Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 76

Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 76
Ég ólst upp við stjörnur eins og Frank Sinatra og Ellu Fitz- gerald. Var reyndar líka hrifinn af Bítlunum. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa, bróður og mágs, Sævars Sigtýssonar rafvirkjameistara, Mýrarvegi 113, Akureyri. Starfsfólki gjörgæsludeildar Sjúkrahússins á Akureyri eru færðar bestu þakkir fyrir alúð og einstaklega góða umönnun. Torfi Dan Sævarsson Valgerður Hallgrímsdóttir Jón Marinó Sævarsson Kristín Irene Valdemarsdóttir Arna Björg Sævarsdóttir Ásbjörn Þór Á. Blöndal Ármann Snær, Snærún Tinna Sædís, Sigmar, Silja Sigtýr Snorri, Styrbjörn Sævar, Steinkell Skorri Arnar Sigtýsson Málfríður Torfadóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir amma, langamma og langalangamma, Aðalheiður Pálsdóttir áður til heimilis að Miðvangi 41, Hafnarfirði, lést á Akurgerði, Sólvangi, Hafnarfirði, þann 25. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á hjúkrunarheimilinu. Aðstandendur. Elsku hjartans móðir mín, dóttir okkar, sambýliskona, systir, mágkona og frænka, Ester Ósk Liljan Óskarsdóttir lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi þann 14. febrúar síðastliðinn. Vill fjölskyldan þakka viðbragðsaðilum einstök hlýlegheit. Útförin fer fram frá Akraneskirkju, 25. febrúar kl. 13.00. Arnar Óli Þórarinsson Svanborg Liljan Eyþórsdóttir Óskar Aðalsteinsson Sigurður Þór Mýrdal Gunnarsson Ólafur Eyberg Rósantsson Kolbrún Harðardóttir Jónas Páll Þorláksson Margrét Hallgrímsdóttir Vilborg Helga Liljan Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær sonur minn, bróðir okkar og frændi, Hafsteinn Kjartansson lést á Tenerife fimmtudaginn 6. febrúar. Útför hans fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 26. febrúar klukkan 14.00. Þakkir eru færðar þeim sem sýna hlýju og samhug. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Draumasetrið. Antonía Björg Steingrímsdóttir Hallgrímur E. Vébjörnsson Judith Haas Steingrímur E. Kjartansson Grachille A. Baligod Hilmar Kjartansson Svava Kristinsdóttir Valdimar Kjartansson Inga Tirone Ósk Kjartansdóttir Ragnar T. Atlason og systkinabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir, amma og langamma, Ólafía Katrín Hansdóttir sem lést sunnudaginn 9. febrúar, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 24. febrúar klukkan 13.00. Ingiríður Hanna Þorkelsdóttir Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir Valdís Brynja Þorkelsdóttir barnabörn og langömmubörn. Nú er ég auðvitað innflytj-andi en Ísland er búið að vera alveg svakalega gott við mig. Þess vegna vil ég vera hér og hvergi annars st aðar. Mér finnst ég oftast hafa fengið tækifæri til að gera það sem mig langar til að gera, segir tónlistarmaðurinn John Speight sem fagnar 75 ára afmæli síðar í þessum mánuði. Af því tilefni ætla Gunnar Kvaran og Helga Bryndís Magnúsdóttir að tileinka honum tónleika í Hljóðbergi í Hannesarholti á morgun, sunnudag. John fæddist á Englandi. Hann stund- aði söngnám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum og lagði þar jafnframt stund á tónsmíðar. En árið 1972 f lutti hann til Íslands. Hvað kom til? „Ég hitti konuna mína í London, við vorum þar í sama skóla. Hún heitir Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og er píanó- leikari.“ Oft er það nú þannig að karlarnir ráða en þú hefur verið svona leiðitamur, segi ég og við hlæjum bæði. „Já, greinilega! Ætli það hafi ekki verið af því að ég var búinn að búa í Englandi í 27 ár? Það var alveg nóg, þá var ég búinn að afgreiða það. Nú hef ég búið hér tvo þriðju hluta af lífi mínu. En ég hugsa aldrei, er ég Eng- lendingur eða er ég Íslendingur? – mér er alveg sama.“ Hann kveðst strax hafa komist inn í tónlistarlífið hér. „Ísland tók mér afar vel og ég vona að ég hafi gefið eitthvað af þeim jákvæðu straumum til baka. Ég kenndi söng, tónfræði og f leiri fög við Tónskóla Sigursveins í 43 ár, en var alltaf að gera eitthvað annað með, bæði syngja og semja. En nú heyri ég ekki orðið nógu vel, held það sé í ættinni, móðir mín var heyrnarsljó á efri árum. Ég reyni að hugsa jákvætt og segi stundum: Nú eigum við Beethoven eitthvað sameigin- legt!“ Þarna vísar John til heyrnarleysis Beethovens. Báðir hafa þeir líka lagt fram drjúgan skerf til tónbók- menntanna og nú á að frumflytja nýtt verk eftir John í Hannesarholti á morg- un. Það samdi hann einmitt fyrir Gunn- ar og Helgu Bryndísi. „Verkið heitir Einu sinni var – og á að virka eins og að blaða í gegnum smásagnasafn, svo það er margt sem gerist. En það er ekki byggt á nein- um sérstökum sögum, bara rusli sem er í hausnum á mér!“ segir hann hlæjandi. Þegar merkisafmælið brestur á þann 27. febrúar kveðst John bara ætla að hafa fjölskylduna í kringum sig. „Við hjónin eigum tvo syni og sex barnabörn og erum svo heppin að okkur kemur öllum mjög vel saman. Eldri strákurinn minn hefur búið í Englandi og Bandaríkjunum en kemur alltaf heim og býr hér, vinnur sem ljósmyndari, Svenni Speight. Yngri strákurinn er „umbi“, Einar Speight heitir hann og er í tónleikahaldi – ekki samt fyrir pabba sinn eða aðra í klassík- inni, meira í poppinu. Persónulega hef ég ekki mikinn tíma til að hlusta á popp og það sem ég hlusta á er líklega gamal- dags. Ég ólst upp við stjörnur eins og Frank Sinatra og Ellu Fitzgerald. Var reyndar líka hrifinn af Bítlunum. En þegar maður fer djúpt ofan í klassíska músík þá hefur maður ekki tíma fyrr annars konar tónlist.“ gun@frettabladid.is Ísland tók mér afar vel Gunnar Kvaran sellóleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari halda tón- leika til heiðurs John Speight í Hannesarholti á morgun í tilefni 75 ára afmælis hans. John Speight, Helga Bryndís og Gunnar Kvaran verða í essinu sínu í Hannesarholti á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, kærleika og hlýjar kveðjur við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Benedikts Ólafssonar fyrrverandi forstjóra, áður til heimilis að Langagerði 114. Einnig sendum við kveðju og þakkir til starfsfólksins á hjúkrunarheimilinu Eir, á 2. hæð suður, fyrir umönnun og vináttu þess. Ólafur Benediktsson Kristín Benediktsdóttir Birna E. Benediktsdóttir Hilmar Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Borghildur B. Fenger Sóltúni 11, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum 18. febrúar sl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni 5. mars nk. kl. 13.00. John Fenger Rósa Fenger Kristín Fenger Vermundsd. Helgi Benediktsson Björg Fenger Jón Sigurðsson Ari Fenger Helga Lilja Gunnarsdóttir Hilmar Bragi Fenger Kerri Gilday Ármann Örn Fenger Katie Fenger Ingi Rafn Fenger Deven Greene og barnabarnabörn. 2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.