viðskipta- og markaðsstefnu
Keflavíkurflugvallar
• Öflun nýrra tekjustofna
• Ábyrgð á útleigu og gerð eignaleigusamninga
• Upplýsingagjöf og samskipti við rekstrarleyfishafa,
samstarfsaðila og leigjendur
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði
eða önnur sambærileg menntun
• Farsæl stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
• Framúrskarandi þekking á viðskiptum, tekjuöflun og
rekstri fyrirtækja
• Þekking og reynsla á stýringu sölu- og markaðsmála
• Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður
til að ná árangri
• Framúrskarandi samskiptafærni og reynsla af því að byggja
upp viðskiptasambönd
• Geta til að byggja upp ný viðskiptatækifæri
F O R S T Ö Ð U M A Ð U R V I Ð S K I P TA - O G M A R K A Ð S M Á L A