Fréttablaðið - 22.02.2020, Síða 84
ÞETTA ER SAGA UM
STRÁK SEM TÝNIR
PABBA SÍNUM OG LEGGUR AF
STAÐ Í LEIÐANGUR TIL AÐ
FINNA HANN OG Á LEIÐINNI
ÞARF HANN AÐ LEYSA ALLS
KONAR ERFIÐ VERKEFNI OG ÞAÐ
MÓTAR HANN.Glæný r söngleik ur um ævintýri spýtus t r á k s i n s G o s a verður frum sýndur á Litla sviði Borgarleik hússins á morg
un, sunnudaginn 23. febrúar. Söng
leikurinn er unn inn upp úr þessu
klassíska ævintýri af Ágústu Skúla
dóttur leik stjóra, Karli Ágústi Úlfs
syni og leik hópn um í sýningunni.
Eiríkur Stephensen og Eyvindur
Karlsson sömdu tónlistina í verkinu
og Haraldur Ari Stefánsson, Katla
Margrét Þor geirsdóttir og Halldór
Gylfason fara með hlutverkin.
Haraldur Ari fer með hlutverk
Gosa. „Í vinnuferlinu höfðum við
til hliðsjónar upprunalegu söguna
eftir Carlo Collodi sem er grófari en
Disneyteiknimyndin sem f lestir
þekkja. Við unnum sýninguna
á skemmtilegan hátt, hittumst í
nokkrar vikur með grunn að hand
riti frá Kalla og Ágústu, prófuðum
lögin og sáum hvað virkaði. Þegar
við hittumst næst var handritið
orðið mótaðra og f leiri lög höfðu
orðið til. Í þessari sýningu er fram
vindan oft sögð í gegnum lögin
sem eru mjög skemmtileg,“ segir
Haraldur Ari.
Bók frá Brynju Ben
Spurður um fyrstu upplifun sína
af Gosa sem barn segir hann: „Það
var þegar Brynja Benediktsdóttir,
leikkona og leikstjóri, gaf mér bók
um Gosa, sem ég fann svo nýlega.
Nefið á Gosa, sem lengist þegar
hann lýgur, er það sem flestir muna
eftir úr Disneymyndinni en í sög
unni gerist svo margt annað og Gosi
þarf að leysa ýmiss konar verkefni.
Hann ætlar til dæmis að vera dug
legur og standa sig í skólanum og
tekst það en fer að monta sig. Þá
þarf hann að læra að maður montar
sig ekki heldur hjálpar öðrum sem
gengur ekki eins vel.
Það er fullt af boðskap í þessari
sýningu. Þetta er saga um strák
sem týnir pabba sínum og leggur
af stað í leiðangur til að finna hann
og á leiðinni þarf hann að leysa
alls konar erfið verkefni og það
mótar hann. Hann þarf að fórna
sér fyrir aðra og verður að lokum
mennskur.“
Leikur Gosa með hjartanu
Borgarleikhúsið frumsýnir söngleik um Gosa. Haraldur Ari
Stefánsson fer með hlutverk spýtustráksins sem verður að
lokum mennskur. Hann er á sviðinu eiginlega allan tímann.
„Þetta hefur verið skemmtileg og gefandi vinna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Allur tilfinningaskalinn
Í hlutverki Gosa er Haraldur Ari á
sviðinu svo að segja allan tímann.
„Það er mjög gaman að leika Gosa.
Það þarf að leika hann með hjart
anu. Þarna er allur tilfinningaskal
inn, sorg og gleði skiptast á. Svo
þarf ég að passa að vera ekki með
of mannlegar hreyfingar því ég er
spýtukarl, en búningurinn sem er
mjög f lottur hjálpar mér við það.
Ég þarf að syngja og hreyfa mig á
sama tíma. Þetta tekur á en er um
leið ákaflega gaman.“
Ungir áhorfendur mega búast við
góðri skemmtun og minnisstæðum
atriðum. „Gosi hittir til dæmis
eldgleypi og er gleyptur af hval,“
segir Haraldur Ari. „Ung kona sem
vinnur hér í húsinu sagði frá því að
hún hefði sem barn horft á teikni
myndina um Gosa og horfði ekki á
hana aftur fyrr en hún var tvítug og
varð alveg jafn hrædd.“
Haraldur Ari ber mikið lof á
samstarfsfólk sitt. „Þetta er frábær
hópur og það hefur verið hlegið
mikið á æfingum. Þetta hefur verið
ákaf lega skemmtileg og gefandi
vinna.“
Hrafnhildur Hagalín, listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins. MYND/HARI
Þjóðleikhúsið hefur fastráðið fjóra listræna stjórnendur til að skipa teymi listrænna
stjórnenda við leikhúsið ásamt leik
hússtjóra. Allir verða þeir virkir í
listrænni sköpun í leikhúsinu ásamt
öðrum listamönnum hússins. Hlut
verk teymis fastráðinna listrænna
stjórnenda er jafnframt að taka þátt
í að móta listræna stefnu leikhúss
ins með þjóðleikhússtjóra og styðja
við hana, auk stefnumótunar fyrir
leikhúsið almennt.
Hrafnhildur Hagalín Guðmunds
dóttir er ráðin sem listrænn ráðu
nautur og staðgengill leikhússtjóra.
Ólafur Egill Egilsson er fastráðinn
leikstjóri, Ilmur Stefánsdóttir er
fastráðinn leikmyndahöfundur
og Björn Bergsteinn Guðmunds
son yfirljósahönnuður. Auk þeirra
hefur Unnur Ösp Stefánsdóttir
einnig gengið til liðs við leikhúsið
og mun vinna jöfnum höndum
sem leikari og leikstjóri á komandi
árum. – kb
Nýir listrænir stjórnendur
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um
listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar
fyrir grunnskólabörn
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um
land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og
vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barna-
menningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 20. mars 2020.
MAT Á UMSÓKNUM
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla
að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í
öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd
heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 22. maí 2020.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu
List fyrir alla, www.listfyriralla.is
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING