Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 77
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ég er vön því að traffíkin detti
niður í apríl og jafnvel maí,
en það tímabil byrjar fyrr í ár út
af COVID-19 veirunni.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Lárus Helgason
loftskeytamaður,
síðast til heimilis að
Hraunvangi 7 Hafnarfirði,
lést í faðmi barna sinna þriðjudaginn
11. febrúar á Landspítalanum í Fossvogi.
Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi
mánudaginn 24. febrúar kl. 11.00.
Sigurlaug Hrönn Lárusdóttir
Vala Lárusdóttir
Ólöf Ýr Lárusdóttir Bjarmi Sigurgarðarsson
Andri Lárusson Halla Jóhannesdóttir
Tinna Lárusdóttir Þór Karlsson
Sölvi Lárusson
Sigurður Lárusson
Kristján Lárusson
Guðrún Lárusdóttir Kristján Reynir Kristjánsson
Anna Marie Lárusdóttir Baldur Már Stefánsson
Kristín Lárusdóttir Óli Björn Blöndal
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kristján Steindórsson
bóndi og fyrrverandi
símstöðvarstjóri
frá Kirkjubóli í Langadal,
lést laugardaginn 15. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Mörk.
Minningarathöfn fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
25. febrúar klukkan 15.00. Útför verður gerð frá
Nauteyrarkirkju og jarðsetning á Kirkjubóli í Langadal
á vormánuðum. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir yndislega umönnun.
Guðmunda Sigurðardóttir
Steindór Gísli Kristjánsson
Kristín Margrét Kristjánsdóttir Eyjólfur Eyjólfsson
Sigurður Kristjánsson
Hafliði Kristjánsson Lilja Fossdal
Einar Rúnar Kristjánsson Rowena D. Kristjánsson
Karen Dís Hafliðadóttir
Thelma Dögg Hafliðadóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Jónu Gísladóttur
síðast til heimilis að Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu
fyrir umhyggju og alúð, sem og öllum í opnu húsi
Blindrafélagsins.
Guðm. Friðrik Sigurðsson Kristín Pálsdóttir
Axel Jónsson Þórunn Halldórsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir Óskar Jóhannsson
Ragnheiður Sigurðardóttir Kristján Guðmundsson
Björg Sigurðardóttir
Aðalheiður D. Sigurðardóttir Þröstur Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýlismaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Sayd Mechiat
lést á Landspítalanum Hringbraut
miðvikudaginn 19. febrúar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
blóðlækningadeildar 11G fyrir
einstaka hlýju og umhyggju.
Guðbjörg María
Drífa Nadia Mark Anthony
Skúli Hakim
Valgerður Fannar
Lilja Yasmin
og barnabörnin Góa, Salvador, Eysteinn og Katrín
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður H. Egilsson
Fróðengi 11, Reykjavík,
lést þann 14. febrúar sl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Bragi Sigurðsson Sigríður Emelía Bjarnadóttir
Þórður Sigurðsson Edda Björnsdóttir
Pétur Kornelíusson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Halldór Snorri Gunnarsson
Löngubrekku 13,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 17. febrúar.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 28. febrúar klukkan 11.00.
Gunnar Már Halldórsson
Lovísa Lára Halldórsdóttir Ársæll Rafn Erlingsson
Svanhildur Sif Halldórsdóttir Michael William Chapman
Berglind Björk Halldórsdóttir Hannes Þór Baldursson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auðbjörg Jóhannsdóttir
frá Eskifirði,
lést fimmtudaginn 20. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 2. mars kl. 13.00.
Þorvarður Kári Ólafsson Anna Kristín Sigurðardóttir
Sólrún Ólafsdóttir Kristján Örn Karlsson
Bryndís Ólafsdóttir Björn Harðarson
Svanhildur Ólafsdóttir Magnús Arnar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Hulda Jónsdóttir
(Dollý)
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi,
Reykjanesbæ, fimmtudaginn 20. febrúar.
Jarðarför auglýst síðar.
Guðbjörg Jóna Pálsdóttir Sigurður Hallmann Ísleifsson
Jón Örn Pálsson Elísabet Kjartansdóttir
Magnús Valur Pálsson Jóna Guðrún Jónsdóttir
Þórður Pálsson Laufey Eydal
Kristinn Pálsson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför elsku móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
Erlu Hafliðadóttur
Patreksfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Patreksfjarðar fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erlendur Kristjánsson Sigríður Karlsdóttir
Kristín S. Kristjánsdóttir Guðbrandur Jóhannsson
Ólafur A. Kristjánsson Svanhvít Bjarnadóttir
Björk Kristjánsdóttir Andri K. Karlsson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Ragnar Hilmir Ragnarsson
Bollebygd, Svíþjóð,
lést sunnudaginn 2. febrúar.
Útför hans fer fram frá Bollebygds kyrka
í Svíþjóð, miðvikudaginn 18. mars.
Flordilez Odess Ragnarsson
Anna Katrín Ragnarsdóttir Vilhjálmur Sturla Eiríksson
Þorsteinn Lár Ragnarsson Íris Ósk Ólafsdóttir
Guðbjörn Hilmir Ragnarsson Ritta Patricia Panes Perez
Guðný Björg Ragnarsdóttir
Rica Azalea Perdiso
Arnar Geir Stefánsson
og barnabörn.
Yf irleitt eru prjónarnir í bílnum, ef ég skyldi þurfa að bíða meðan farþegarnir fara í jöklagöngu,“ segir Hildigunnur Fönn Hauks-dóttir brosandi. Hún ekur
um landið með ferðamenn allt árið, í
öllum veðrum og segir það geta verið
erfitt en einnig gaman. „Ég fer í átta
daga hringferðir á veturna, oft með
Asíubúa, yfirleitt ungt fólk, alveg yndis-
legt en þetta eru engar lúxusferðir.“ Á
sumrin kveðst hún meira í styttri ferð-
um oft með Skandinava og aðra Evrópu-
búa. Óvenju rólegt er þessa dagana. „Ég
er vön því að traffíkin detti niður í apríl
og jafnvel maí, en það tímabil byrjar fyrr
í ár út af COVID-19 veirunni.“
Segja má að hrunið hafi hrundið
Hildigunni út í þennan rekstur. „Ég er
hagfræðingur og var að vinna í fjár-
málageiranum, en leið ekkert vel þar
því ég er dálítið vinstrisinnuð. Svo kom
hrunið með öllum sínum uppsögnum,
það var hræðilegt og enginn vissi hver
yrði látinn fjúka næstur. Ég fór sjálf að
leita mér að öðru og tækifærin voru í
þessum geira. Fór til Póllands og keypti
lúxusrútu og tók svo tilskilin próf þó
skólastjórinn réði mér eindregið frá því
að reyna.“
Einu sinni á ári fer Hildigunnur í
stóra ferð um Ísland með prjónafólk
frá Bandaríkjunum. „Ég kynntist þeim
félagsskap áður en ég byrjaði í ferða-
bransanum og úr varð vinskapur sem
þróaðist út í þessar ferðir.“ Hún segir
áhuga á prjónaskap mikinn bæði
vestra og hér á landi. „Hér snýst allt um
að prjóna eitthvað gagnlegt, en í Amer-
íku er prjónaskapur meira hobbý þeirra
ríku, keypt er rándýrt garn og prjón-
aðir litlir en afar fagrir hlutir. Svo er
ferðast til Perú, Noregs, Skotlands,
Íslands og Færeyja. Ég fór á námskeið í
september, f laug til Seattle og tók pínu-
litla rellu út í eyju. Þar er prjónasetur,
svo fléttast inn í góður matur og ferðir
í prjónabúðir á staðnum. Ég prjónaði
bara með mínu lagi en kann amerísku
aðferðina, hef samt ekki þolinmæði í
f lóknustu hlutina.“
gun@frettabladid.is
Prjónar í lengri stoppum
Hildigunnur Hauksdóttir er sjálfstætt starfandi leiðsögumaður á eigin farartæki. Hún
tekur prjónana með og einu sinni á ári fer hún um landið með amerískt prjónafólk.
Hildigunnur nýtir tímann meðan hún bíður eftir farþegum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0