Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 64
Leikararnir í Exit eru tilbúnir í næstu þáttaröð.
Sjónvarpsþættirnir Exit sem hafa vakið mikla athygli hér á landi verða fleiri. Þættina má sjá á vefsíðu RÚV. Norð-
menn segja að um hálf milljón manna hafi
horft á fyrsta þáttinn fyrstu dagana eftir
frumsýningu og eru þeir kallaðir sjokk-
þættirnir. Norska ríkissjónvarpið, NRK,
hafði ekki áður fengið jafnmikið niðurhal
á nokkrum þætti. Yfir ein milljón manna
hefur séð þættina í Noregi.
Nú er búið að ákveða framhaldsseríu.
Þættirnir eru að sjötíu prósentum skrifaðir
eftir því sem raunverulega gerðist meðal
fjármálamanna á góðæristímabilinu fyrir
hrun. Næstu þættir verða einnig byggðir á
sönnum atburðum en höfundurinn hefur
setið við og tekið viðtöl við fjármála-
víkinga til að byggja framhaldið á. Sömu
leikarar verða í seríu tvö. Konur fá þó meira
vægi í framhaldinu.
Framleiðendur telja að margir bíði eftir
næstu seríu og segja að það eigi eftir að
koma fólki á óvart hversu langt er hægt að
ganga þegar nægir peningar eru til taks.
Búist er við að nýju þættirnir fari í loftið í
byrjun næsta árs.
Framhald af Exit
Hægt verður að skreyta tungumála-
tré á Borgarbókasafni. MYND/GETTY
Í dag klukkan 13.30 býður Borgar-bókasafnið, í samstarfi við Móðurmál – samtök um tvítyngi
og skóla- og frístundasvið Reykja-
víkurborgar, öllum áhugasömum
á tungumálabasar í Gerðubergi.
Tilgangurinn er að fagna alþjóða-
degi móðurmálsins og leyfa öllum
þeim tungumálum sem töluð eru í
umhverfinu okkar að blómstra.
Það verða skemmtilegar tungu-
málasmiðjur í hverju horni þar sem
meðal annars verður hægt að skrifa
bréf til vina og ættingja í öðrum
löndum, skreyta tungumálatré
með fallegum orðum á öllum
heimsins tungumálum, föndra
origami og kynnast mismunandi
leturgerðum.
Bókasafn Móðurmáls verður
á staðnum og sér um skiptibóka-
markað í samstarfi við Borgarbóka-
safnið. Allir eru hvattir til að koma
með barna- og unglingabækur á
öllum tungumálum sem geta öðlast
framhaldslíf og veitt öðrum gleði á
nýjum heimilum.
Móðurmálum
verður fagnað
Shirley Temple og Bill Robinson
stíga sögulegan dans. MYND/GETTY
Fyrir 85 árum, þann 22. febrúar árið 1935, var kvikmyndin Little Colonel frumsýnd.
Myndin, sem byggð er á skáldsögu
með sama nafni frá árinu 1985,
skartar barnastjörnunni vinsælu
Shirley Temple í aðalhlutverki
ásamt þeim Lionel Barrymore og
Bill Robinson.
Í myndinni er sagt frá feðginum
sem endurbyggja stirt samband
sitt á árunum eftir bandarísku
borgarastyrjöldina. Það gekk á
ýmsu við tökur á myndinni og
segir sagan að Shirley hafi verið
svo minnug á línurnar að hún
hafi eitt sinn hvíslað texta að
gleymnum Barrymore sem fauk
svo illilega í að starfsmaður sem
var viðstaddur sá sig knúinn til
þess að taka Temple og fara með
hana inn í annað herbergi á meðan
hann jafnaði sig.
Myndin vakti mikla athygli
á sínum tíma enda er sögulegt
atriði í henni þar sem Shirley
Temple og Bill Robinson, sem
var dökkur á hörund, dönsuðu
saman stepp dans í stiga. Var þetta
í fyrsta skiptið sem fólk hvort af
sínum kynþætti dansaði saman í
kvikmyndasögu Bandaríkjanna.
Atriðið þótti svo framsækið að það
var raunar klippt út úr myndinni
fyrir sýningar á henni í suður-
ríkjum Bandaríkjanna.
Sögulegur
steppdans í stiga
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
SÚPA OG FJÓRIR RÉTTIR
Kjúklingur í luxui sósu
Núðlur með grænmeti
Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu
Svínakjöt í satey sósu
Tekið með heim
1.890 kr. (á mann)
Borðað á staðnum
2.200 kr. (á mann)
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R