Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 42
Forstjóri Vinnumálastofnunar
Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra
Vinnumálastofnunar.
Vinnumálastofnun heyrir undir félags- og barnamálaráðherra og fer
m.a. með yfirstjórn opinberrar vinnumiðlunar í landinu og daglega
afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs og
Ábyrgðarsjóðs launa auk fjölmargra annarra vinnumarkaðstengdra
verkefna. Stofnunin rekur þjónustueiningar á níu stöðum
á landinu. Vinnumálastofnun starfar samkvæmt lögum nr.
55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir og lögum nr. 54/2006 um
Atvinnuleysistryggingar, ásamt því að fara með framkvæmd fjölmargra
annarra laga.
Forstjóri ber m.a. ábyrgð á að Vinnumálastofnun starfi í samræmi
við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur
honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar,
að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að
fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Félags- og barnamálaráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára, sbr.
23.gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með
síðari breytingum.
Miðað er við að skipað verði í stöðuna frá 1. apríl nk.
Umsóknarfrestur er til 16. mars 2020
Nánari upplýsingar um starfið má
finna á starfatorgi Stjórnarráðsins,
www.starfatorg.is
Starf hjá Mjólkursamsölunni
Búðardal
Mjólkursamsalan ehf óskar að ráða
aðila til þess að sinna
viðhaldi á starfsstöð sinni í Búðardal.
Um er að ræða almennt viðhald og
umsjón með framleiðslutækjum, ásamt
umsjón með viðhaldi á mannvirkjum
starfsstöðvarinnar.
Starfið getur hentað rafvirkja, vélvirkja,
eða manneskju með sambærilega
menntun og eða reynslu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Lúðvík ludvikh@ms.is
Umsóknir skal senda á netfangið
ludvikh@ms.is fyrir 4 mars n.k,.
Leiðtogi í sölu, þjónustu og upplifun
Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi. Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2020.
Umsóknir sendist inn í gegnum ráðningavef Bláa Lónsins storf.bluelagoon.is
Nánari upplýsingar veitir Ægir Viktorsson sérfræðingur á mannauðssviði, í síma 420 8800
Helstu verkefni og ábyrgð
-Vera leiðtogi og fyrirmynd annarra starfsmanna
-Starfsmannasamtöl, ráðningar og vaktaplön
Menntunar- og hæfniskröfur
-Þekking og skilningur á verslunarrekstri - reynsla af
verslunarstjórnun kostur
-Framúrskarandi samskiptahæfileikar og áhugi á ólíkum
menningarheimum
Sæktu um á
storf.bluelagoon.is
Bláa Lónið leitar að metnaðarfullum verslunarstjóra í verslun okkar við Laugaveg sem er tilbúinn að veita starfsfólki hvatningu
og viðskiptavinum hámarks upplifun með framúrskarandi þjónustu.
-Hefur skilvirkni og hagkvæmni í rekstri að leiðarljósi
-Markaðsdrifinn og hámarkar sölu
-Menntun og sérþekking sem nýtist í starfi
-Góð íslensku- og ensku kunnátta er skilyrði - önnur
tungumálakunnátta er mikill kostur
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R